Landlæknir vill að kynferðisáreitið verði skoðað strax

Alma Möller land­læknir segir það slá­andi tölur að sjö pró­sent kven­lækna telji sig hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni á vinnu­stað á haust­mán­uðum síð­asta árs. Hún segir þetta eitt­hvað sem þurfi að skoða strax.

Alma Dagbjört Möller, landlæknir.
Alma Dagbjört Möller, land­læknir. Mynd: Aðsend mynd

Alma Dagbjört Möller land­læknir segir það slá­andi tölur að sjö pró­sent kven­lækna hafi á haust­mán­uðum síð­asta árs orðið fyrir kyn­ferð­is­legu áreiti á vinnu­stað. Hún vísar þar til nið­ur­staðna úr könnun um líðan og starfs­að­stæður lækna, sem unnin var í októ­ber á síð­asta ári. „Þetta finnst mér með ólík­indum miðað við alla umræð­una sem er í gangi. Þetta er eitt­hvað sem þarf að skoða strax,“ sagði Alma í sam­tali við Lækna­blaðið.

Tæplega fimmtíu prósent kvenlækna orðið fyrir áreiti

[links]Á lækna­dögum í Hörpu í jan­úar síð­ast­liðnum voru kynntar nið­ur­stöður könn­unar um líðan og starfs­að­stæður lækna. Könnunin var unnin í októ­ber á síð­asta ári en alls bár­ust svör frá 728 læknum, eða ríf­lega helm­ingi allra lækna á Íslandi. Í könn­un­inni kemur fram að tæp­lega fimm­tíu pró­sent kven­kyns lækna hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­legu áreiti ein­hvern tím­ann á starfsæv­inni. Auk þess sögðu 7 pró­sent kven­lækna að þær höfðu orðið fyrir kyn­ferð­is­legu áreiti á vinnu­stað á síð­ustu þremur mán­uðum. Sam­bæri­legar tölur hjá körlum voru 1 pró­sent á síð­ustu þremur mán­uðum og 13 pró­sent yfir starfsæv­ina.

Í könn­un­inni kemur einnig fram að 19 pró­sent lækna telji að ein­hver starfs­fé­lagi hafi orðið fyrir kyn­ferð­is­legu áreiti á vinnu­stað síð­ustu þrjá mán­uði. Jafn­framt segj­ast 65 pró­sent lækna hafa fundið fyrir streitu­ein­kennum, síð­ustu sex mán­uði eða lengur. Þarf af 71 pró­sent kvenna og 60 pró­sent karla.

Vitað að það er ekki nógu vel mannað víða í heilbrigðiskerfinu

Lækna­blaðið spurði Ölmu einnig út í aðrar nið­ur­stöður skýrsl­unnar. Alma nefndi að það sem hefði gripið athygli hennar var hve stór hluti af þess­ari mik­il­vægu stétt finni fyrir ein­kennum eins og skertri ein­beit­ingu eða minni, eða um 48 pró­sent lækna. „Bregðast þarf við þessu,“ sagði Alma og bætti við þetta hafi svo víð­tæk áhrif, fyrst og fremst á ein­stak­ling­inn en í öðru lagi á vinnu­stað­inn. Hún segir að þetta geti síðan líka komið niður á gæðum með­ferðar og öryggi sjúk­linga ef svona sé komið.

Í könn­unni kemur jafn­framt fram að 37 pró­sent lækna hafi hug­leitt að hætta störfum síð­ustu tólf mán­uði en tveir þriðju lækna töldu álag of mikið. „Auðvitað vitum við að ekki er nógu vel mannað víða í heil­brigð­is­kerf­inu og það þarf að bregð­ast við því, en það þarf líka að skoða aðra þætti sem lúta að vinnu­staðnum sjálfum,“ sagði Alma benti einnig á að kulnun og streita væri ekki aðeins vandi lækna heldur víða í sam­fé­lag­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

læknar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár