Lífeyrissjóðir leiða vöxtinn í útlánum til heimila

Líf­eyr­is­sjóðir eru nú með 17,5 pró­sent af útlánum til heim­ila.

Leiðrétt fyrir áhrifum skulda­lækk­un­ar­að­gerða stjórn­valda stækk­aði stofn útlána lána­kerfis til heim­ila um 5,7 pró­sent á fyrsta fjórð­ungi árs­ins, að því er fram kemur í Pen­inga­málum Seðla­banka Íslands.

Er það lít­il­lega meiri aukn­ing en var á fjórð­ung­unum tveimur þar á undan.

Útlán líf­eyr­is­sjóða vega enn þyngst í aukn­ing­unni og hlut­deild þeirra á lána­mark­aði vex því áfram. Nema útlán þeirra nú um 17,5% af heild­ar­út­lána­stofni lána­kerf­is­ins til heim­ila sam­an­borið við 9,5% í árs­byrjun 2016. ´

Líf­eyr­is­sjóðir bjóða nú betri kjör en bankar á hús­næð­is­lánum til heim­ila, og má gera ráð fyrir að það sé grund­vallar­á­stæða þess að fólk leitar frekar til þeirra en banka þegar kemur að hús­næð­is­lánum.

Hlutfall sjóð­fé­laga­lána af hreinni eign líf­eyr­is­sjóða hefur því hækkað nokkuð frá því að það var í sögu­legri lægð undir lok árs 2015 og er nú nálægt með­al­tali und­an­far­inna tutt­ugu ára.

Á móti auknum útlánum líf­eyr­is­sjóða og inn­láns­stofn­ana hafa útlán Íbúða­lána­sjóðs áfram dreg­ist saman og er hlut­deild hans á lána­mark­aði nú svipuð og hlut­deild líf­eyr­is­sjóða í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár