Aukin fjárframlög til Landspítalans leiða ekki til aukins fjármagns til menntunar og vísinda

Land­spít­al­inn hefur ítrekað óskað eftir auknu fjár­magni til að efla vís­inda- og mennta­starf innan stofn­un­ar­innar en í fjár­laga­frum­varp­inu er ekk­ert fjár­magn eyrna­merkt fyrir það starf.

Nauð­syn­legt er að stjórn­völd auki áherslu á menntun heil­brigð­is­starfs­manna en ekki síður að halda mennt­uðum heil­brigð­is­starfs­mönnum í störfum. Ef stefnt er að breyta lækna­nám­inu og fjölga nem­endum úr 48 í 60 á næstu árum þá þarf heil­brigð­is­kerfið að eiga mögu­leika á að mæta þeirra fjölgun. Þetta segir Kristján Erlends­son, læknir og kennslu­stjóri lækna­deilar háskóla Íslands, í grein í nýjasta tölu­blaði Lækna­blaðs­ins.

Hann skorar á stjórn­völd að fara í átak í að byggja upp mennta­væna inn­viði í heil­brigð­is­kerf­inu og vísar hann jafn­framt til skýrslu frá Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofnun sem greinir því að 18 millj­ónir heil­brigð­is­starfs­manna muni vanta á heims­vísu árið 2030.

Kristján bendir enn fremur á í grein sinni að sam­kvæmt Mckinsey skýrsl­unni frá árinu 2016, sem gerð var að beiðni fjár­laga­nefndar Alþingis, sé íslenska heil­brigð­is­kerfið nú þegar alvar­lega und­ir­mannað og ef ekk­ert verði að gert þá muni það bitna á þróun og gæðum heil­brigð­is­þjón­ust­unnar. Þess megi nú þegar sjá merki.

Ísland langt á eftir Norðurlöndunum

Í grein Krist­jáns kemur fram að fyrir menntun lækna­nema þurfi góða sam­vinnu við heil­brigð­is­stofn­anir fyrir klíníska menntun, en þar hafi Ísland setið eftir í sam­an­burði við hin Norð­ur­löndin sem og Banda­ríkin og Bretland. Í dag sé fjár­magn til mennt­unar og vís­inda á Land­spít­al­anum undir 1 pró­sent af heild­ar­kostnað spít­al­ans. Í Vís­inda­stefnu spít­al­ans frá 2007 var stefnt að sú tala væri 3 pró­sent sem er þó vel undir stefnu Norð­ur­land­anna í þessu málum en þar var talan 6 pró­sent árið 2007. Kristján bendir á að lítið fjár­magn og aukið þjón­ustu­á­lagi sem og fjölgun nem­enda hljóti að fylgja hnignun í menntun og vís­indum.

Fram kemur í umsögn Land­spít­al­ans um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um fjár­mála­ætlun 2019 til 2023 frá 3. maí síð­ast­liðnum að Land­spít­al­inn óski eftir tals­vert meira fjár­magni en þings­á­lykt­un­ar­til­lagan geri ráð fyrir. Í umsögn­inni kemur meðal ann­ars fram ósk um fjár­magn til að við­halda og byggja upp vís­inda­starf og til að sinna fjölgun nem­enda í heil­brigð­is­vís­indum. En fram kemur að mat Land­spít­al­ans á upp­safn­aðri við­bót­ar­fjár­þörf til að sinna þeim tveimur verk­efnum til næstu þurfi 893 millj­ónum króna árið 2018 en alls 12.788 millj­ónir upp­safnað til að standa undir 5 ára áætlun.

Hlutfall fjármagns til mennta- og vísindastarfs mun ekki hækka

Samkvæmt nýja fjár­laga­frum­varp­inu verða fram­lög rík­is­ins til rekst­urs Land­spít­al­ans á næsta ári 71,3 millj­arðar króna eða 65,4 millj­arðar að teknu til­liti til sér­tekju­áætlun­ar, sam­an­borið við 61,8 millj­arða að teknu til­liti til sér­tekna árið 2018.

Í sam­tali við Kjarninn segir Anna Sigrún Bald­urs­dóttur, aðstoð­ar­maður Páll Matth­í­as­sonar for­stjóra Land­spít­al­ans, að ekki sé gert ráð fyrir auknu fjár­magni til mennta- og vís­inda­starfs innan Land­spít­al­ans í nýja fjár­laga­frum­varp­inu. Land­spít­al­inn hafi ítrekað á hverju ári óskað eftir auknu fjár­magni til mennta- og vís­inda­starfs og muni gera það áfram. Hún tekur fram að Land­spít­al­inn sé nú þegar búin að koma með athuga­semdir við frum­varpið. Hlutfall fjár­magns til mennta- og vís­inda innan Land­spít­al­ans muni því ekki hækka úr undir 1 pró­sent á næsta ári þó fjölgun hjúkr­un­ar­fræði­nema sem og lækna­nema liggi fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hjúkrunarfræðingar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár