Lánið þitt: Munurinn á verðtryggðum og óverðtryggðum lánum

Það eru fá umræðu­efni á Íslandi eld­fimari en verð­trygg­ingin. Stjórn­mála­flokkar hafa haft það að stefnu sinni að afnema hana, með mis­heppn­uðum árangri til þessa, og það er mat margra að verð­trygg­ing sé ein helsta rót efna­hags­vanda þjóð­ar­innar. Hér verður ekki tekin afstaða til þess­ara deilu­mála, heldur spurt hvaða lána­form hentar lán­tak­endum við íbúða­kaup – Eitt form hentar ekki öllum. Verð­tryggt eða óverð­tryggt, það er spurn­ingin.

Þessi grein er hluti af grein­ar­flokki um þau atriði sem varða hús­næð­is­lána­töku og önnur lán á Íslandi. Áður hefur verið fjallað um vaxta­kjör lán­anna og mis­mun­andi lána­form.

Óverðtryggð lán

Hægt er að velja um tvenns konar lána­form, hvort sem valið er að taka verð­tryggt lán eða óverð­tryggt. Lán eru greidd ýmist með jöfnum afborg­unum eða jöfnum greiðslum.


Með jöfnum afborg­unum á óverð­tryggðu láni er sama upp­hæð greidd af höf­uð­stól láns­ins í hverjum mán­uði. Vextir eru greiddir af eft­ir­stöðvum. Vaxta­greiðslur eru því háar í upp­hafi þegar höf­uð­stóll er hár, og þar með er heild­ar­greiðsla á mán­uði há, en lækkar ört eftir því sem höf­uð­stóll­inn lækkar.


Með jafn­greiðslum af óverð­tryggðu láni er heild­ar­greiðslan á mán­uði alltaf sú sama. Í upp­hafi fer stærstur hluti upp­hæð­ar­innar í að greiða vexti en það snýst við þegar líður á láns­tím­ann, og meira er greitt af höf­uð­stólnum.

Verðtryggð lán

Íbúðalán íslenskra heim­ila eru í miklum meiri­hluta verð­tryggð. Það þýðir að lánin hækka ef verð­bólgan hækkar. Þetta vita Íslend­ingar ágæt­lega.


Ef verð­tryggða lánið er með jöfnum afborg­unum þá eru greiddir raun­vextir og afborg­anir af höf­uð­stól. Munurinn á verð­tryggðu og óverð­tryggðu láni með jöfnum afborg­unum er sá að höf­uð­stóll verð­tryggða láns­ins hækkar í takt við verð­bólg­una. Afborg­unin er því ekki alltaf sú sama, hún fer hækk­andi með verð­bólg­unni. Þetta leiðir til þess að greiðslu­byrðin er lág í upp­hafi.


Flest hús­næð­is­lán íslenskra heim­ila eru verð­tryggð jafn­greiðslu­lán. Ef verð­bólgan væri engin þá væri sama heild­ar­upp­hæð greidd á mán­uði. En árlega er höf­uð­stóll láns­ins end­ur­reikn­aður með til­liti til verð­bólg­unnar – og upp­hæð sem nemur verð­bólgu bætt við lánið.

Hverju munar þá?

Lántaki óverð­tryggðs láns veit hvað hann borgar af lán­inu. Lántaki verð­tryggðs láns veit það hins vegar ekki, því hann veit ekki nákvæm­lega hvernig verð­bólgan mun hafa áhrif á lán hans til hækk­unar – og þar með til hækk­unar á afborgun og heild­ar­greiðslu.


Sé fólk í stakk búið til að borga háar greiðslur af lán­inu í upp­hafi, þá getur lán með jöfnum afborg­unum verið hent­ugri kostur. Þannig er höf­uð­stóll­inn greiddur hraðar niður, greiðslu­byrði er mikil fyrst en fer lækk­andi. Sé lánið óverð­tryggt þá borg­ast höf­uð­stóll láns­ins hratt niður, og eigna­mynd­unin er því hröð.


Sögulega þá hafa raun­vaxta­kjör á verð­tryggðum lánum verið hag­stæð­ari en á óverð­tyggðum lánum. Eigna­myndun í hús­næði hefur aftur á móti verið hæg­ari með verð­tryggðum jafn­greiðslu­lánum, þar sem svo hátt hlut­fall greiðsl­unnar fer í vexti í upp­hafi og verð­trygg­ingin bæt­ist við lánið umfram greiðslur í fyrstu. Verð­tryggt jafn­greiðslu­lán getur hentað þeim sem ekki ráða við eins háar end­ur­greiðslur í upp­hafi og í til­felli óverð­tryggðra lána með jöfnum afborg­unum. Þá getur það einnig verið hentað að taka verð­tryggt jafn­greiðslu­lán, t.d. af þeirri ástæðu að vaxta­kjör eru hag­stæð­ari, en greiða inn á lánið eins og um óverð­tryggt lán sé að ræða. Með því móti lækkar höf­uð­stóll­inn strax í upp­hafi, rétt eins ef um væri að ræða óverð­tryggt lán með jöfnum afborg­unum.


Umfjöllun Kjarnans og Stofn­unar um fjár­mála­læsi byggir helst á skýrslu frá 2010 um verð­trygg­ingu skuld­bind­inga, unnin af Má Wolfgang Mixa að beiðni VR, fyrir milli­göngu Stofn­unar um fjár­mála­læsi. Skýrsl­una má lesa hér.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár