Spenna í hagkerfinu - haftalosun og kjaradeilur í algleymingi

Íslensk stjórn­völd vinna nú að því að losa um fjár­magns­höft, sem sett voru á með lögum í nóv­em­ber 2008, og leysa úr greiðslu­jafn­að­ar­vand­anum sem stafar af þrota­búum hinna föllnu banka. Nákvæm útfærsla á því hvernig leyst verður úr stöð­unni liggur ekki fyrir opin­ber­lega ennþá, en sam­kvæmt fréttum Morg­un­blaðs­ins frá því í morgun, áttu Bjarni Bene­dikts­son, efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra, og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, fund með Lee Bucheit, ráð­gjafa stjórn­valda, fram á kvöld í gær þar sem farið var yfir stöðu mála.

Rætt hefur verið um útgöngu­skatt, eða stöð­ug­leika­skatt eins og for­sæt­is­ráð­herra orð­aði það á lands­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins um liðna helgi, en honum er ætlað, í ein­földu máli, að slá á þrýst­ing á krón­una, vegna krónu­eignar erlendra aðila, þar á meðal slita­búa hinna föllnu banka. Rík­is­sjóður gæti með þess­ari aðgerð fengið umtals­verða fjár­muni til sín í gegnum skatt­inn, lík­lega upp­hæðir sem nema hund­ruð millj­örðum króna, allt eftir því hversu hár skatt­ur­inn verður og hvernig útfærslan verður nákvæm­lega útli­stuð. Samhliða yrði leyst úr greiðslu­jafn­að­ar­á­hættu sem þessum þrýst­ingi hefur fylgt allt frá hruni.

[caption id="attachment_25719" align="alignnone" width="800"] Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son.[/caption]

Tekur langan tíma


Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri, lét hafa eftir sér á fundi efna­hags- og við­skipta­nefndar í gær, að það væri ekki svo að höftin yrðu farin í júní, heldur myndi losun hafta taka lengri tíma. Á næst­unni verði þó stigin stór skref, þar sem rýmkað verður fyrir gjald­eyr­is­við­skipti ein­stak­linga og fyr­ir­tækja, en um leið verði tæki inn­leidd sem gefa seðla­bank­anum færi á að stýra ferð­inni, stjórna fjár­magns­hreyf­ing­unum inn og út úr þjóð­ar­bú­inu, með það að mark­miði að vernda stöð­ug­leika í hag­kerf­inu. Eins og fram hefur komið hjá seðla­banka­stjóra, Má Guð­munds­syni, þá er þessi staða for­dæma­laus í hag­sög­unni, þegar litið er til hlut­falls­legra stærða í sam­hengi við lands­fram­leiðslu Íslands. Eignir slita­bú­anna nema um 2.500 millj­örðum króna, en þar á meðal eru 95 pró­sent eign­ar­hlutur í Íslands­banka, og 87 pró­sent eign­ar­hlutur í Arion banka. Árleg lands­fram­leiðsla nemur um 1.900 millj­örðum.

Kjaradeilur í algleymingi


Á sama tíma og stjórn­völd vinna nú að því að losa um fjár­magns­höftin, þá eru kjara­deilur á vinnu­mark­aði í algleym­ingi. Félags­menn BHM eru í verk­falls­að­gerðum, og við blasa verk­falls­að­gerðir hjá verka­lýðs­hreyf­ing­unni. Starfs­greina­sam­bandið (SGS) er með þær í und­ir­bún­ingi, og það sama má segja um fleiri stétt­ar­fé­lög. Kröf­urnar sem uppi eru, og hafa verið nefndar, eru óra­fjarri þeim sem Samtök atvinnu­lífs­ins telja sig geta mætt.

Eins og Kjarninn hefur bent á áður þá er rík krafa um það hjá verka­lýðs­hreyf­ing­unni að lægstu laun verði hækkuð mynd­ar­lega, og hafa samn­ingar rík­is­ins við lækna, þar sem samið var um meira en 20 pró­sent hækkun launa, haft mikil áhrif á kröfu­gerð stétt­ar­fé­laga og and­ann í samn­inga­við­ræð­unum yfir höfuð. Þetta stað­festa við­mæl­endur beggja megin borðs­ins. Hjá SGS hefur krafan verið sú að lægstu laun verði hækkuð í 300 þús­und en þau eru 214 þús­und í dag. Hækkunin á að koma fram á þremur árum, en meðal mán­að­ar­laun þessa hóps hafa verið sögð meira en 400 þús­und krónur þegar allt er talið.

[caption id="attachment_16728" align="alignnone" width="1280"] Þor­steinn Víglunds­son, fram­kvæmda­stjóri SA.[/caption]

Ólíkar kröfur eftir félögum


Flóa­banda­lagið hefur sett fram kröfur um 35 þús­und króna hækkun lægstu byrj­un­ar­launa. Auk þess sem þau verði leið­rétt miðað við hækk­anir hjá öðrum umfram for­sendur síð­ustu kjara­samn­inga. Formaður Eflingar og tals­maður Flóa­banda­lags­ins, Sigurður Bessason, hefur látið hafa eftir sér að Flóa­banda­lagið geri kröfu um þessa hækkun á einu ári, ein­fald­lega vegna þess að þau treysti ekki stjórn­völdum og því sé ekki hægt að semja til lengri tíma. Þegar allt er talið telja Samtök atvinnu­lífs­inss að kröfur Flóa­banda­lags­ins feli í sér 17,5-22% hækkun launa­taxta, og þeim sé ekki hægt að mæta.

Hjá Verzlunarmannafélagi Reykja­víkur (VR) er uppi krafa um 50 þús­und króna launa­þró­un­ar­trygg­ingu. Það þýðir um 20% hækkun þeirra sem lægstu laun hafa. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er horft til þess að semja til tólf mán­aða. Samtök atvinnu­lífs­ins hafa lýst yfir áhyggjum, sem snúa því að krónu­tölu­hækk­anir taxta, sem samið yrði um, fari upp allan launa­skal­ann, og þannig geti þeir sem hæstu launin hafa í reynd fengið meiri krónu­tölu­hækkun en aðrir. Þessu hafa for­svar­menn VR hafnað, og tala fyrir nauð­syn þess að hækka launin hjá þeim sem minnst hafa. Einblína á þann hóp, enda séu félags­menn VR upp til hópa ekki hluti af hálauna­stéttum í land­inu.

Iðn­að­ar­menn og stétt­ar­fé­lög þeirra hafa gert almenna kröfu um tutt­ugu pró­sent laun­hækkun. Þar af um um 100 þús­und króna hækkun lægstu taxta. Kröfur hafa verið uppi um enn meiri hækk­anir hjá Matvís, félagi iðn­að­ar­manna í mat­væla- og veit­inga­geir­anum, sem eru með lægri taxta en hinir hópar iðn­að­ar­manna eins og mál standa nú. Líkt og hjá hjá Flóa­banda­lag­inu og VR, hefur verið horft til þess að semja aðeins til tólf mán­aða.

Stjórnvöld í slæmri samningsstöðu eftir niðurlægjandi tap


Eftir að stjórn­völd töp­uðu máli sem þau höfð­uðu fyrir Félags­dómi, til að reyna að koma í veg fyrir verk­falls­að­gerðir félagasmanna BHM, er staðan í kjara­við­ræð­unum snúin og flestir við­mæl­endur Kjarnans eru á því, að hún sé stjórn­völd mjög í óhag. Traustið í garð þeirra er lítið, á sama tíma og sig­ur­inn í dóms­mál­inu þjapp­aði fólk­inu innan BHM enn meira saman. Kröfur hafa verið gerðar í við­ræð­unum, um að lægstu laun hækki úr 265 þús­und í 400 þús­und. Í til­felli ein­stakra stétt­ar­fé­laga innan BHM er gerð krafa um meiri hækk­anir. Helstu rök fyrir kröfum BHM eru þau, að margar háskóla­mennt­aðar stéttir hafi setið eftir í launa­þróun unda­far­inna ára, eins og gögn sýna, og síðan að stjórn­völd hafi þegar gefið tón­inn um hvernig skuli horft til kröfu­gerðar um þessi mál með samn­ingum við lækna og kenn­ara­stéttir sömu­leiðis. BHM hefur horft til þess að semja til þriggja ára en eins og mál standa nú eru samn­ingar óra­fjarri, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Svipaða sögu er að segja af kröfum BSRB, sem meðal ann­ars er með SFR innan sinna vébanda, nema hvað rætt hefur verið um að semja til tólf mán­aða, og þá um hækkun sem er í kringum 17 til 20 pró­sent. Auk þess sem rætt hefur verið um stytt­ingu vinnu­viku, breytt starfs­fyr­ir­komu­lag og fleiri atriði sem snúa að því.

[caption id="attachment_10300" align="alignnone" width="1200"] Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ, er undir pressu félags­manna sinna fyrir kom­andi kjara­samn­inga. Þeir vilja fá mynd­ar­lega launa­hækkun, í takt við það sem stjórn­völd hafa samið um að und­an­förnu. Meðal ann­ars ríf­lega 20 pró­sent hækkun launa hjá læknum.[/caption]

Mikil samstaða - sátt órafjarri


Mikil sam­staða hjá verka­lýðs­for­yst­unni hefur ein­kennt samn­inga­við­ræð­urnar til þessa, jafn­vel þó kröfur ein­stakra stétt­ar­fé­laga séu ólíkar inn­byrðis. Sam­staðan er um að kvika ekki frá kröf­unum, og ná fram mik­illi launa­hækkun í þetta skiptið. Á meðan eru Samtök atvinnu­lífs­ins hörð á því, að ekki sé hægt að semja um þær kröfur sem lagðar hafa verið fram. Hag­kerfið ein­fald­lega geti ekki staðið undir þeim.

Ljóst er að rík­is­stjórn­inni er mik­ill vandi á höndum við að „vernda stöð­ug­leik­ann“, eins og Bjarni Bene­dikts­son hefur talað fyrir, á meðan stöð­ug­leik­inn í kjara­við­ræð­unum, bæði hjá þeim sem starfa hjá hinu opin­bera og á almennum vinnu­mark­aði, er einkum fólg­inn í því að vera stöðugt ósam­mála við­semj­endum í öllum meg­in­at­riðum um samn­ings­grund­völl­inn og hvað sé hægt að semja um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár