Reykjavíkurborg segir ásakanir um kosningasvindl „alvarlegar og meiðandi“

Reykja­vík­ur­borg birtir umrædd skjöl sem eru talin hafa brotið gegn per­sónu­vernd­ar­lögum og gagn­rýnir ásak­anir um meint kosn­inga­svindl.

Ráðhús Reykjavíkur
Ráðhús Reykja­víkur Mynd: Birgir Þór Harðarson

Mann­rétt­inda­stjóri Reykja­vík­ur­borgar segir að ásak­anir um kosn­inga­svindl sem komið hafa fram í tengslum við ákvörðun Per­sónu­verndar séu alvar­legar og meið­andi. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg.

Í til­kynn­ing­unni er fjallað um ákvörðun Per­sónu­verndar, sem taldi borg­ar­yf­ir­völd hafa brotið gegn þágild­andi per­sónu­vernd­ar­lög í átaki til auk­innar kosn­inga­þátt­töku í síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum. Átakið fól í sér bréfa­send­ingar og sms skila­boð til ungra kjós­enda, konum 80 ára og eldri og erlendum rík­is­borg­urum þar sem þeir voru hvattir til að kjósa.

Kjarninn hefur áður fjallað um málið, en að mati Per­sónu­verndar voru skila­boð í þessum send­ingum gild­is­hlaðin og til þess fallin að hafa áhrif á hegðun þess­ara kjós­enda í kosn­ing­unum. Reykja­vík­ur­borg hefur nú birt umrædd bréf til ungra kjós­enda, eldri kvenna og erlendra rík­is­borg­ara, en þau má finna ef smellt er á hlekk­ina hér að ofan.

Einnig birti Reykja­vík­ur­borg efni sms-skila­boð­anna sem send voru til ungra kjós­enda. Þau eru eft­ir­far­andi:

Í DAG ERU KOSNINGAR

Þú hefur kosn­inga­rétt og þinn kjör­staður er <kjör­staður> (sjá kort á http://rvk.is/kosningar).

Það er auð­velt að kjósa, en mundu eftir skil­ríkjum!

Sent af Reykja­vík­ur­borg

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri skrif­aði um ákvörðun Per­sónu­verndar í frétta­bréfi sínu síð­ast­lið­inn föstu­dag, en hann sagði borg­ina og aðra sem að verk­efn­inu komu verði að draga lær­dóm af því og rýna í það sem aflaga fór.

Í frétta­til­kynn­ingu Reykja­vík­ur­borgar seg­ist Anna Krist­ins­dóttir mann­rétt­inda­stjóri Reykja­vík­ur­borgar taka ákvörðun Per­sónu­verndar alvar­lega en segir hana þó koma á óvart í ljósi fyrri sam­skipta við stofn­un­ina. Hún segir mik­il­vægt að bregð­ast við henni með fag­legum hætti. Enn fremur segir Anna að ásak­anir um kosn­inga­svindl sem komið hafa fram í tengslum við umræðu og ákvörðun Per­sónu­verndar séu alvar­legar og meið­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár