Tæplega helmingur kvenkyns lækna orðið fyrir kynferðislegu áreiti í starfi

Mikill meiri­hluti lækna telja sig vera undir of miklu álagi í starfi í nýrri könnun Lækna­fé­lags Íslands. Tæplega fimm­tíu pró­sent kven­kyns lækna hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­legu áreiti ein­hvern tím­ann á starfsæv­inni og um 7 pró­sent á síð­ustu þremur mán­uðum.

Síðasta árið hafa um það bil helm­ingur lækna hug­leitt það oft eða stundum að láta af störfum en mik­ill meiri­hluti lækna telja sig vera undir of miklu álagi. Þetta kemur fram könnun á líðan og starfs­að­stæðum læna, sem unnið var í októ­ber á síð­asta ári. Enn fremur kemur fram í nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar að tæp­lega fimm­tíu pró­sent kven­kyns lækna hefur orðið fyrir kyn­ferð­is­legu áreiti ein­hvern tím­ann á starfsæv­inni

Mikill meirihluti lækna telji sig vera undir of miklu álagi

Jafn­framt kemur fram í könn­unni að mik­ill meiri­hluti lækna telja sig vera undir of miklu álagi með til­heyr­andi streitu­ein­kennum, trufl­andi vanlíðan og sjúkdómsein­kennum. Rúmlega helm­ingur hefur fund­ist að þeir geti ekki upp­fyllt kröfur eða ráðið við streitu í starfi og auk þess eru svefn­trufl­anir á meðal lækna algengar.

Í til­kynn­ingu frá Lækna­fé­lag­inu segir að því miður virð­ist ein­elti og kyn­bundið ofbeldi innan stétt­ar­innar vera sam­bæri­legt við margar aðrar starfsstéttir. En tæp­lega helm­ingur kven­kyns lækna eða 47 pró­sent, hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­legu áreiti ein­hvern tím­ann á starfsæv­inni og um 7 pró­sent höfðu orðið kyn­ferð­is­legu áreiti á vinnu­stað á síð­ustu þremur mán­uðum, sam­kvæmt könn­un­inni. Sam­bæri­legar tölur hjá körlum voru 1 pró­sent á síð­ustu þremur mán­uðum og 13 pró­sent yfir starfsæv­ina.

Sjö prósent svar­enda í könn­unni taldi sig hafa orðið fyrir ein­elti á síðustu þremur mánuðum og 26 pró­sent ein­hvern tímann á starfsæv­inni.[adspot]

Yfir 60 prósent lækna vilja færa Landspítalann

Yfir 60 pró­sent lækna töldu stað­setn­ingu Landspítala við Hring­braut óheppi­lega og þörf á nýju stað­ar­vals­mati vegna bygg­ingar nýs spítala. Einungis um fjórðungur allra starfs­stöðva tald­ist vera hæfi­lega mann­aður en í um 72 pró­sent til­vika þóttu þær vera und­ir­mann­aðar. Um helm­ingur svar­enda taldi þó að íslensk heil­brigð­is­þjónusta væri sam­bæri­leg við það sem þeir þekktu í nágrannalöndum.

Í könn­unni skipt­ist afstaða til launa­kjara skipt­ist í tvo álíka stóra hópa. 45 pró­sent svar­enda voru mjög eða frekar ósammála því að laun þeirra væru sann­gjörn en aftur á móti svör­uðu 42 pró­sent svar­enda að þau væru því mjög eða frekar sammála því að laun þeirra væru sann­gjörn. Að með­al­tali var vinnu­vika um fjórðungs þátttak­enda á bil­inu 61 til 80 klukku­stundir og 4 pró­sent voru með yfir 80 unnar klukku­stundir á viku. 

Árlegir Lækna­dagar eru haldnir í Hörpu í þess­ari viku og í dag verða nið­ur­stöður könn­un­ar­innar kynntar og ræddar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár