Borgin stofnar sérstaka deild fyrir börn hælisleitenda

Sérstök stoð­deild ætluð börnum hæl­is­leit­enda verður starf­rækt við Háa­leit­is­skóla. Formaður skóla- og frí­stunda­ráðs segir til­komu hennar fram­för.

Skóla- og frí­stunda­ráð Reykja­víkur hefur sam­þykkt að stofnuð verði sér­stök stoð­deild í Háa­leit­is­skóla vegna mót­töku barna hæl­is­leit­enda og erlendra börn með litla skóla­göngu að baki. Börnin sem sækja munu nám við deild­ina hafa hingað til dreifst á tólf skóla víðs­vegar um borg­ina og er henni ætlað að vera úrræði til að styðja við börn inn­flytj­enda og hæl­is­leit­enda. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg.

Skúli Þór Helgason, for­maður skóla- og frí­stunda­ráðs Reykja­vík­ur­borgar, segir í sam­tali við Kjarnann að stoð­deildin sé að erlendri fyr­ir­mynd og að hún sé fram­för frá núver­andi kerfi þar sem börn inn­flytj­enda og hæl­is­leit­enda fari inn í almenna bekki án þess að vera til­búin til þess. Skúli segir að grunn­hug­myndin með stofnun deild­ar­innar sé að „mýkja lend­ing­una” fyrir börn hæl­is­leit­enda sem hingað til hafi farið inn í bekki í sínum skólum, án þess að vera til­búin til þess.

Kennari sem Kjarninn ræddi sagði að sér lit­ist vel á úrræðið, þó að hann hefði ekki kynnt sér málið ítar­lega.

Ekki verið að einangra börn hælisleitenda

Í til­kynn­ingu borg­ar­innar segir að mik­il­vægt sé að hlúa að náms- og félags­legri stöðu þess­ara barna, þar sem gera megi ráð fyrir að þau muni ekki dvelja lengi í íslensku sam­fé­lagi. Skúli þver­tekur fyrir að með stoð­deild­inni sé verið að ein­angra börn hæl­is­leit­enda eða að deildin muni koma í veg fyrir aðlögun þeirra að íslensku sam­fé­lagi. Þá sé alls ekki verið að reyna að koma í veg fyrir aðstæður líkar þeim sem komu upp í Haga­skóla nýverið, þegar nem­endur við skól­ann hófu mót­mæli gegn því að nem­anda og fjöl­skyldu hans yrði vísað úr landi.

Hann segir að þvert á móti sé deild­inni ætlað að auð­velda aðlögun barn­anna og koma í veg fyrir að þau upp­lifi sig utan­gátta þegar þau koma inn í almenna skóla­kerfið. Séu þau ekki undir það búin að taka þátt í almennu skóla­starfi þegar þau komi inn í skóla­kerfið þá geti barnið upp­lifað sig utan­gátta. Tilkoma mót­töku­deild­ar­innar geti því auð­veldað þeim að mynda tengsl þegar þau koma inn í almenna bekki.

Hann segir að stoð­deildin sé ein­ungis tíma­bundið úrræði og miðað sé við að börnin verði þar í mesta lagi í nokkra mán­uði. Í stoð­deild­inni muni þau fá stuðn­ing og kenn­arar deild­ar­innar leggja á það mat hvenær þau séu til­búin til að fara inn í venju­legan bekk. Það mat muni meðal ann­ars byggja á and­legri stöðu barns­ins og hver skóla­ganga þess hefur verið áður en þau koma til Íslands.

Þörf á fjölbreyttum úrræðum

Í skýrslu starfs­hóps skóla- og frí­stunda­sviðs um mót­töku og aðlögun barna inn­flytj­enda og hæl­is­leit­enda segir að dæmi sé um að börn í þessum hópi hafi orðið fyrir marg­þættum áföllum og að þau hafi ekki verið í skóla áður. Mis­brestur hafi verið á því að þjón­usta við þennan hóp og fjöl­skyldur þeirra sé í höndum félags­ráð­gjafa og því geti tekið langan tíma að koma málum þeirra í réttan far­veg. Nýja fyr­ir­komu­lagið tryggi hins vegar betra utan­um­hald utan um þennan hóp.

Í skýrsl­unni sem vitnað er til að ofan segir að mis­mun­andi sé bæði á milli landa og sveit­ar­fé­laga á Norð­ur­lönd­unum hvernig staðið sé að mót­töku barna inn­flytj­enda og flótta­fólks. Í stærri sveit­ar­fé­lögum og höf­uð­borgum land­anna séu mót­töku­mið­stöðvar fyrsti við­komu­staður barna sem eru nýkomin til lands­ins. Þar fari fram mat á stöðu barns­ins og á grund­velli þess mats sé ákveðið hvort að barnið fari í almennan bekk, mót­töku­deild innan skóla eða önnur úrræði. Mark­miðið sé hins vegar alltaf að sér­úr­ræði standi ekki lengi og að börnin geti hafið nám í almennum bekkjum.

Hópar kenn­ara og kennslu­ráð­gjafa frá sveit­ar­fé­lögum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem fóru til Noregs, Dan­merkur og Sví­þjóðar til að kynna sér hvernig mót­töku barna inn­flytj­enda og hæl­is­leit­enda er háttað þar skil­aði af sér til­lögum um úrbætur í mála­flokknum hér á landi. Þar er meðal ann­ars bent á að hópur erlendra barna sem hingað koma sé fjöl­breyttur og ólíkur. Því sé mik­il­vægt að sveit­ar­fé­lögin bjóði upp á mis­mun­andi námsúr­ræði. Það kemur einnig fram í erlendri skýrslu sem vitnað er til, en þar segja við­mæl­endur að nauð­syn­legt sé að úrræðin séu fjöl­breytt.

Börnin hafa dreifst á tólf skóla

Í til­kynn­ingu borg­ar­innar segir að nem­end­urnir sem komi til með að sækja nám í stoð­deild­inni komi víðs vegar að úr borg­inni og hafi hingað til dreifst á tólf skóla. Í til­kynn­ingu borg­ar­innar segir að sam­göngur barn­anna muni verða tryggðar og Háa­leit­is­skóli hafi orðið fyrir val­inu meðal ann­ars vegna þess hversu mið­svæðis hann er í Reykja­vík og vel hann liggi við sam­göngum. Þá sé íþrótta­fé­lag starf­andi við skól­ann og hús­næði frí­stunda­heim­ilis skól­ans nýt­ist vel.

Áætlað er að kostn­aður skóla- og frí­stunda­sviðs fyrir árið 2019 verði fjórtán millj­ónir og að við deild­ina muni starfa einn deild­ar­stjóri, þrír kenn­arar auk eins stuðn­ings­full­trúa.

Samkvæmt til­kynn­ingu borg­ar­innar liggur fyrir umsögn skóla­ráðs Háa­leit­is­skóla, auk þess sem for­eldra­fé­lag skól­ans og kenn­arar hafi verið jákvæðir í garð þess að deildin verði starf­rækt innan veggja skól­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár