Drífa Snædal: Mikil er ábyrgð þeirra sem hafa leyft misréttinu að aukast

Drífa Snædal, for­seti ASÍ , segir að nú stefni í hörð­ustu átök á vinnu­mark­aði í ára­tugi og ábyrgðin sé þeirra sem hafi leyft mis­rétt­inu að aukast á síð­ustu árum þannig að hag­sældin hér á landi hafi ekki skilað sér til allra.

Drífa Snædal,
Drífa Snædal, Mynd: Aðsend mynd

Drífa Snædal. for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands, segir að það sé á ábyrgð þeirra sem hafi leyft mis­rétt­inu að aukast hér á landi á síð­ustu árum og ára­tugum að nú stefni í hörð­ustu átök á vinnu­mark­aði í ára­tugi. Hún segir jafn­framt að þó að sé rétt að kjara­deil­urnar séu á milli vinn­andi fólks og atvinnu­rek­anda, þá sé ekki hægt að horfa fram­hjá að stjórn­völd hafi tæki í hönd­unum til jafna kjör og tryggja vel­ferð. Þetta kemur fram í viku­legum for­setapistli Drífu á vef ASÍ.

Tími sanngirni runnin upp

Drífa segir í pistli sínum að deilum á vinnu­mark­aði megi rekja til þess að skatt­kerfið hafi fengið að þró­ast með þeim hætti að hinir rík­ari fái skatta­lækk­anir á meðan skatt­byrðin eykst hjá hinum tekju­lægstu. „Það var því ekk­ert nema eðli­legt að verka­lýðs­hreyf­ingin gæfi stjórn­völdum tæki­færi til að afstýra átökum með því að laga skatt­kerfið. En hvað gerð­ist? Skatta­lækkun á alla, þar með talið banka­stjór­ana sem hafa fengið ríf­legar launa­hækk­anir und­an­farið, svo ekki sé minnst á kjörnu full­trú­ana sem kjara­ráð hefur verið svo rausn­ar­legt við,“ segir Drífa.

Hún bendir jafn­framt á í pistl­inum að skatta­lækkun stjórn­valda nemi tæp­lega sjö þús­und krónum sem eigi að koma til fram­kvæmda ein­hvern tím­ann á næstu þremur árum. „ Rétt­læt­is­kennd­inni er greini­lega ekki fyrir að fara við rík­is­stjórn­ar­borðið. En nú er ljóst að vinn­andi fólk þarf að ein­beita sér að atvinnu­rek­endum til að ná fram rétt­læti og sann­girni.“

„Mikil er ábyrgð þeirra sem hafa leyft mis­rétt­inu að aukast síð­ustu ár og ára­tugi þannig að hag­sældin í okkar ríka landi hefur ekki skilað sér til allra. Þeirra er ábyrgðin á því að nú stefnir í hörð­ustu átök á vinnu­mark­aði í ára­tugi,“ segir Drífa .

Hótelþernur í vinnustöðvun á baráttudegi kvenna.

Í gær var við­ræðum fjög­urra stétt­ar­fé­laga við atvinnu­rek­endur slitið og fleiri stétt­ar­fé­lög til við­bótar vís­uðu deil­unni til sátta­semj­ara. Drífa segir að ekki sé ólík­legt að fleiri félög vísi kjara­deilum til rík­is­sátta­semj­ara á næst­unni. „Tími sann­girni er runn­inn upp, vinn­andi fólk er til­búið að sækja það sem því ber; lífs­gæði, vel­ferð og rétt­látt kaup fyrir sína vinnu.“ segir Drífa að lokum.

Á mánu­dag­inn hefst atkvæða­greiðsla um vinnu­stöðvun hót­el­þerna en ráð­gert er að vinnu­stöðv­unin hefj­ist þann 8. mars á bar­áttu­degi kvenna. Í pistl­inum segir að það að vera þerna á hót­eli sé eitt erf­ið­asta starf sem hægt sé að vinna. „Lág­marks­laun í dag­vinnu fyrir slíkt starf er 300.000 krónur (eftir 6 mán­uði). Eftir skatt fær við­kom­andi 236.000 krónur í vas­ann sem dugir ekki fyrir leigu á þriggja her­bergja íbúð. “ Því segir í pistl­inum að nú kosið um vinnu­stöðvun til þess að knýja fram mann­sæm­andi laun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár