Gildi setur 60 milljóna króna hámark á lánsupphæð

Einn stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins hefur þrengt lána­skil­yrði sín og set þak á þá upp­hæð sem hann lánar til íbúð­ar­kaupa. Stærstu sjóðir lands­ins hafa allir reynt að draga úr vexti lána til sjóðs­fé­laga síð­ustu miss­erin.

Stjórn Gildis líf­eyr­is­sjóðs ákvað í síð­asta mán­uði að setja 60 milljón króna hámark á sjóðs­fé­lags­lán. Áður var ekk­ert þak á þeirri upp­hæð sem sjóð­ur­inn lán­aði til sjóðs­fé­laga.

Um er að ræða enn eitt skrefið sem þessi þriðji stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins hefur stigið til að hemja útlán sín til íbúð­ar­kaupa. Stórt skref var stigið í þá átt í upp­hafi árs í fyrra þegar Gildi ákvað að þrengja lána­skil­yrði sín umtals­vert. Þá var meðal ann­ars veð­hlut­fall sjóðs­fé­lags­lána lækkað niður í 70 pró­sent, og fylgdi Gildi þar með í spor hinna tveggja stóru líf­eyr­is­sjóða lands­ins, Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins (LSR) og Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna.

Ástæðan fyrir þessum aðgerðum er sú að sjóðs­fé­laga­lán Gildis hafa auk­ist mjög skarpt á und­an­förnum árum. Í árs­lok 2015 voru þau 2,2 millj­arðar króna en höfðu tíf­ald­ast í lok árs 2018 og voru orðin 22 millj­arðar króna. Þar af bætt­ust 9,2 millj­arðar króna, eða rétt tæpur helm­ingur við­bót­ar­inn­ar, við á árinu 2018. Fjöldi veittra lána jókst líka mjög hratt og fór úr því að vera 230 árið 2015 í að vera 1.366 allt árið 2018.

[adspot]Eftir að lána­skil­yrðin voru þrengd tókst Gildi að hemja frek­ari útlána­vöxt. Á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins 2019 lán­aði Gildi 17,2 millj­arða króna í sjóðs­fé­laga­lán, sem er 200 millj­ónum krónum minna en sjóð­ur­inn gerði á sama tíma­bili árið áður. Auk þess hefur hann veitt 12 færri lán á þessu tíma­bili í fyrra en á árinu 2018, eða alls 1.072 tals­ins.

Lægstu vextir sem Gildi býður nú eru á verð­tryggðum breyti­legum lán­um, en þeir eru 2,46 pró­sent ef við­kom­andi tekur 70 pró­sent lán. Sjö líf­eyr­is­sjóðir bjóða sínum sjóðs­fé­lögum upp á betri vexti en það. Lægstu vext­irnir sem eru í boði í þeim lána­flokki eru hjá Birtu, 1,64 pró­sent, en þar er hámarks­lánið reyndar 65 pró­sent af kaup­verð­i.

Samhliða því að hámark var sett á útlán hjá Gildi var tekin ákvörðun um að lækka vexti á óverð­tryggðum grunn-sjóðs­fé­laga­lánum úr 5,2 pró­sent í 5,1 pró­sent, en þau eru veitt upp að 60 pró­sent veð­hlut­falli. Í ljósi þess að verð­bólga mælist nú ein­ungis tvö pró­sent er staðan þó þannig að verð­tryggðu lánin sem sjóð­ur­inn veitir eru hag­stæð­ari eins og staðan er í dag. 

Verzlunarmenn hafa haldið vöxtum óbreyttum í fimm mán­uði

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, næst stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins, hefur líka gripið til aðgerða til að hamla lán­töku hjá sér. Hann hefur nú haldið breyti­legum verð­tryggðum vöxtum sínum óbreyttum frá því í ágúst­byrj­un, eða í fimm mán­uði. Þá var ákveðið að breyta því hvernig vext­irnir væru ákveðnir og fallið frá því að láta ávöxtun ákveð­ins skulda­bréfa­flokks ráða þeirri för. Þess í stað er ein­fald­lega um ákvörðum stjórnar líf­eyr­is­sjóðs­ins að ræða, en ekki hefur verið greint frá því hvort hún byggi á ein­hverju öðru en ein­ungis vilja þeirra sem í stjórn­inni sitja.

Frá því í nóv­em­ber 2018 og fram í maí 2019 lækk­uðu breyti­legir verð­tryggðir vextir Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna úr 2,62 pró­sent í 2,06 pró­sent, eða um 0,56 pró­sentu­stig. Þá tók stjórn sjóðs­ins ákvörðun um að frysta þá fram í ágúst og hækka þá svo upp í 2,26 pró­sent, þar sem þeir hafa verið síð­an.

Í októ­ber ákvað sjóð­ur­inn svo að breyta lána­reglum sínum þannig að skil­yrði fyrir lán­töku voru veru­lega þrengd og hámarks­fjár­hæð lána var lækkuð um tíu millj­ónir króna. Auk þess var ákveðið að hætta að lána nýjum lán­tak­endum verð­­tryggð lán á breyt­i­­legum vöxt­um, en þau hafa verið einna hag­­kvæm­­ustu lánin sem í boði hafa verið á und­an­­förnum árum.

Þetta var gert með þeim rökum að sjóð­ur­inn væri komin út fyrir þau þol­mörk sem hann ræður við að lána til íbúð­ar­kaupa. Frá haustinu 2015 og fram í októ­ber­byrjun 2019 juk­ust sjóðs­fé­lags­lán úr því að vera sex pró­sent af heild­ar­eignum sjóðs­ins í að verða 13 pró­sent.

Alls námu sjóðs­­fé­laga­lánin um 107 millj­­örðum króna í byrjun októ­ber 2019 og um 25 millj­­arðar króna til við­­bótar voru sagðir vera að bæt­­ast við þá tölu þegar tekið væri til­­lit til fyr­ir­liggj­andi umsókna um end­­ur­fjár­­­mögn­un.

Það voru ein­fald­lega ekki til lausir pen­ingar til að halda áfram á sömu braut og líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna hefði þurft að losa um aðrar eignir að óbreyttu til að þjón­usta eft­ir­spurn­ina eftir íbúða­lán­um. Það var stjórn hans ekki til­búin að gera.

Lífeyrissjóðir lána meira en bankar

Frá því að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins komu af fullum krafti inn á hús­næð­is­lána­mark­að­inn að nýju haustið 2015 hafa útlán þeirra til hús­næð­is­kaupa næstum þre­fald­ast. Þau voru 171,5 millj­arðar króna í októ­ber 2015 en í sama mán­uði fjórum árum síðar voru þau orðin 497,5 millj­arðar króna.

Hjá inn­láns­stofn­un­um, bönk­unum og spari­sjóð­um, hefur vöxt­ur­inn verið mun hæg­ari. Þar eru lang­fyr­ir­ferða­mestir stóru við­skipta­bank­arnir þrír: Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion banki.

Frá októ­ber 2015 og fram til sama mán­aðar í fyrra juk­ust útlán bank­anna til hús­næð­is­kaupa úr 733 millj­örðum króna í 960 millj­arða króna, að teknu til­liti til sölu Arion banka á 50 millj­arða lána­safni til Íbúða­lána­sjóðs í haust.

Upp­hæð íbúða­lána sem eru í eigu inn­láns­stofn­ana, þ.e. banka og spari­sjóða, er því 31 pró­sent hærri í fyrra­haust en hún var fjórum árum áður.

Aukning þeirra hjá inn­láns­stofn­unum var í krónum talið er 227 millj­arðar króna. Á sama tíma hefur umfang lána líf­eyr­is­sjóða auk­ist um 326 millj­arða króna, eða 99 millj­örðum krónum meira en hjá bönkum og spari­sjóð­um.

Til við­bótar við þessar tvær teg­undir lán­veit­endenda þá hefur Íbúða­lána­sjóður líka lánað hús­næð­is­lán, en ekki á sam­keppn­is­hæfum kjör­u­m.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

íbúðalán

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár