Óvissa til staðar sem tengist kjarasamningum

Már Guð­munds­son segir að sú lækkun á gengi krón­unnar sem átt hafi sér stað frá því í haust hafi verið vel­komin. Áhyggjur af stöðu WOW air hafi orðið til þess að end­ur­mat hafi átt sér stað á allri stöðu efna­hags­lífs­ins.

„Það eru áhættu­þættir sem tengj­ast því að hér mynd­ist mik­ill efna­hags­legur óstöð­ug­leiki og vænt­ingar þró­ast um að gengi krón­unnar muni lækka all veru­lega. Ef það ger­ist þá eru ein­hverjir sem vildu losna út áður en það geng­is­fall ætti sér stað.“

Þetta sagði Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni, þar sem þeir ræddu um stöðu efna­hags­mála og mögu­legan flótta fjár­magns úr landi með til­heyr­andi veik­ingu krón­unnar.

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan:

Már segir að það sé auð­vitað til staðar óvissa sem teng­ist kjara­samn­ingum, en slíkum hefur enn ekki verið náð á vinnu­mark­aði og verk­föll eru hafin.

Sú lækkun sem orðið hefur á gengi krón­unnar frá því í haust hafi hins vegar verið vel­komin „Við vorum með áhyggjur af því á fyrri hluta síð­asta árs að krónan væri kannski komin upp fyrir sitt jafn­vægi. Síðan á haust­mán­uðum þá koma þessar áhyggjur um flug­rekst­ur­inn, nátt­úru­lega WOW air, og end­ur­mat á allri stöðu efna­hags­lífs­ins. Við­skipta­kjörin höfðu versnað og efna­hags­horf­urnar orðnar verri. Þá var bara eðli­legt að gengið bregð­ist við því. Að mestu leyti var sú geng­is­lækkun bara leið­rétt­ing miðað við þessar nýju aðstæður.“

[adspot]Nú sé þessi hætta á ofrisi krón­unnar væri lið­inn hjá og ef eitt­hvað væri þá væri krónan aðeins fyrir neðan jafn­vægi sitt. Margt styðji það, til dæmis við­skipta­af­gangur á fjórða árs­fjórð­ungi í fyrra og góð staða við útlönd þar sem eignir Íslands eru meiri en skuldir. „Það sem væru þá áhyggj­urnar ef það kæmu við­bót­ar­vænt­ingar um það að verð­bólgan væri að fara hér af stað, að gengið væri að fara að gefa eftir og efna­hags­legur óstöð­ug­leiki. Það er nátt­úru­lega margt sem getur gerst. Það er ekki búið að lenda kjara­samn­ingum og maður veit ekki hvernig það verður. Horfur í flug­rekstr­inum eru enn ótryggar.“ Það sé eng­inn efna­hags­legur óstöð­ug­leiki sem sé til staðar en raun­gern­ing hans gæti þó orðið. Ytri aðstæður gætu spilað þar inn í líka. Í upp­hafi síð­asta árs var tölu­verð bjart­sýni alþjóð­lega. Það hafi nú breyst eftir að við­skipta­stríð milli landa hafi raun­gerst. „Stærstu áhættu­þætt­irnir sem allir tala um á slíkum fundum eru ann­ars vegar við­skipta­á­tök á heims­mæli­kvarða og Brexit.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabanki

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár