Ungt og tekjulágt fólk fær áfram að taka verstu lánin

Jafn­greiðslu­lán til fjöru­tíu ára, svokölluð Íslands­lán, eru versta birt­ing­ar­mynd verð­trygg­ingar á Íslandi að mati sér­fræð­inga­hóps um afnám verð­trygg­ingar. Greiðslu­fer­ill slíkra lána veldur hættu á yfir­veð­setn­ingu á fyrri hluta láns­tím­ans þegar verð­bætur fara á höf­uð­stól lána, auk þess sem heild­ar­vaxta­kostn­aður lán­taka verður umtals­vert hærri en ella. Eigna­myndun er hæg­ari og lík­urnar á nei­kvæðu eigin fé lán­taka aukast. Lán af þessu tagi þykja almennt óæski­leg með til­liti til hags­muna neyt­enda og full­yrða má að neyt­endur séu ekki nægi­lega með­vit­aðir um þá áhættu sem þau bera með sér, eins og segir í grein­ar­gerð með frum­varpi um breyt­ingar á lögum um vexti og verð­trygg­ingu, sem Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra lagði fram í vik­unni.

Mark­miðið með því að hætta að lána öllum sem það vilja verð­tryggt jafn­greiðslu­lán til 40 ára er að stemma stigu við þeirri hættu sem felst í lán­unum, líkt og rakið er hér að framan, en líka til að auka fjár­mála­stöð­ug­leika, efla virkni stýri­vaxta Seðla­bank­ans og byggja undir jafn­vægi í hag­kerf­inu.

Engu að síður er gert ráð fyrir því að ungt fólk og tekju­lágt fólk geti ennþá tekið þessi lán eftir að breyt­ing­arnar hafa verið gerðar. Líkt og Kjarninn hefur greint frá munu allt að 75% lán­tak­enda áfram geta tekið Íslands­lánin, þrátt fyrir að boðað hafi verið að frum­varpið væri stórt skref til að draga veru­lega úr vægi verð­trygg­ingar. Sam­kvæmt frum­varp­inu verður óheim­ilt að veita neyt­enda­lán til lengri tíma en 25 ára sé það verð­tryggt og með jafn­greiðslu­fyr­ir­komu­lagi. Und­an­þegið frá þess­ari „almennu reglu“ verður fólk undir 45 ára aldri og fólk með 3,5 millj­ónir eða minna í árs­tekjur, sex millj­ónir fyrir pör. Einnig verður fólk með lágt veð­setn­ing­ar­hlut­fall und­an­þegið, en draga má í efa að margt slíkt fólk sé með Íslands­lán. Undir þetta falla á bil­inu 40-75% allra lán­tak­enda.

Það þýðir að á bil­inu 25-60% verður bannað að taka 40 ára verð­tryggð jafn­greiðslu­lán.

Sitja uppi með verðtrygginguna

Ástæðan fyrir því að ungt og tekju­lágt fólk er sett út fyrir sviga er að grein­ingar benda til þess að það muni ekki geta staðið undir auk­inni greiðslu­byrði sem myndi fylgja styttri lánum eða óverð­tryggðum lánum. Það var raunar orðið ljóst fyrir löngu síðan. Bjarni sagði frá því á þingi í febr­úar síð­ast­liðnum að alla­vega 40% þeirra sem taka Íslands­lán myndu ekki stand­ast greiðslu­mat fyrir styttri lán. Þetta er fólkið sem hefur minnst á milli hand­anna og myndi detta út af hús­næð­is­mark­aði ef það gæti ekki tekið áfram Íslands­lán.

Bjarni sagði þá að ef 40 ára lánin yrðu afnumin gæti þurft að auka stuðn­ing við þennan hóp með ein­hverjum hætti, og hann spurði hvort það væri æski­legt. Sér­fræði­hóp­ur­inn sem rík­is­stjórnin skip­aði hafði líka sagt frá þessu og varað við. „Því þarf að koma til móts við tekju­lægri ein­stak­linga og fyrstu kaup­endur með aðgerðum eins og betur skil­greindum vaxta­bótum, skatta­af­slætti og úttekt sér­eign­ar­líf­eyr­is­sparn­aðar.“ Hins vegar er við­ur­kennt í frum­varp­inu um fyrstu fast­eign, sem lagt var fram sam­hliða verð­trygg­ing­ar­frum­varp­inu, að tekju­lága fólkið væri mun ólík­legra til þess að eiga sér­eign­ar­líf­eyr­is­sparnað. Ekki hefur verið aukið við vaxta­bóta­kerfið eins og lagt var til heldur.

Það er líka við­ur­kennt í grein­ar­gerð­inni að á móti þeim góðu áhrifum sem verði fyrir lán­tak­endur af því að eign­ast hraðar og borga minna í vexti með styttri og óverð­tryggðum lánum, þá komi nei­kvæð áhrif. „Greiðslu­byrði óverð­tryggðra lána er tölu­vert þyngri í upp­hafi, vaxta­hækk­anir hafa meiri skamm­tíma­á­hrif á greiðslu­byrði og kröfur um greiðslu­hæfi aukast og því erf­ið­leikum bundið fyrir tekju­lægri heim­ili að kom­ast út á fast­eigna­mark­að­inn.“

Í frum­varpi um fyrstu fast­eign, sem lagt var fram sam­hliða breyt­ingum á verð­trygg­ingu, er að finna hvata til þess að ungt fólk taki frekar óverð­tryggð lán, með því að það geti notað sér­eigna­sparnað sinn sem hluta af afborgun, þannig að afborg­anir lík­ist því sem væri með verð­tryggð lán. Hins vegar er erf­ið­ara að kom­ast í gegnum greiðslu­mat með óverð­tryggð lán og því óvíst hvort tekju­lágt fólk gæti not­fært sér það.

45 ára og eldri falla margir undir undanþágu líka

Meðal lán­tak­enda eru ein­hleypir ein­stak­lingar yngri en 35 ára með hæst veð­setn­ing­ar­hlut­fall. Þeir ein­stak­lingar skulda að með­al­tali 86% í hús­næði sínu. Með­al­skuldin miðað við upp­lýs­ingar í grein­ar­gerð­inni er því rúm­lega 15 millj­ónir króna hjá þessum hópi, en með­al­heild­ar­tekj­urnar 5,2 millj­ónir.

Pör sem eiga hús­næði og eru yngri en 35 ára skulda að með­al­tali 77% í hús­næð­inu. Þau skulda að með­al­tali tæpa 21 milljón og hafa 11 millj­ónir í með­al­heild­ar­tekjur.

Veð­setn­ing­ar­hlut­fallið lækkar eftir því sem fólk eld­ist, og hjá þeim sem eru 45 ára og eldri er með­al­veð­setn­ing­ar­hlut­fallið komið niður í 43% hjá pörum og 52% hjá ein­stak­lingum. Þannig fellur fólk, sem ekki fellur undir und­an­þágur vegna ald­urs, samt margt undir und­an­þágur vegna veð­setn­ing­ar­hlut­falls undir 50%.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár