Vinsæl heilsusmáforrit deila persónuupplýsingum

Í nýlegri rann­sókn voru skoðuð 24 heilsu­tengd smá­forrit. Af þeim deildu 19 af 24 upp­lýs­ingum um not­endur til alls 55 fyr­ir­tækja sem fengu upp­lýs­ing­arnar og með­höndl­uðu gögnin á ein­hvern hátt.

Notkun smá­forrita sem þjóna þeim til­gangi að hjálpa fólki að bæta heils­una er ekki áhættu­laus sam­kvæmt grein sem birt­ist í tíma­rit­inu BMJ í vik­unni. Höfundar grein­ar­innar vilja skýr­ari reglur um það hvernig per­sónu­upp­lýs­ingar not­enda eru geymdar og not­aðar.

Lítið gagnsæi til staðar

Tækninni sem við búum við dag fylgja margir ótví­ræðir kostir. Þar má meðal ann­ars nefna smá­forrit sem geta hjálpað okkur að lifa heil­brigð­ara lífi til dæmis með því að minna okkur á að taka lyf á réttum tíma og setja okkur í beint sam­band við heil­brigð­is­starfs­fólk. Þessi smá­forrit safna þó einnig ýmsum per­sónu­upp­lýs­ingum um not­endur sína sem í sumum til­fellum geta verið við­kvæmar.

Rann­sókn­ar­hópur sem sam­an­stóð af vís­inda­mönnum við Uni­versity of Sydney, Uni­versity of Toronto og Uni­versity of California vildi kanna hvort og þá hvernig þessar per­sónu­upp­lýs­ingar eru nýttar. Hópurinn skoð­aði vin­sæl lyfja­tengd smá­forrit á mark­aðnum með til­liti til þessa.

Nið­ur­staða hóps­ins var meðal ann­ars sú að algengt var að upp­lýs­ingum um not­endur væri deilt en lítið gagn­sæi var til staðar um það hvert upp­lýs­ing­arnar voru að fara.

19 af 24 forritum deildu upplýsingum

24 smá­forrit sem var að finna í Android versl­unum í Bret­landi, Banda­ríkj­unum, Kanada og Ástralíu voru skoðuð í rann­sókn­inni. Forritin áttu það sam­eig­in­legt að þau voru opin not­endum gegn því að gefnar væru upp upp­lýs­ingar um lyfja­gjöf, lyf­seðla eða notkun.

Notast var við tækni sem bar kennsl á það hvert upp­lýs­ingar not­endur voru a fara. Þetta var í stuttu máli gert með því að keyra gervi­for­skriftir í for­rit­inu til að líkja eftir raun­veru­legri notkun. Að því loknu var örygg­is­still­ingum í smá­forrit­inu breytt. Með því að skoða hvar nýju still­ing­arnar birt­ust mátti rekja hvert upp­lýs­ingum var deilt.

Af þeim smá­forritum sem skoðuð voru deildu 19 af 24 upp­lýs­ingum um not­endur. Það voru 55 ein­stök fyr­ir­tæki sem fengu upp­lýs­ing­arnar og með­höndl­uðu gögnin á ein­hvern hátt. Fyr­ir­tækin voru ýmist þró­un­ar­að­ilar, móð­ur­fyr­ir­tæki eða þriðju aðilar. Til að bæta gráu ofan á svart gátu þriðju aðilar deilt upp­lýs­ing­unum með 216 fyr­ir­tækjum. Af þeim fyr­ir­tækjum töld­ust aðeins þrjú til heilsu­geirans.

Meðal fyr­ir­tækj­anna sem gegndu lyk­il­hlut­verki voru Facebook, Oracle og Alphabet.

Þörf á frekara regluverki

Nið­ur­stöð­urnar valda áhyggjum þar sem að ekki virð­ist vera tryggt að per­sónu­upp­lýs­ingar tengdar heilsu­fari séu með­höndl­aðar með leynd. Ekki virð­ist heldur vera skýrt fyrir not­endum hvernig upp­lýs­ing­unum þeirra er deilt.

Höf­und­arnir benda á mik­il­vægi þess að skapa skýrt reglu­verk í kringum notkun á for­ritum sem geyma við­kvæmar upp­lýs­ingar um not­endur þeirra.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár