Fróðlegt hefur verið að fylgjast með fyrstu viðbrögðum við vandaðri skýrslu þeirra Indriða Þorlákssonar og Stefáns Ólafssonar um íslenska tekjuskattskerfið. Í fyrstu ríkti þögn eins og menn áttuðu sig ekki á því að skýrslan er afar vönduð og skrifuð af yfirburða þekkingu – og sætir þannig miklum tíðindum í íslenskri þjóðmálaumræðu. En björninn vaknaði á sunnudagsmorgun í Silfrinu.
[links]Mér sýnist að því verði vart í móti mælt að tekjuskattsbyrði á Íslandi hafi færst á undanförnum áratugum frá þeim tekjuhæstu til þeirra sem minnstar hafa tekjurnar. Sumir halda því fram að þetta hafi allt gerst samkvæmt leikreglum lýðræðisins. Það er þó því miður aðeins hálfsannleikur, því að músin sem læðist á það til að gabba fólk til verka í smáskömmtum þannig að fáir geri sér grein fyrir hvað í þeim felst, og slíkt getur ekki talist til lýðræðis.
Þetta er rakið og útskýrt í skýrslunni allar götur frá 1993 eða svo, til dæmis hvernig skattar af hæstu tekjum hafa verið lækkaðir vísvitandi og skattleysismörkum haldið föstum í krónutölu milli ára með þeim afleiðingum – sem voru auðvitað fyrirsjáanlegar ef menn hefðu viljað sjá – að skattbyrði á láglaunafólk jókst mjög. En þessa sögu má rekja lengra aftur í tímann.
[adspot]Á árunum frá því um 1950 til 1990 eða svo ríkti hér á landi mikil verðbólga sem skekkti bæði sjálft verðlagið og ýmiss konar ákvarðanir manna. Ein leiðin til þess er ‘aðferð hinnar föstu krónutölu.’ Ef stjórnmálamenn höfðu til dæmis ákveðið að verja tiltekinni fjárhæð til ákveðinnar starfsemi næsta ár en vildu svo í raun draga úr henni framvegis svo að lítið bæri á, þá gátu þeir gert það með því að halda krónutölunni fastri ár eftir ár þar til að verðbólgan hafði gert hana verðlausa. “Þetta var mikið tekið” hjá stjórnmálamönnum, eins afgreiðslufólk í búðum segir um vörurnar.
Þessi aðferð var ekki bara notuð óspart í fjárveitingum heldur einnig til dæmis í ákvörðunum í fjárlögum um álagningu tekjuskatts. Í skattstiga eru settar niður tölur sem ákvarða til dæmis skattleysismörk og tekjumörk þar sem álagningarprósentan breytist (yfirleitt til hækkunar með vaxandi tekjum). Hinar ýmsu ríkisstjórnir eftirstríðsáranna komust að því að þær gátu – svo að lítið bæri á -- haldið þessum krónutölum föstum frá ári til árs. Þannig leit út fyrir að ekkert hefði breyst í skattakerfinu milli ára, þegar reyndin var hins vegar sú, vegna verðbólgu og launahækkana, að bæði hækkuðu skattar á lægstu tekjur verulega og auk þess fækkaði þeim sem greiddu enga skatta vegna lágra tekna. Með þessari aðferð fékk ríkisstjórn hvers tíma kærkomna hjálp við það erfiða verkefni að hækka tekjur ríkissjóðs til móts við vaxandi verkefni hans á þessum tíma, vegna hvers konar innviða svo sem velferðarmála, skólahalds, heilbrigðismála, samgöngumála og svo framvegis.
[adspot]Ríkisstjórn okkar stendur nú á krossgötum á ferli sínum. Framundan er það ögrandi verkefni að leggja sitt af mörkum til kjaraviðræðna vinnumarkaðarins með því að taka rækilega til hendi í skattkerfi okkar, vinda ofan af afrekum músarinnar sem læddist og stuðla þannig enn betur að þeim stöðugleika sem menn segjast vilja hafa, í stað óstöðugleikans sem ranglát tekjuskipting leiðir af sér með kraumandi óánægju, ólgu og átökum. Með því mundi stjórnin víkja af þeirri braut sérhagsmuna og spillingar sem hún hefur fylgt fram að þessu og sýna okkur að henni er umhugað um almannaheill, þrátt fyrir allt.
Flokkarnir sem standa að núverandi ríkisstjórn hafa samtals 35 þingmenn af 63. Af þessum 35 eru 16 sjálfstæðismenn en þeir hafa, með þegjandi samþykki hinna 19, hagað sér eins og þeir væru 20-25, en það eru gamlar tölur sem kjósendur hafa breytt. Þannig hefur hingað til stefnt í það að þessi stjórn yrði í raun skráð á blöð sögunnar sem hægri stjórn. En ef hún snýr nú við blaðinu eins og hér er lagt til, þá yrði hún kannski kölluð miðjustjórn eins og flestir hefðu væntanlega gert ráð fyrir þegar hún var mynduð.
Höfundur er prófessor á eftirlaunum og áhugamaður um þjóðfélagsmál.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




















































Athugasemdir