Logi: Ísland þarf ekki jafnvægi Sjálfstæðisflokksins

Formaður Sam­fylk­ingar sagði í ræðu á flokk­stjórn­ar­fundi að jafn­vægi Sjálf­stæð­is­flokks byggi á því að örfáir sitji öðru megin á vega­salt­inu með þorra gæða. Hann hafi haldið að Vinstri græn og Sjálf­stæð­is­flokkur væru ólíkir flokkar en haft rangt fyrir sér.

„Í næstu kosn­ingum mun valið standa á milli stefnu sem byggir á íhalds­semi og stöð­ug­leika hinnar óbreyttu skipt­ingar gæða eða fram­sækni, frum­kvæði og stöð­ug­leika sem byggir á jafn­ara sam­fé­lagi þar sem allir hafa betri tæki­færi.“

Þetta er meðal þess sem Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði í ræðu sinni á flokks­stjórn­ar­fundi flokks­ins sem fram fer á Bifröst um helg­ina.

Logi sagði að leið Sam­fylk­ing­ar­innar væri að byggja upp sam­keppn­is­hæft vel­ferð­ar­þjóð­fé­lag að nor­rænni fyr­ir­mynd á Íslandi þar sem umhverfi barna­fólks væri hag­fellt, fæð­ing­ar­or­lof lengra, hús­næð­is­mark­aður stöðugri og mat­ar­k­arfan ódýr­ari. „Þar sem jöfn tæki­færi eru til náms og mannauður og hug­vit sam­fé­lags­ins nýt­ist sem best í grænu hag­kerfi. Þar sem barist er gegn hvers konar mis­munun, þátt­taka og vel­ferð inn­flytj­enda er tryggð og tekið er vel á móti fólki á flótta. Áskor­anir eru miklar og það er ekki hægt að mæta þeim öllum á stuttum tíma. En við fyrsta skrefið er að snúa skút­unni frá hægri og taka nýjan rétt­ari kúrs.“

Logi sagði að uppi væru tímar þar sem stjórn­mála­fólk yrði að vera hug­rakkt, með skýra fram­tíð­ar­sýn en líka að vera með­vitað um dag­leg vanda­mál fólks. „Ég finn til mik­illar ábyrgðar, því ég veit að vænt­ing­arnar eru miklar til okkar í Sam­fylk­ing­unni. En ég er líka sann­færður um að við getum risið undir þeim.“

Raunalegt að horfa á Vinstri græn kyngja hverju málinu á fætur öðru

Logi fór um víðan völl í ræð­unni og fjall­aði meðal ann­ars í löngu máli um stöðu sitj­andi rík­is­stjórnar undir for­sæti Katrínar Jak­obs­dóttur. Hann sagði að á meðan að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn léki lausum hala í efna­hags­líf­inu væri bein­línis rauna­legt að horfa á Vinstri græn kyngja hverju mál­inu á fætur öðru, sem þau áður töl­uðu gegn. Hann nefndi þar áfram­hald­andi hval­veiðar, grimmari útlend­inga­stefnu, rýmri rétt til hat­urs­orð­ræðu og órétt­látra skatt­kerfi. „Það sem stjórn­ar­flokk­arnir hafa þó verið sam­stíga um er íhalds- og aft­ur­hald­s­emi. Varð­stöðu um krón­una og gam­al­dags atvinnupóli­tík. Ég hélt í ein­feldni minni að Vinstri græn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn væru eðl­is­ó­líkir flokkar en lík­lega hef ég haft full­kom­lega rangt fyrir mér.

[adspot]Og leið­togi sós­í­alista sem dásamar skatta­breyt­ingu sem færir for­stjór­anum sömu krónu­tölu og þernu, vegna þess að þernan hafi fengið hlut­falls­lega meira, hefur lík­lega villst tals­vert af leið. For­sæt­is­ráð­herra, til upp­lýs­ingar kostar dós af grænum baunum jafn þern­una jafn­mikið og for­stjór­ann – en reyndar hlut­falls­lega meira af kaup­inu hennar.“

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar sagði að Ísland þyrfti nýja for­ystu sem átti sig á því að sóma­sam­leg lífs­kjör allra sé for­senda þeirrar sóknar sem íslenskt sam­fé­lag yrði að ráð­ast í til að tryggja sam­keppn­is­hæfi þjóð­ar­innar á tímum mik­illa breyt­inga.

Ísland þarf ekki jafnvægi Sjálfstæðisflokksins

Logi sagði að Ísland þyrfti hins vegar ekki jafn­vægi Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem byggði á því að örfáir sitja öðru megin á vega­salt­inu, með þorra gæð­anna en allur almenn­ings héldi jafn­vægi hinum megin.

Þá byggði stöð­ug­leiki Sjálf­stæð­is­flokks­ins á íhalds­semi og kyrr­stöðu. Og stöðn­uðum sam­fé­lögum myndi ekki vegna vel til lengdar. „Við þurfum fram­þróun og sókn sem byggir á almennri þátt­töku fólks og hún næst ekki nema allir búi við sóma­sam­leg lífs­kjör. Fyrir utan mann­virð­ing­una sem í því felst hefur fámennt sam­fé­lag ekki efni á öðru en veita öllum tæki­færi á að þroska styrk­leika sína og örva þá til þess. Annað er ótrú­leg sóun verð­mæta.

Ástæða þess að börn sem alast upp á efna­meiri heim­ilum eru lík­legri til að vera með háar tekjur síðar á ævinni og skýr­ingin á því að færri konur sitja í stjórn fyr­ir­tækja hefur ekk­ert með upp­lag ein­stak­lings­ins að gera, heldur sam­fé­lags­gerð sem byggir ekki á nægj­an­lega miklu jafn­rétti og rétt­læti. Þó stað­reyndin sé ef til vill sú að við fæð­umst með merki­lega þró­aðan per­sónu­leika ræður umbún­að­ur­inn fram á full­orð­insár hvernig við náum að spila úr honum.“

Fjöldi landsmanna líði skort

Logi sagði að núver­andi staða gæfi ekki góð fyr­ir­heit. Kjör­tíma­bilið væri ekki hálfnað og landið stæði and­spænis flók­inni vinnu­deilu og erf­iðri stöðu efna­hags­mála.

Stöðugur vinnu­mark­aður end­ur­speglist í stórum og smáum fyr­ir­tækjum, sem búi við öruggt rekstr­ar­um­hverfi, heil­brigða sam­keppni og geti borgað starfs­fólki góð laun. „Fólk á lægri tekjum naut síður efna­hags­bata síð­ustu ára, ekki síst vegna þess að stjórn­völd grófu ýmist kerf­is­bundið undan vel­ferð­ar­kerf­inu og innviðum eða létu hvort tveggja drabb­ast niður með van­rækslu, í góð­æri.“

[adspot]Logi sagði að þótt flestir íbúar lands­ins hefðu það sem betur fer gott þá væri fjöldi fólks á Íslandi sem líði skort, lifi í sífelldum kvíða og nái ekki að veita börnum sínum sömu lífs­kjör og skóla­fé­lagar þeirra njóta. „Talsmenn laun­þega­hreyf­ing­ar­innar og reyndar einnig atvinnu­lífs­ins hafa marg­sinnis bent á að það er fleira en launa­hækk­anir sem tryggja góð lífs­skil­yrði: Réttlátt skatt­kerfi, almenn­ari barna- og hús­næð­is­bætur, gjald­frjáls almanna­þjón­usta en ekki síst öruggur hús­næð­is­mark­aður. Þetta er sam­hljóða hug­mynda­fræði Sam­fylk­ing­ar­innar sem margoft hefur lagt fram til­lögur í þessa átt.

Í síð­ustu stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum vöktum við sér­staka athygli á því að næstu rík­is­stjórn yrði að mynda um almenna lífs­kjara­sókn – ella skap­að­ist erfið staða á vinnu­mark­aði. Það er nú komið á dag­inn. - Vinstri-græn og Framsókn völdu aðra sam­starfs­að­ila og því situr rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins undir for­ystu Katrínar Jak­obs­dóttur.“

Gagnrýndi skattaútspil ríkisstjórnarinnar

Í ræðu Loga kom fram að það væri stað­reynd að byrðar lág- og með­al­tekju­fólks á Íslandi hefðu auk­ist meira en í sam­an­burð­ar­löndum og langt umfram skatta á hæstu launin. Nýlegt skatta­út­spil rík­is­stjórn­ar­innar bæri þess skýr merki að ekki væru áform um að ráð­ast gegn þeirri stöðu. „Skatta­breyt­ing sem skilar ráð­herra sömu krónu­tölu og þernu á hót­eli var blaut tuska í and­litið á launa­fólki. Sem var fylgt eftir með kaldri gusu þegar í ljós kom að frysta ætti per­sónu­af­slátt sam­hliða, sem gera skatta­lækk­un­ina lík­lega að engu. Milli­tekju­hóp­unum var gefið langt nef og skerð­ast barna­bætur þeirra skarpar en áður og vaxta­bóta­kerfið er nán­ast sagn­fræði. Með veik­ari krónu, hærri vöxtum og verð­lagi gæti almenn­ingur á end­anum staðið uppi með kjara­rýrnun.“

Logi sagði freist­andi að kenna Sjálf­stæð­is­flokknum einum um stöð­una en sagði

hægri stefn­una virð­ast dafna ágæt­lega undir vernd­ar­væng Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­sæti Vinstri grænna. „Sú harka sem nú er á vinnu­mark­aði er í boði rík­is­stjórnar sem neitar að horfast í augu við það að hér búa hópar fólks; bóta­þegar, lág- og með­al­tekju­fólk, náms­menn, við aðstæður sem ekki eru bjóð­andi í ríku landi. Afleið­ingar van­rækslu síð­ustu ára hefur leitt til félags­legs óstöð­ug­leika og full­komin afneitun núver­andi rík­is­stjórnar gæti hugs­an­lega leitt til þess að atvinnu­lífið taki allan skell­inn til að brúa það sem rík­is­stjórnin hefur hunsað. Það er ófor­skammað að stilla hlut­unum þannig upp að launa­fólk kalli ham­farir yfir sam­fé­lagið, með því að beita verk­föllum. Ábyrgð á slæmri stöðu lág­launa­fólks liggur ann­ars staðar – m.a. hjá stjórn­völdum sem hafa leyft ójöfn­uði að grass­era og holað að innan vel­ferð­ar­kerfið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

samfylking

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár