Deilt um samband launahækkana og verðbólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5 pró­senta mark­miði bank­ans. Seðla­bank­inn hefur áhyggjur af því að mikil hækkun launa valdi almennum verð­lags­hækk­unum, það er verð­bólgu­skoti og til­heyr­andi óstöð­ug­leika. Hag­fræð­ingar stétt­ar­fé­laga og atvinnu­veit­enda hafa aftur á móti deilt um hversu mikil áhrif launa­hækk­ana raun­veru­lega eru á verð­lags­þróun.

Óumdeilt er að miklar launa­hækk­anir myndu hafa nei­kvæð áhrif á verð­lags­þróun. Versta mögu­lega útkoman væri svo há verð­bólga að kaup­máttur almenn­ings stæði í stað eða minnki, með til­heyr­andi hækkun verð­tryggðra lána. Hækkun launa myndi þá engu skila til laun­þega því laun og þjón­usta í land­inu myndu einnig hækka.


Hvernig gæti það gerst? Laun eru einn helsti kostn­að­ar­liður í flestum fyr­ir­tækjum og helsta tekju­lind flestra laun­þega. Launa­hækk­anir auka því kostnað fyr­ir­tækja og tekjur laun­þega. Hvoru tveggja getur ýtt undir verð­hækk­anir, eins og Gylfi Magn­ús­son, dós­ent við Háskóla Íslands, fjall­aði um hér. Fyr­ir­tækin bregð­ast við auknum kostn­aði með því að hækka verð á vör­unum sínum eða þjón­ustu. Launa­hækk­anir auka að sama skapi kaup­getu laun­þega sem einnig ýtir undir verð­hækk­anir vegna auk­innar eft­ir­spurnar.


Hver er með­al­veg­ur­inn?


En hversu mikil eru þessi áhrif? Hversu mikið er hægt að hækka laun án þess að verð­bólgan fari af stað? Um þetta er deilt.


Samkvæmt ofan­sögðu eiga laun að end­ur­spegla fram­leiðslu­getu, eða það sem kallað er fram­leiðni vinnu­afls. En málið er auð­vitað ekki svo ein­falt, til að mynda vaxa laun ein­stakra hópa mis­hratt og launa­kjör geta þannig dreg­ist aftur úr því sem telja má rétt.


For­svars­menn Samtaka atvinnu­lífs­ins (SA) telja svig­rúm til launa­hækk­ana vera 3 til 4 pró­sent, eigi að tryggja verð­stöð­ug­leika. Það mat SA byggir á þjóð­hags­spá Seðla­banka Íslands en Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri hefur nefnt sama svig­rúm til launa­hækk­ana. SA ótt­ast að of miklar launa­hækk­anir valdi því sem rakið er hér að ofan, að verð­bólgan fari af stað og eyði jafn­óðum auknum kaup­mætti krónu­tölu­hækk­ana launa­taxta.


Viðar Ingason, hag­fræð­ingur VR, skrif­aði grein í febr­úar síð­ast­liðnum þar sem hann segir hlut­deild launa sem áhrifa­vald til verð­bólgu vera ofmetna á síð­ustu fjórum árum. Samkvæmt rann­sókn hans hafi aðrir þættir en launa­hækk­anir haft meiri áhrif verð­bólgu­hækk­ana frá árinu 2011, helst gengi krón­unnar og olíu­verðs­hækk­anir.


Ólafur Mar­geirs­son, doktsor­snemi í hag­fræði, fjall­aði um pistil Viðars á vef­síðu sinni og sagði frá rann­sókn sinni sem nær yfir tíma­bilið 1906 til 1985. Ólafur kann­aði sam­band launa­hækk­ana á Íslandi og verð­bólgu á þessu tíma­bili. Hann sýndi að verð­bólga á árunum 1960 til 1985 hafi að stórum hluta til verið vegna launa­hækk­ana, en það gildi þó ekki um tíma­bilið allt þar sem aðrir þættir hafi vegið þyngra. „ Já, þessar nið­ur­stöður segja okkur að launa­hækk­anir leiða ekki sjálf­krafa til verð­bólgu. Þetta slær því á ótta fólks varð­andi það að hvaða launa­hækk­anir sem er muni sjálf­krafa og óum­flýj­an­lega leiða til verð­bólgu. En þetta gefur ekki verka­lýðs­fé­lögum frítt spil: of miklar launa­hækk­anir munu leiða til verð­bólgu,“ segir Ólafur í grein sinni.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
FréttirFerð til fjár

Geng­is­vísi­talan stöðug en ein­stakir gjald­miðlar ekki

Geng­is­vísi­tala íslensku krón­unnar hefur hald­ist til­tölu­lega stöðug und­an­farna 15 mán­uði þótt verð á öðrum gjald­miðlum í íslenskum krónum hafi ýmist hækkað eða lækkað. Doll­ar­inn hefur hækkað mikið í verði og verð sterl­ingspunds hefur einnig hækkað. Samtímis hefur verð evr­unnar og dönsku, sænsku og norsku krón­unnar lækkað. [caption id="attachment_25776" align="aligncenter" width="521"] Gengi gjald­miðla í apríl 2015. Mynd af vef­síðu Lands­bank­ans.[/caption]Grein­ing­ar­deild Lands­bank­ans...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár