Læknar deila við Svandísi

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur sent yfir­lýs­ingu frá ráðu­neyt­inu þar sem hún sér sig knúna til að leið­rétta full­yrð­ingar í grein þriggja lækna sem halda því fram að ráð­herra ætli sér að færa þjón­ustu sér­greina­lækna inn á göngu­deildir.

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur sent yfir­lýs­ingu frá ráðu­neyt­inu þar sem hún sér sig knúna til að leið­rétta full­yrð­ingar í grein þriggja lækna sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í dag þar sem þeir meðal ann­ars halda því fram að ráð­herra ætli sér að færa þjón­ustu sér­greina­lækna að miklu leyti eða alfarið inn á göngu­deildir sjúkra­húsa.

Í grein­inni, sem ber nafnið „Það sem ekki er sagt“, segja lækn­arnir, Högni Ósk­ars­son, geð­læknir og stjórn­enda­þjálf­ari, Sigurður Árnason, lyf­læknir, heilsu­gæslu­læknir og krabba­meins­læknir, og Sigurður Guð­munds­son, læknir við Land­spít­ala og pró­fessor við lækna­deild Háskóla Íslands, segja hug­mynd ráð­herr­ans, sem sé rót­tæk, þá að færa einn hinna stóru þátta, „mögu­lega þann skil­virkasta, þ.e. þjón­ustu sjálf­stætt starf­andi sér­fræð­inga“, inn á göngu­deild­irnar eða heilsu­gæsl­una.

Lækn­arnir þrír segja þessa hugsun ein­ungis byggða á póli­tískri kreddu, göngu­deild­irnar hafi hvorki húsa­kost né mann­skap til að taka við þó ekki væri nema broti af þjón­ustu sjálf­stætt starf­andi sér­fræð­inga. Um sé að ræða mjög sér­hæfða lækn­is­þjón­ustu sem heilsu­gæslan að jafn­aði fáist ekki við og geti ekki feng­ist við um fyr­ir­sjá­an­lega fram­tíð enda hafi hún ekki sér­hæft starfs­lið til að sinna slíkri vinnu. „Það stefnir því í versta kost­inn; að kostn­aður sér­fræði­þjón­ust­unnar flytj­ist frá sjúkra­trygg­ingum yfir á sjúk­linga. Og enn einu sinni bitnar þetta á ein­stak­lingum og fjöl­skyldum sem minnstar hafa tekj­urnar. Sjúk­lingar vilja það ekki, læknar vilja það ekki, þjóðin vill það ekki. Væri því ekki ráð að anda djúpt og stunda samn­inga­við­ræður sem tryggja að heil­brigð­is­þjón­ust­unni í land­inu sé ekki stefnt í voða um ára­mót. Heil­brigð­is­ráð­herra, vakn­aðu strax. Annars fellur þú á tíma,“ segja lækn­arnir.

Í svari sínu segir ráðu­neytið að orðið hafi veru­leg aukn­ing á stofu­rekstri sjálf­stætt starf­andi sér­greina­lækna síð­ustu ár og starf­semi þeirra færst að sama skapi út af Land­spít­al­anum. Þessi þróun hafi átt sér stað, án til­lit til þess hvort um sé að ræða sér­greinar sem eðlis síns vegna ættu frekar að vera innan sjúkra­húss­ins eða ekki. Þá hafi Rík­is­end­ur­skoðun bent á hvernig fjár­munir hafa á liðnum ára­tug færst frá opin­beru heil­brigð­is­þjón­ust­unni inn í einka­rekna hluta heil­brigð­is­kerf­is­ins.

„Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur lýst þeirri stefnu ítrekað að hún hygg­ist styrkja opin­bera heil­brigð­is­kerfið og vinna að þeirri stefnu sem bygg­ist á almennri sátt í sam­fé­lag­inu og felst meðal ann­ars í því að efla heilsu­gæsl­una til muna með þver­fag­legri mönnun heil­brigð­is­stétta og vinna að því að jafna aðgengi lands­manna að heil­brigð­is­þjón­ustu, óháð efna­hag og búsetu. Það hefur hins vegar komið skýrt fram af hálfu ráð­herra að það sé alls ekki stefna eða mark­mið að fyr­ir­byggja starf­semi sjálf­stætt starf­andi heil­brigð­is­starfs­fólks á stofum með greiðslu­þátt­töku hins opin­bera.“

Haft er eftir Svandísi að það sem máli skipti og hafi marg­sinnis verið bent á, bæði af hálfu erlendra ráð­gjafa­fyr­ir­tækja, Rík­is­end­ur­skoð­unar og ann­arra, er að ríkið axli ábyrgð sína sem kaup­andi þjón­ustu fyrir almannafé. „Fjár­munir til heil­brigð­is­þjón­ustu eru ekki ótak­mark­aðir, ekki fremur en til ann­arra verk­efna. Þess vegna þarf að skil­greina hvaða þjón­ustu vantar og í hvaða mæli og sjá til þess að þeir sem á þjón­ust­unni þurfa að halda geti fengið hana. Það er óvenju­legt við rekstur íslenska heil­brigð­is­kerf­is­ins að ekki skuli vera fyrir hendi þjón­ustu­stýr­ing varð­andi starf­semi sér­greina­lækna og á það hefur verði bent marg­sinnis. Þessu þarf að breyta. Það er hins vegar alröng full­yrð­ing sem fram kemur í grein lækn­anna þriggja, þeirra Högna Ósk­ars­sonar, Sigurðar Árna­sonar og Sigurðar Guð­munds­sonar, að ég ætli að færa þjón­ustu sjálf­stætt starf­andi sér­greina­lækna „að miklu leyti eða alfarið inn á göngu­deildar sjúkra­hús­anna“ og mér finnst það áhyggju­efni að rang­færslur sem þessar séu ítrekað settar fram í umræð­unni,“ segir Svandís.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

læknar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár