Lánið þitt: Munurinn á nafn- og raunvöxtum

Kaup á fast­eign er fyrir okkur flest ein­hver stærsta fjár­hags­lega ákvörðun sem við tökum á lífs­leið­inni. Kaupunum fylgir lán­taka upp á margar millj­ónir króna, sem við skuld­bindum okkur til að greiða til baka á næstu árum eða ára­tugum. Þegar svo háar fjár­hæðir eru í spil­unum er best að vita sem mest um hvað málið snýst. Lána­formin sem bjóð­ast eru mis­mun­andi og eitt lána­form hentar ekki öllum. Það sem hentar einum lán­tak­anda getur verið ómögu­legt fyrir annan.

Þessi grein er hluti af grein­ar­flokki um þau atriði sem varða hús­næð­is­lána­töku og önnur lán á Íslandi.

Nafnvextir og raunvextir

Af þeirri ástæðu einni að lán­veit­and­inn vill bera eitt­hvað úr bítum við að lána þér pen­inga, þá bera íbúða­lán vexti. Vextir eru það gjald sem við borgum fyrir að fá pen­inga að láni.


Þegar við tökum lán eru okkur sýndir nafn­vext­irnir sem lánið ber. Bankinn ákveður vext­ina og lítur til þess hvað hann telur ásætt­an­lega ávöxtun umfram verð­bólgu í land­inu. Nafn­vext­irnir inni­bera þannig vænt­ingar bank­ans um verð­bólgu­þróun auk þess sem bank­inn tekur mið af þeim vaxta­kjörum sem hann fjár­magnar sig á. Hann vill að útláns­vext­irnir, það eru vextir á útlánum bank­ans, séu hærri en inn­láns­vext­irnir.


Ef vext­irnir eru fastir, til dæmis til þriggja eða fimm ára, þá leggur bank­inn einnig á sér­stakt óvissu­á­lag.


Nafn­vextir = raun­vextir + verð­bólga + óvissu­á­lag


Með raun­vöxtum er átt við vexti umfram verð­bólgu. Raun­vextir eru því lægri en nafn­vextir, eða sem nemur verð­bólg­unni.


Raun­vextir = Nafn­vextir - verð­bólga




Vaxta­kjör eru lægri á verð­tryggðum lánum en óverð­tryggðum vegna þess að í vaxta­kjörum verð­tryggðra lána er ekki tekið til­lit til verð­bólg­unnar. Verð­trygg­ingin er í raun við­bót­ar­vextir, jafn háir og verð­bólgan, sem bæt­ast aftan við höf­uð­stól­inn. Bankinn þarf ekki að reikna óvissu­á­lag, þar sem öll verð­bólgu­á­hætta liggur hjá lán­tak­anum. Ef verð­bólgan í land­inu er t.d 5 pró­sent þá er vaxta­á­lag láns­ins 8,5 pró­sent.

Fastir eða breytilegir vextir?

Bank­arnir bjóða upp á lán með föstum vöxtum til ýmist þriggja eða fimm ára. Það þýðir ein­fald­lega að vext­irnir munu ekki breyt­ast á lán­inu þínu á þeim tíma, jafn­vel þótt verð­bólgan í land­inu auk­ist eða minnki. Ef vext­irnir eru breyti­legir þá áskilur bank­inn sér rétt til þess að breyta vaxta­kjör­unum milli mán­aða.

Og hver er þá munurinn?

Hentar þér að borga breyti­lega eða fasta vexti í upp­hafi? Það fer til dæmis eftir því hvort þú teljir verð­bólg­una aukast eða minnka á næstu miss­erum. Ef það er lík­legt að verð­bólgan eykst, þá gæti verið snið­ugt að festa vaxta­kjörin. Ef vext­irnir eru breyti­legir þá munu vext­irnir hækka sam­hliða auk­inni verð­bólgu.


Það er ekki auð­veld að spá fyrir um verð­bólg­una, meira að segja fyrir lang­lærða sér­fræð­inga. Þeir sem tóku hús­næð­is­lán fyrir örfáum árum með föstum vöxtum hafa til dæmis greitt hærri vexti en ella, vegna þess að verð­bólgan hefur verið lág að und­an­förnu. Með öðrum orðum eru breyti­legu vext­irnir lægri en þegar vext­irnir voru festir á láni sumra lán­tak­enda.


Kostir við að festa nafn­vexti er stöðugri greiðslu­byrði milli mán­aða. Ókost­ur­inn getur verið hærri vaxta­greiðslur að jafn­aði, vegna áhættu­á­lags­ins, auk þess sem vext­irnir gætu verið of háir, lækki verð­bólgan.


Breyti­legir nafn­vextir þurfa ekki að bera áhættu­á­lag og ættu því að vera lægri að jafn­aði. En breyti­legir vextir geta hækkað ört ef verð­bólgan hækkar og bank­arnir ákveða að hækka vext­ina í takt við þró­un­ina.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár