Ríkið borgar helmingi minna fyrir meiri þjónustu frá sama aðila og sinnti henni áður

Kostn­aður rík­is­ins vegna rekst­urs og hýs­ingar tölvu­kerf­is­ins Orra lækkar um tæpar 8,7 millj­ónir krónur á mán­uði, eða 94 millj­ónir króna á ári, í kjöl­far nýs samn­ings sem Fjár­sýsla rík­is­ins hefur gert við Advania, sama fyr­ir­tæki og sinnti þjón­ust­unni áður. Í svörum Rík­is­kaupa við fyr­ir­spurn Kjarnans um hvort ein­hverjar við­bót­ar­kröfur hafi verið gerðar í nýja útboð­inu kemur fram að þjón­ustan muni í raun aukast. Í nýja samn­ingnum eru ákvæði um þjón­ust­þætti sem ekki voru til staðar í þeim eldri.

Því er ríkið að borga tæpar 7,9 millj­ónir króna á mán­uði fyrir þjón­ustu sem það greiddi áður 16,5 millj­ónir króna á mán­uði fyrir, og það er að fá meira fyrir pen­ing­inn. Sá sem sinnti þjón­ust­unni áður, og hefur gert frá upp­hafi, er hins vegar sami aðili og samið hefur verið um að sinna henni núna, Advania.

Skiluðu inn sex tilboðum


Fjár­sýsla rík­is­ins og Advania und­ir­rit­uðu samn­ing um rekstur og hýs­ingu tölvu­kerf­is­ins Orra nýverið. Ákveðið var að ganga til samn­inga við Advania í kjöl­far örút­boðs sem fór fram á vegum Rík­is­kaupa. Advania hafði áður séð um rekstur og hýs­ingu Orra og þegið fyrir það 16,5 millj­ónir króna á mán­uði fyrir utan virð­is­auka­skatt.

Þrír aðilar buðu í verk­efnið. Síminn bauð hæst, um 21 milljón króna. Opin Kerfi buðu 10,3 millj­ónir króna og Advania skil­aði inn sex til­boðum. Það hæsta var upp á 17 millj­ónir króna en það lægsta upp á 6,4 millj­ónir króna. Eðlilega fylgdi mis­mikil þjón­ustu hverju til­boði. Því lægra sem til­boðið var því minni þjón­usta fylgdi því.

  1. jan­úar 2015 bár­ust þeim sem boðið höfðu í verkið skila­boð um að einu til­boði Advania hefði verið tekið. Kjarninn sendi fyr­ir­spurn um málið til Rík­is­kaupa um málið þar sem þau svör feng­ust að útboðs­ferl­inu væri ekki lokið og að engu til­boði hefði verið form­lega tekið.

Þann 29. apríl síð­ast­lið­inn sendi Rík­is­kaup svo tölvu­póst á aðra bjóð­endur þar sem þeim var til­kynnt að til­boð frá Advania, svo­kallað til­boð B, hefði verið end­an­lega sam­þykkt og að bind­andi samn­ingur væri komin á milli aðila.

Rík­is­kaup svör­uðu síðan fyr­ir­spurn Kjarnans um málið fyrr í þess­ari viku.

Heildarvirði samningsins 830 milljónir króna


Þar kemur fram að til­boð­inu sem tekið var frá Advania, sem veitti líka þjón­ust­una fyrir útboðið, hafi verið upp á 7.850.000 krónur án virð­is­auka­skatts á mán­uði. Því nemur samn­ings­lækk­unin 8.650.000 krónum á mán­uði án virð­is­auka­skatts. Á árs­grund­velli þýðir það að kostn­aður rík­is­ins vegna hýs­ingar og rekst­urs Orra fer úr 198 millj­ónum króna í tæpar 104 millj­ónir króna. Kostn­að­ur­inn tæp­lega helm­ing­ast.

Samn­ing­ur­inn er til sex ára með heim­ild til fram­leng­ingar um allt að tvö ár. Heild­ar­virði hans er því allt að 830 millj­ónir króna.

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans segja Rík­is­kaup að þó hin nýji samn­ingur og þjón­usta sé mjög sam­bæri­leg við fyrri samn­ing, þá eru nokkur frá­vik sem kunni að skýra lækkun kostn­aðar. „Ekki er um svo­nefndan alrekstur að ræða eins og áður var, heldur eru samn­ings­þættir skil­greindir sér­stak­lega. Útboðið og nýi samn­ing­ur­inn skil­greinir af meiri nákvæmni þjón­ustu­stig, vél­búnað og þess háttar heldur en eldri samn­ing­ur­inn gerði.

Í örút­boð­inu og í hinum nýja samn­ingi eru ákvæði um þjón­ustu­þætti, sem ekki voru til staðar í fyrri samn­ing. Sér í lagi, þá skal verk­sali nú útvega vara­véla­sal þannig að unnt sé að halda kjarna­starf­semi Orra gang­andi í vara­sal, komi til stór­felldra áfalla í aðal­véla­sal.“

Munurinn virð­ist því fel­ast í að nákvæm­ari skil­grein­ingu á þeim þáttum sem undir eru í samn­ingnum og því að Advania auki þjón­ustu sína við ríkið. Samt kostar þjón­ustan nú 94 millj­ónum krónum minna á ári.

Átti að kosta 160 milljónir en kostaði fjóra milljarða


Tölvu­kerfið Orri er sam­heiti yfir ýmis kerfi rík­is­ins, til dæmis fjár­hags- og mannauðs­kerfi og ýmis stuðn­ings­kerfi sem því fylgja. Alls nota um 190 stofn­anir rík­is­ins kerfið og um 15 þús­und ein­stak­lingar eru með vef­að­gang að því. Um 19 þús­und manns fá reglu­lega launa­greiðslur sem kerfið ann­ast mán­að­ar­lega.

Örút­boðið sem nú er lokið með samn­ingum við Advania náði yfir alla hýs­ingu og dagelgan rekstur á Orra kerf­inu.

Orra kerfið hefur verið mjög umdeilt. Árið 2001 skrif­aði þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, Geir H. Haarde, undir samn­ing við Skýrr um kaup á bók­halds­kerfi fyrir um millj­arð króna, þrátt fyrir að fjár­heim­ild til verk­efn­isnis á fjár­lögum væri ein­ungis 160 millj­ónir króna . Kastljós greindi frá því haustið 2012 að kostn­aður vegna kerf­is­ins væri þá þegar orðin um fjórir millj­arðar króna og að í drögum að skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um Orra, sem lekið hafði verið til frétta­skýr­ing­ar­þátt­ar­ins, hafi komi fram að ekki hafi verið staðið við gerða samn­inga. Tveir fyrrum yfir­menn hjá Skýrr áttu sæti í stýrinefnd­inni sem hafði yfir­um­sjón með vinnu rík­is­ins við útboð vegna kaupa á fjár­hags­kerfum fyrir ríkið.

Kerfið hefur einnig legið undir ámæli fyrir stór­kost­lega örygg­is­galla.

Nafni Skýrr var breytt í Advania snemma árs 2012 þegar fyr­ir­tækið var sam­einað HugurAx, EJS og nokkrum nor­rænum dótt­ur­fyr­ir­tækjum. Hýsing og rekstur kerf­is­ins hefur því alla tíð verið hjá Advania eða fyr­ir­renn­ara þess félags, sem bjó kerfið einnig til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár