Skoða að setja upp gjaldtöku á umferð innan höfuðborgarsvæðisins

Sigurður Ingi Jóhanns­son hefur skipað verk­efna­hóp sem kannar meðal ann­ars umferð­ar­stýr­ingu með gjald­töku. Honum er ætlað að finna fjár­mögn­un­ar­leiðir fyrir fram­kvæmdir upp á rúm­lega 100 millj­arða króna á og við höf­uð­borg­ar­svæðið.

Ein þeirra sviðs­mynda sem verið er að skoða í fram­tíð­ar­skipu­lagi sam­göngu­mála á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er að setja upp gjald­töku til að stýra umferð inn á ákveðin svæði í höf­uð­borg­inni, til dæmis inn í mið­borg hennar.

Þetta sagði Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni.

„Það er ein sviðs­myndin sem við erum að vinna eftir og munum gera í sam­starfi við sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í þeim til­gangi að ná fram þessum mark­miðum um örugg­ari og skil­virk­ari umferð en líka þessum loft­lags­mark­miðum okkar um betri loft­gæði. Við vitum að hér í Reykja­vík er illu heilli oft á tíðum bara ekki nógu gott ástand hvað varðar loft­gæði og við þurfum að gera eitt­hvað í því og umferðin er oft á tíðum stærsti þátt­ur­inn þar.“

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Í lok mars kynntir Sigurður Ingi ákvörðun um að stofna vinnu­hóp í sam­starfi rík­is­stjórnar og Samtaka sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem hefur það mark­mið að finna fjár­mögn­un­ar­leiðir fyrir stór­fram­kvæmdir í sam­göngum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Stefnt er að því að vinnu­hóp­ur­inn ljúki störfum á næstu tveimur mán­uðum.

Hann sagði í þætt­inum að í þeirri veg­ferð væri verið að horfa á norskt módel, sem fyr­ir­finnst meðal ann­ars í Osló, Björgvin, Stavangri og tveimur öðrum þétt­býl­is­kjörnum þar sem eru

sam­bæri­legir að stærð við höf­uð­borg­ar­svæðið. „Þar sem að menn hafa sett upp gjald­töku sem að hefur áhrif á hegðun fólks á ákveðin hátt. Stýrir umferð“.

[adspot]Sigurður Ingi sagði að starfs­hóp­ur­inn snú­ist ann­ars vegar um að full­kanna allar fjár­mögn­un­ar­leiðir og ná sam­stöðu milli ríkis og sveit­ar­fé­laga um þær leiðir sem eigi að fara. „Við erum að tala um fram­kvæmd­ar­pakka eða fram­kvæmdir sem eru 102-105 millj­arðar á að lág­marki 15 árum. Myndu hefj­ast 2021. Þannig að þetta eru kannski rúmir sjö millj­arðar á ári.“

Í vinn­unni er höf­uð­borg­ar­svæðið afmarkað frá Vest­ur­lands­vegi, Reykja­nes­braut og Suð­ur­lands­vegi. Allar stofn­braut­ar­fram­kvæmdir sem þar eru áætl­aðar, eru inni í þeim pakka sem um ræðir. Áætlaður kostn­aður þeirra er um 50 millj­arðar króna. Hin marg­um­rædda Borg­ar­lína er líka hluti af pakk­anum en kostn­aður við þann hluta hennar sem er þar inni er áætl­aður að minnsta kosti 42 millj­arðar króna. Auk þess eru fram­kvæmdir við fjöl­breytt­ari ferða­máta á borð við hjóla­stíga og göngu­stíga þar inni sem og umferð­stýr­ing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

umferð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár