Dagur: Þurfum að fara yfir málið og „draga lærdóm af“

Borg­ar­stjóri segir að fara þurfi yfir verk­efnið sem mið­aði að því að auka kosn­inga­þátt­töku. Per­sónu­vernd gagn­rýndi fram­kvæmd­ina og segir hana ekki sam­rým­ast lögum.

Reykja­vík­ur­borg og aðrir sem komu að verk­efn­inu sem mið­aði að því að auka kosn­inga­þátt­töku, verða að draga lær­dóm af því og rýna í það sem aflaga fór.

Þetta kemur fram í frétta­bréfi Dags B. Egg­erts­sonar, borg­ar­stjóra, en þar gerir hann að umtals­efni ákvörðun Per­sónu­verndar er varðar skila­bða­send­ingar í aðdrag­anda kosn­inga.

Reykja­vík­ur­borg og rann­sak­endur við Háskóla Ís­lands­ not­uðu per­sónu­upp­lýs­ingar frá Þjóð­skrá Íslands­ um unga kjós­end­ur, erlenda rík­is­borg­ara og konur 80 ára og eldri til að senda þeim skila­boð og bréf fyrir sveita­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í maí 2018, með að það fyrir augum að auka kjör­sókn þess­ara hópa.

Í ákvörðun Per­sónu­verndar sem birt var í gær kemur fram að notkun og vinnsla Reykja­vík­ur­borgar og ­rann­sak­anda við Háskóla Ísalnds hafi ekki í sam­ræmi við lög um per­sónu­vernd. Að mati Per­sónu­verndar voru skila­boð í þessum send­ingum gild­is­hlaðin og til þess fallin að hafa áhrif á hegðun þess­ara kjós­enda í kosn­ing­un­um.

Í frétta­bréf­inu segir Dagur um þetta: „Í dag hafa birst fréttir af því að Per­sónu­vernd telji Reykja­vík­ur­borg, Þjóðskrá og Háskóla Íslands ekki hafa farið að lögum um per­sónu­vernd við fram­kvæmd eins þeirra verk­efna sem efnt var til í því skyni að auka kosn­inga­þátt­töku í aðdrag­anda sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna sl vor. Verk­efnið sem um ræðir var eitt af þeim sem borg­ar­ráð sam­ein­að­ist um að efna til með sam­þykkt til­lagna sem hópur sér­fræð­inga hafði unnið. Til­lög­unum var öllum ætlað að stuðla að auk­inni kosn­inga­þátt­töku, á einn eða annan hátt. Nið­ur­staða Per­sónu­verndar lítur meðal ann­ars að rann­sókn­ar­hluta verk­efn­is­ins en fræði­menn við Háskóla Íslands lögðu upp rann­sókn í sam­vinnu við borg­ina til að kanna hvort hvatn­ing til að kjósa hefði áhrif á ungt fólk, og hvort mis­mun­andi orðuð hvatn­ing hefði mis­mikil áhrif. Fyrir liggur að rann­sóknin hafði fengið sam­þykki Vís­inda­siða­nefndar Háskóla Íslands. Reykja­vík­ur­borg mun í kjöl­far nið­ur­stöðu Per­sónu­verndar fara yfir úrskurð­inn með sam­starfs­að­ilum í verk­efn­inu og draga lær­dóm af. Í þeirri yfir­ferð þarf m.a. að skoða hvernig fram­kvæmd okkar er frá­brugðin fram­kvæmd sam­bæri­legra verk­efna á Norð­ur­lönd­unum, sem m.a. var horft til sem fyr­ir­myndar í verk­efn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár