Aflaverðmæti jókst um 16 prósent milli ára

Afla­verð­mæti úr sjó nam 11,7 millj­örðum í nóv­em­ber 2018, sem er 19,2 pró­sent aukn­ing á milli ára. Frá des­em­ber 2017 til nóv­em­ber 2018, nam afla­verð­mæti úr sjó tæpum 127 millj­örðum króna sem er 16,1 pró­sent aukn­ing milli ára.

Aflaverðmæti úr sjó nam 11,7 milljörðum í nóvember 2018, sem er 19,2 prósent samanborið við nóvember 2017. Á tólf mánaða tímabili frá desember 2017 til nóvember 2018, nam aflaverðmæti úr sjó tæpum 127 milljörðum króna sem er 16,1 prósent aukning miðað við sama tímabil ári fyrr. Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands.

Verðmæti uppsjávarafli jókst um tæp 70 prósent

Verðmæti botnfiskaflans nam 9,3 milljörðum í nóvember 2018 og jókst um 13 prósent milli ára. Verðmæti uppsjávarafla var 1,7 milljarðar sem er 69,4 prósent meira en í nóvember 2017. 

Afli sem seldur var til eigin vinnslu nam 6,1 milljarði í verðmæti sem eru um 52 prósent af heildarverðmæti. Verðmæti sjófrysts afla nam 3,2 milljörðum og verðmæti afla sem fór á fiskmarkaði til vinnslu innanlands nam 1,7 milljarði, eða um 15 prósent af heildarverðmæti.

Ef borin eru saman verð­mæti alls afl­ans á milli ára þá jókst verð­mæti afl­ans um rúm 16 pró­sent. Þá jókst verð­mæti bæði upp­sjáv­ar­afl­ans og skel- og krabba­dýra­afl­ans tals­vert á milli ára en verð­mæti botn­fisks jókst um tæp 19 pró­sent milli ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár