Laun borgarfulltrúa hækkuðu í janúar

Laun borg­ar­full­trúa nema nú rúmum 742 þús­und krónum og starfs­kostn­að­ur­inn tæpum 54 þús­und krónum.

Laun borg­ar­full­trúa og starfs­kostn­aður þeirra hækk­aði í jan­úar á þessu ári. Laun nema nú rúmum 742 þús­und krónum og starfs­kostn­að­ur­inn tæpum 54 þús­und krónum. Þetta kemur fram í frétt RÚV í dag.

Á fundi for­sætis­nefndar borg­ar­innar síð­ast­lið­inn föstu­dag var lagt fram bréf frá skrif­stofu borg­ar­stjórnar um að grunn­laun borg­ar­full­trúa hefðu verið hækkuð til sam­ræmis við breyt­ingu á launa­vísi­tölu. Laun eru hækkuð tvisvar á ári, segir í frétt­inni.

Í bréf­inu kemur fram að launin hafi hækkað um 15.600 krónur og séu því nú 742.357 krónur. Starfs­kostn­að­ur­inn hækk­aði um 1.100 krónur og er nú 53.613 krónur. Borg­ar­full­trúar fá því 795.970 krónur á mán­uði.

„Í sam­þykkt um kjör og starfs­að­stöðu kjör­inna full­trúa kemur fram að borg­ar­full­trúar þiggja föst laun fyrir störf sín hjá Reykja­vík­ur­borg sam­kvæmt sam­þykkt borg­ar­stjórnar 4. apríl 2017. Þetta eru grunn­laun borg­ar­full­trúa og upp­fær­ast í jan­úar og júlí ár hvert miðað við þróun launa­vísi­tölu. Í grunn­laun­unum fel­ast að fullu greiðslur fyrir setu í nefndum og ráðum borg­ar­innar, þ.m.t. for­mennsku í öðrum nefndum en fasta­nefndum, inn­komur sem vara­menn og setur sem áheyrn­ar­full­trúar,“ segir í bréf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár