Íslendingar eru samvinnuþýðari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju.

[caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]

Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að ásamt Pálmari Þor­steins­syni, meist­ara­nema við Háskóla Íslands. Anna er pró­fessor við hag­fræði­deild Vín­ar­há­skóla og hennar sér­svið er leikja­fræði og til­raunir í hag­fræði. Fyrr í apr­íl­mán­uði hélt hún erindi um rann­sókn­ina í Háskóla Íslands, en hún kennir þar nám­skeið í atferl­is­fjár­málum á vor­önn.

Óvæntar niðurstöður

„Þessar nið­ur­stöður, að Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrar þjóðir, koma í raun til sem nokk­urs konar hliðar-afurð ann­arrar rann­sóknar sem ég vinn að um svo­kallað töfra-jafn­vægi,“ segir Anna. Til þess að sann­reyna nið­ur­stöð­urnar sem sýndu sam­vinnu­vilja Íslend­inga þá end­ur­tók Anna til­raun­ina meðal banda­rískra stúd­enta og síðan aftur meðal íslenskra stúd­enta. Allar nið­ur­stöð­urnar studdu það sem áður hafði komið í ljós: Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari.


Til­raunin sjálf byggir á kenn­ing­unni um „vanda­mál fang­ans“ sem það er þekkt kenn­ing innan leikja­fræð­innar. Hún lýsir því hvernig ein­stak­lingar geta valið milli þess að vinna saman eða svíkja hvorn annan. Best er fyrir ein­stak­ling­ana að vinna saman en þeir hafa þó báðir hvata til þess að svíkja sam­komu­lag um sam­vinnu.


„Í til­raun okkar fá stúd­entar ákveðna pen­inga­upp­hæð sem þeir geta ýmist lagt inn á ein­stak­lings-reikn­ing eða hópa-reikn­ing. Ef allir leggja inn á hópa­reikn­ing­inn þá græða allir en ein­stak­ling­inn er engu að síður betur settur ef aðrir leggja inn á hópa­reikn­ing, en hann ekki. Þetta er líkt því og þegar hópur nem­enda vinnur saman að rit­gerð. Allir vilja fá sem hæsta ein­kunn og nem­end­urnir fá allir sömu ein­kunn, en ein­hver í hópnum getur séð hag sinn í að leggja ekki sitt af mörkum og læra til dæmis í stað­inn fyrir loka­prófið í áfang­anum,“ útskýrir Anna. Nem­and­inn fengi þá sama ábata og hinir, án þess þó að hafa neitt fyrir því.

Samhyggjan sterk

Þetta leiðir til þess að hópa­vinna lið­ast í sundur á end­anum og nær jafn­vægi við ein­stak­lings­hyggju. En rann­sóknin sýndi að Íslend­ingar leggja sig meira fram við hópa­vinnu og hún gengur lengur en hjá banda­rískum stúd­entum. „Fyrir ein­stak­ling­inn er það rök­rétt í þessum leik að hugsa um sjálfan sig og því mætti segja að Íslend­ingar séu órök­rétt­ari en banda­rísku nem­end­urnir. En heilt yfir er þessi leitni til hópa­vinnu talin jákvæð.“


Spurð um ástæður þess­arar hegð­unar Íslend­inga segir Anna að hún hafi leitað skýr­inga og rann­sakað hvort þær eigi við. Hún nefnir meðal ann­ars sam­fé­lags­kenn­ingu Hofstede sem nái þó ekki að skýra þennan hegð­un­ar­mun nægi­lega. „Önnur sam­fé­lags­kenn­ing virð­ist fanga þetta betur. Kenn­ingin mælir hvernig lög og reglur hafa áhrif á sam­fé­lög og hvort innan þeirra ríki ein­stak­lings­hyggja eða sam­hyggja. Margir þættir benda til að sam­hyggja sé ríkj­andi meðal Íslend­inga. Rann­sóknir hafa sýnt fram á að svo sé raunin á Norð­ur­lönd­unum öllum, en er jafn­vel enn rík­ari á Íslandi.“


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...
FréttirFerð til fjár

Geng­is­vísi­talan stöðug en ein­stakir gjald­miðlar ekki

Geng­is­vísi­tala íslensku krón­unnar hefur hald­ist til­tölu­lega stöðug und­an­farna 15 mán­uði þótt verð á öðrum gjald­miðlum í íslenskum krónum hafi ýmist hækkað eða lækkað. Doll­ar­inn hefur hækkað mikið í verði og verð sterl­ingspunds hefur einnig hækkað. Samtímis hefur verð evr­unnar og dönsku, sænsku og norsku krón­unnar lækkað. [caption id="attachment_25776" align="aligncenter" width="521"] Gengi gjald­miðla í apríl 2015. Mynd af vef­síðu Lands­bank­ans.[/caption]Grein­ing­ar­deild Lands­bank­ans...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár