Íslendingar hrifnari af verðtryggðum lánum

Á síð­ustu fimm árum hafa að jafn­aði 71 pró­sent nýrra íbúða­lána verið verð­tryggð. Lánaðir voru 421 millj­arðar til heim­il­anna til íbúða­kaupa árið 2017.

Að jafn­aði hafa 71 pró­sent nýrra vergra íbúða­lána verið verð­tryggð frá árs­byrjun 2013 til árs­byrjun 2018. Verg íbúða­lán eru þau lán sem eru veitt í hverjum mán­uði án til­lits til umfram- eða upp­greiðslna á eldri lánum. Svo virð­ist sem íslensk heim­ili kjósi frekar að taka verð­tryggð en óverð­tryggð íbúða­lán og hafa gert það und­an­farin ár.

[links]Óverð­tryggð íbúða­lán hafa nú verið í boði hér á landi hátt í ára­tug og aukið úrval á íbúða­lána­mark­aði til muna en erf­ið­ara getur verið fyrir tekju­lægri heim­ili að taka þau lán. Í heild voru verg ný íbúða­lán til heim­il­anna 421 millj­arðar árið 2017 og þar af voru 129 millj­arðar óverð­tryggðra lána.

Um mitt ár 2015 var hlut­deild óverð­tryggðra lána áber­andi mikil sem má ef til vill setja í sam­hengi við þá stað­reynd að um það leyti hækk­uðu verð­bólgu­vænt­ingar og vextir óverð­tryggðra lána tíma­bundið. Árið 2016 var hlut­deild verð­tryggðra lána áber­andi mikil en þá var verð­bólga mjög lág og verð­bólgu­vænt­ingar fóru lækk­andi. Í febr­úar síð­ast­liðnum var hlut­deild verð­tryggðra lána 67 pró­sent. Frá þessu er greint í mán­að­ar­legri skýrslu Íbúða­lána­sjóðs um hús­næð­is­mál.

Jafnara hlutfall í hreinum nýjum lánum

Ef skoðað eru hreinu íbúða­lánin þ.e. ný útlán að frá­dregnum umfram- og upp­greiðslu­lánum þá voru 51,9 pró­sent hreinna nýrra lána óverð­tryggð fyrstu átta mán­uði árs­ins. Til sam­an­burðar voru óverð­tryggð lán 37 pró­sent allra hreinna lána til heim­ila árið 2017. Frá árinu 2013 til 1 ágúst 2018 þá er að jafn­aði hlut­fallið á milli óverð­tryggðra og verð­tryggðra íbúða­lána 56,2 pró­sent á móti 43,8 pró­sent óverð­tryggðra. Sem þýðir að hlut­fallið á milli verð­tryggðra og óverð­tryggðra hreinna nýrra lána sé nokkuð jafnt í heild­ina á síð­ustu 5 árum. Hrein ný lán voru 108,3 millj­arður króna á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins og þar af voru 56,2 millj­arðar króna óverð­tryggð lán og 52,1 millj­arður króna verð­tryggð.

Verðtryggð lán algengari

Ef borin er saman þró­unin á milli hlut­fall­anna í hreinum lánum og vergum lánum þá má sjá að á síð­ustu árum hefur þró­unin verið mun sveiflu­kennd­ari milli verð­tryggrða og óverð­tryggðra lána í hreinu lán­unum heldur en í vergum lán­unum. Þó hafa verð­tryggð lán í heild­ina verið algeng­ari en óverð­tryggð á síð­ustu fimm árum, bæði ef reiknað er með umfram- og upp­greiðslum og án þeirra.

Lífeyrissjóðirnir bjóða betri kjör

Í öðru árs­fjórð­ungs­riti Pen­inga­mála 2018 var greint frá því hvernig líf­eyr­is­sjóð­irnir leiða vöxt­inn í útlánum til heim­ila. Líf­eyr­is­sjóðir voru 17,5 pró­sent af útlánum til heim­ila á öðrum fjórð­ung árs­ins. Leið­rétt fyrir áhrifum skulda­lækk­un­ar­að­gerða stjórn­valda stækk­að­i ­stofn útlána lána­kerfis til heim­ila um 5,7 pró­sent á fyrsta fjórð­ungi árs­ins. Er það lít­il­lega meiri aukn­ing en var á fjórð­ung­un­um t­veimur þar á und­an.

Líf­eyr­is­sjóðir bjóða nú betri kjör en bankar á hús­næð­is­lánum til heim­ila og má því gera ráð fyrir því að það sé grund­vallar­á­stæða þess að fólk leitar frekar til þeirra en banka þegar það kemur að hús­næð­is­lánum. Hjá flestum líf­eyr­is­sjóðum lands­ins eru vextir á óverð­tryggð­u­m lánum tölu­vert lægri en hjá bönk­un­um, sem þó lána fyrir stærri hluta kaup­verðs­ins, eða allt að 85 pró­sent, í flestum til­vik­um. Ekki bjóða þó allir líf­eyr­is­sjóðir upp á óverð­tryggð lán og fer það eftir líf­eyr­is­sjóðum hvort þeir bjóði upp á fasta vexti eða breyti­lega vexti.

Erfiðara að taka óverðtryggð lán

Það getur verið erf­ið­leikum bundið fyrir tekju­lægri heim­ili og ungt fólk að taka óverð­tryggð lán þar sem greiðslu­byrðin er tölu­vert þyngri í upp­hafi, vaxta­hækk­anir hafa einnig meiri skamm­tíma­á­hrif á greiðslu­byrð­ina og því eru kröfur um greiðslu­hæfi hærri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

íbúðalán

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár