Lánið þitt: Munurinn á jafngreiðslum og jöfnum afborgunum

Kaup á fast­eign er fyrir okkur flest ein­hver stærsta fjár­hags­lega ákvörðun sem við tökum á lífs­leið­inni. Kaupunum fylgir lán­taka upp á margar millj­ónir króna, sem við skuld­bindum okkur til að greiða til baka á næstu árum eða ára­tugum. Þegar svo háar fjár­hæðir eru í spil­unum er best að vita sem mest um hvað málið snýst. Lána­formin sem bjóð­ast eru mis­mun­andi og eitt lána­form hentar ekki öllum. Það sem hentar einum lán­tak­anda getur verið ómögu­legt fyrir annan.

Þessi grein er hluti af grein­ar­flokki um þau atriði sem varða hús­næð­is­lána­töku og önnur lán á Íslandi. Áður hefur birst grein um vaxta­kjörin sem lesa má hér.

Jafngreiðslur eða jafnar afborganir

Hús­næð­is­lán við­skipta­bank­anna eru ýmist jafn­greiðslu­lán eða lán með jöfnum afborg­unum. Munurinn á lána­formunum er sá að af jafn­greiðslu­láni er greidd sama mán­að­ar­lega upp­hæð út láns­tím­ann en af láni með jöfnum afborg­unum er greitt mest í upp­hafi en upp­hæðin fer lækk­andi eftir því sem höf­uð­stóll láns­ins lækkar.


Þegar talað er um afborgun er átt við hvað greitt er af höf­uð­stól láns­ins, en með greiðslu er átt við heild­ar­greiðslu af lán­inu, það eru bæði afborg­anir og vaxta­greiðslur.

Jafngreiðslulán (annuitet)

Lán­tak­inn greiðir sömu upp­hæð mán­að­ar­lega út láns­tím­ann. Sam­setn­ing greiðsl­unnar á milli vaxta og afborg­ana er aftur á móti mis­mun­andi á láns­tím­anum. Vaxta­greiðslur vega þungt í upp­hafi og afborg­anir af höf­uð­stól minna. Þetta snýst við þegar líður á láns­tím­ann.


Ef jafn­greiðslu­lánið er verð­tryggt hækkar greiðslan með verð­bólgu.

Lán með jöfnum afborgunum

Mán­að­ar­leg heild­ar­greiðsla af láni með jöfnum afborg­unum er ekki sú sama út láns­tím­ann. Afborgun af höf­uð­stólnum, það er lán­inu sjálfu, er alltaf sú sama frá einum mán­uði til ann­ars, en vext­irnir eru hærri í upp­hafi og þess vegna eru heild­ar­greiðslur mestar í upp­hafi. Þær fara síðan lækk­andi þegar líður á láns­tím­ann, vegna þess að höf­uð­stóll­inn fer lækk­andi og þar með vaxta­gjöld láns­ins.


Óverð­tryggð hús­næð­is­lán með jöfnum afborg­unum hafa notið auk­inna vin­sælda síð­ast­liðin ár. Við­skipta­bank­arnir hafa boðið upp á föst vaxta­kjör til allt að fimm ára. Það þýðir að vext­irnir eru þeir sömu í fimm ár eftir að lánið er tekið, en að þeim tíma loknum verða vext­irnir breyti­legir. Þá ákveður bank­inn hverjir óverð­tryggðir vextir eru. Það metur hann út frá verð­bólgu, stýri­vöxtum Seðla­bank­ans auk álags sem kalla má óvissu­á­lag.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár