Umboðsmaður skuldara telur nauðsynlegt að grípa til aðgerða vegna skyndilána

Sífellt fleiri lenda í vanda vegna töku skyndilána hér á landi en umsækj­endum sem óskuðu aðstoðar umboðs­manns skuld­ara vegna fjárhags­vanda fjölgaði um 6,5 pró­sent árið 2018. Mest fjölg­aði umsækj­endum á aldr­inum 18 til 29 ára.

Umsækj­endur sem óskuðu aðstoðar umboðs­manns skuld­ara vegna fjárhags­vanda fjölgaði um 6,5 pró­sent í fyrra. Alls bárust 1.397 umsóknir til emb­ætts­ins árið 2018 á móti 1.311 umsóknum árið 2017. Í til­kynn­ingu frá emb­ætt­inu segir að nauð­syn­legt sé að grípa til aðgerða í ljósi vax­andi vanda vegna skyndilána en í fyrra var hlut­fall skyndilána 22 pró­sent af heildar fjárskuld­bind­ingu þeirra ein­stak­linga sem leit­uðu til emb­ætt­is­ins.

Umboðs­maður skuld­ara leggur því til aðgerðir til að spyrna við þess­ari þróun. Þar á meðal að kannað verði að setja skorður á mark­aðs­setn­ingu skyndilán, að sett verði á fót mið­lægur skulda­grunnur og að tryggð verði fjár­mála­fræðsla barna og ung­menna.

Vaxandi fjöldi ungs fólks í vanda

Umboðs­maður skuld­ara skil­greinir skyndilán sem lán sem tekin eru á vefsíðum eða með smáfor­ritum í gegnum farsíma. Lánin eiga það sam­eig­in­legt að ein­falt er að sækja um þau og þau eru afgreidd afar skjótt. Bæði getur verið um að ræða lán sem tekið er sam­hliða kaupum á vöru eða þjónustu en einnig lán þar sem ákveðin fjárhæð er lögð inn á reikn­ing lántaka.

Samkvæmt emb­ætt­inu eiga þeir ein­stak­lingar sem leita sér aðstoðar það sam­eig­in­legt að hafa tekið fjölda skyndilána á stuttum tíma og komið sér í töluverðar skuldir. Á árinu 2018 var hlut­fall skyndilána 22 pró­sent af heildar fjárskuld­bind­ingu þess­ara ein­stak­linga.

Þá fjölg­aði mest umsækj­endum sem voru á aldr­inum 18 til 29 ára á milli ára eða úr 23 pró­sentum árið 2017 í 27,3 pró­sent árið 2018. Embættið segir það veru­legt áhyggju­efni að enn skuli fjölga í hópi umsækj­enda á þessum aldri. Að mati umboðs­manns skuld­ara er því mik­il­vægt að kannað verði hvort hægt sé að setja skorður við því hvernig þessi þjónusta er mark­aðs­sett. En gagn­rýnt hefur verið aug­lýs­ingum skyndilána er beint að miklum mæli að yngri kyn­slóð­inni með áherslu á auð­velt aðgengi. Embættið bendir á að í Noregi hafa til dæmis verið settar strangar reglur um hvernig auglýsa má þjónustu sem þessa.[adspot]

Miðlæg skuldaskrá

Í til­kynn­ing­unni segir að ljóst sé að ein­stak­lingar geti auð­veld­lega tekið mörg lán á stuttum tíma hjá ólíkum þjónustu­að­ilum og þannig skuld­sett sig langt umfram greiðslu­getu. Því telur umboðs­maður skuld­ara að með því skrá skulda­stöðu ein­stak­linga væri hægt að koma í veg fyrir að sami ein­stak­lingur taki mörg lán hjá ólíkum aðilum með ofan­greindum afleið­ingum. Með aðgangi að slíkri mið­lægri skrá gætu þeir sem veita skyndilán betur metið lánshæfi umsækj­enda eins og kveðið er á um í lögum um neyt­endalán. Slík skráning myndi auk þessi veita yfirsýn yfir umfang útlána af þessu tagi sem ekki er fyrir hendi í dag.

Jafn­framt eru þeir sem taka skyndilán í meiri áhættu að lenda í alvar­legum greiðslu­erf­ið­leikum. Því telur umboðs­maður skuld­ara að það þurfi að tryggja að ein­stak­lingar hafi for­sendur til að taka upplýstar ákvarð­anir í fjármálum. Því þurfi mennta- og vel­ferð­ar­kerfis, fjármálafyr­ir­tækja og fleiri aðila að vinna saman til að tryggja sam­ræmda fjármálafræðslu barna og ung­menna og að sú fræðsla þurfi að byrja snemma. „Sam­eig­in­legt mark­mið okkar ætti að vera að koma í veg fyrir að ungt fólk hefji sitt fjárhags­lega sjálfstæða líf með neyslu­skuldir á bak­inu.“ segir í til­kynn­ing­unni.

Skoðað verði hvort að tak­marka eigi beina og ágenga mark­aðs­setn­ingu

[links]Starfs­hópur um end­ur­skoðun á starf­semi smá­lána­fyr­ir­tækja skil­aði ferða­mála-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra skýrslu og tólf til­lögum að aðgerðum í lok febr­úar. Starfs­hóp­ur­inn taldi ekki þörf á að lána­starf­semi yrði gerð leyf­is­skyld þar sem það gæti hamlað nýsköpun og dregið úr sam­keppni. Hópurinn lagði þó til aðgerðir til að vernda neyt­endur gegn ólög­legri smá­lána­starf­semi.

Í skýrslu starfs­hóps­ins segir að mörg smá­lána­fyr­ir­tækja, sem lagt hafa starf­semi sína niður hér á landi, þjón­usta nú íslenskar neyt­endum í gegnum erlenda lög­að­ila. Í skýrsl­unni segir að ætla megi að það fyr­ir­komu­lag megi rekja til ófrá­víkj­an­legra reglna um hámark árlegrar hlut­falls­tölu kostn­aðar og sé því enn ein leið­in, af mörg­um, til að kom­ast fram hjá fyrr­greindu kostn­að­ar­þaki. Starfs­hóp­ur­inn lagði því til að skerpt verði á því hvers lands lög gilda þegar smá­lán eru veitt yfir landa­mæri. Hópurinn lagði auk þess til að gerðar verði kröfur um aukna upp­lýs­inga­gjöf lán­veit­enda sem ekki eru eft­ir­lits­skyldir til eft­ir­lits­að­ila. Jafn­framt verði lán­veit­end­um sem ekki eru leyf­is­skyldir gert óheim­ilt að veita neyt­enda­lán nema þeir hafi áður skráð starf­sem­ina með við­eig­andi hætti hjá eft­ir­lits­að­ila.

Starfs­hóp­ur­inn lagði einnig til að skoðað verði hvort að ástæða sé til að birta neyt­enda alltaf nið­ur­stöðu lán­hæf­is­mats áður en hann tekur lán þannig að hann geri sér betur grein fyrir áhætt­unni sem ­fylgir lán­tök­unni. Auk þess verði eft­ir­lits­að­ilum með inn­heimtu­fyr­ir­tækjum gert að kanna sér­stak­lega hvort neyt­endum séu veittar rangar eða vill­andi upp­lýs­ingar sem séu mik­il­vægar til að unnt sé að taka afstöðu til krafna.

Hópurinn lagði einnig til líkt og umboðs­maður skuld­ara að skoðað yrði hvort að ástæða sé til að tak­marka beina og ágenga mark­aðs­setn­ingu á fjar­skipta­miðl­um. Að auki verði aukin áhersla lögð á kennslu fjár­málæsis í grunn­skólum og fram­halds­skólum. Í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu segir að af hálfu atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytis verður unnið áfram með til­lög­ur starfs­hóps­ins í sam­ráði við þar til bæra aðila og stofn­an­ir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

lán

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár