Engin stofnun safnar upplýsingum um kennitöluflakk

Á Íslandi safnar engin stofnun tölu­legum upp­lýs­ingum um eign­ar­hald á félögum. Ráðherra segir að á meðan slíkar upp­lýs­ingar liggi ekki fyrir sé erfitt að meta umfang kenni­tölu­flakks. Stefnt er að því að leggja fram frum­varp um kenni­tölu­flakk í febr­úar.

Engin stofnun á Íslandi safnar tölu­legum upp­lýs­ingum um eign­ar­hald á félögum og hverjir standa þar að baki. Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar og nýsköp­un­ar­ráð­herra, segir að á meðan slíkar upp­lýs­ingar liggi ekki fyrir sé erfitt að meta umfang kenni­tölu­flakks. Þetta kemur fram í svari ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Willum Þór Þórssyni, þing­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins, um kenni­tölu­flakk.

Atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið og dóms­mála­ráðu­neytið hafa unnið að drögum að frum­varpi um kenni­tölu­flakk að und­an­förnu og stefnt er að leggja frum­varpið fyrir Alþingi í febr­úar á þessu ári. Í skýrslu starfs­hóps um umfang skatt­und­an­skota og til­lögur til aðgerða, sem birt var í júní 2017, segir engu að síður að greina þurfi umfang kenni­tölu­flakks áður en ráð­ist verði í aðgerðir og ákveðið hve langt þurfi að ganga til að koma í veg fyrir mis­notkun á kerf­inu.

Erfitt að leggja mat á umfang vandans

Í svari ráð­herra við fyr­ir­spurn Willums segir að ekki liggi fyrir laga­leg skil­grein­ing á hug­tak­inu „kenni­tölu­flakk“ en það sé oft­ast notað um ákveðna mis­notkun eig­enda atvinnu­rekstrar í skjóli tak­mark­aðrar ábyrgðar. Kenni­tölu­flakk felist í stofnun nýs félags í sama atvinnu­rekstri til að losa und­ir­liggj­andi rekstur undan fjár­hags­legum skuld­bind­ingum en við­halda samt eignum. Tjónið felist gjarnan í því að félög fari í gjald­þrot með skuldum í formi skatta, líf­eyr­is­sjóðs­gjalda og gjalda úr Ábyrgð­ar­sjóði launa, svo og við birgja og aðra kröfu­hafa, m.a. laun­þega.

Einnig spyr Willum ráð­herra hvort að umfang kenni­tölu­flakks á Íslandi hafi verið kannað á vegum stjórn­valda. Í svari Þórdísar Kol­brúnar segir að fyrir nokkru hafi atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið kannað leiðir til þess að greina umfang kenni­tölu­flakks á Íslandi. Ráðu­neytið leit­aði til Hagstofu Íslands, rík­is­skatt­stjóra og fyr­ir­tækja­skrár, toll­stjór­ans í Reykja­vík og Ábyrgð­ar­sjóðs launa. En sam­kvæmt ráðu­neyt­inu safnar engin þess­ara stofn­ana né aðrar stofn­anir tölu­legum upp­lýs­ingum um eign­ar­hald á félögum og hverjir standa þar að baki. Þórdís Kolbrún segir því að meðan slíkar upp­lýs­ingar liggja ekki fyrir er erfitt um vik að leggja mat á umfang vand­ans.[adspot]

Rúmlega 9000 félög tekin til gjaldþrotaskipta á 10 ára tímabili

Ráðherra bendir þó á að sem vís­bend­ingu um þann fjölda sem kom til greina við skoðun á kenni­tölu­flakki vísa til þess að sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Hagstofu Íslands voru alls 9.250 félög tekin til gjald­þrota­skipta á tíma­bil­inu 2003 til 2013, af tæp­lega 350 þús­und félögum sem voru á skrá á tíma­bil­inu eða hluta þess tíma. Það þýði að um 2 pró­sent skráðra félaga verða að með­al­tali gjald­þrota á ári hverju. Ef ein­göngu er tekið mið af félögum sem greiddu laun á tíma­bil­inu eru gjald­þrotin hins vegar að með­al­tali um 6 pró­sent.

Í svar­inu kemur einnig fram að alls voru skráð 5.178 ný félög á árunum frá 2008 til 2012, þar af voru 259 ein­stak­lingar að skipta um kenni­tölu. Það þýðir að um 2 pró­sent ein­stak­linga voru að með­al­tali að skipta um kenni­tölu af þeim fjölda kennitalna sem voru teknar í notkun á þessu fimm ára tíma­bili. Þessar tölur sýna þó ein­göngu félög sem voru með fleiri en fimm starfs­menn í vinnu hjá sér, það vantar upp­lýs­ingar um smærri félög en í svar­inu segir að mögu­lega sé tíðni á breyt­ingu á könnu­tölu hærri hjá þeim smærri en stærri.

Ráðherra bendir þó á að ekki sé hægt að álykta að allir þeir sem skiptu um kenni­tölu hafi gert slíkt í þeim til­gangi að losna við skuldir en myndin sýnir þó þann fjölda fyr­ir­tækja með fleiri en fimm starfs­menn sem kæmi til álita vegna kenni­tölu­flakks.

Ekki vitað hvert árlegt tap ríkissjóðs sé vegna kennitöluflakks

Í fyr­ir­spurn Willums er einnig leit­ast eftir svörum um hvort unnt hafi verið að meta hversu miklum skatt­tekjum rík­is­sjóður hafi orðið af vegna kenni­tölu­flakks eða hvert árlegt tap rík­is­sjóðs­ins vegna þess. Þórdís Kolbrún segir að þær upp­lýs­ingar liggi ekki fyrir, hún bendir á skýrslu starfs­hóps frá 20. júní 2017, um umfang skatt­und­an­skota og til­lögur til aðgerða sé kafli um kenni­tölu­flakk. Í skýrsl­unni er ekki finna fjár­hags­legt mat á tapi kenni­tölu­flakks en jafn­framt er greint frá því að nauð­syn­legt sé að greina umfang kenni­tölu­flakks áður en ráð­ist verði í aðgerðir og ákveðið hve langt þurfi að ganga til að koma í veg fyrir fram­an­greinda mis­notkun á kerf­inu.

Í umfjöllun Tíundar, tölu­blaði rík­is­skatt­stjóra, um kenni­tölu­flakk í jan­úar 2016 segir að áætlað sé að rík­is­sjóður fari á mis við 80 millj­arða króna vegna skatt­und­an­skota á ári hverju og að kenni­tölu­flakk sé hluti vand­ans.

Frumvarp um kennitöluflakk í febrúar

Atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið og dóms­mála­ráðu­neytið stefna því að leggja fram frum­varp um kenni­tölu­flakk á Alþingi i febr­úar 2018. Frum­varpið er afrakstur ráðu­neyt­anna eftir að hafa und­an­farin miss­eri haft til skoð­unar til­lögur Samtaka atvinnu­lífs­ins og Alþýðu­sam­bands Íslands um leiðir til að sporna við kenni­tölu­flakki í atvinnu­rekstri.

Markmið frum­varps­ins er að bregð­ast við mis­notkun á hluta­fé­lags­form­inu, og að í ákveðnum til­vikum verði unnt að setja ein­stak­linga í atvinnu­rekstr­ar­bann. Þetta kemur fram í svari ráð­herra við spurn­ingu um hvaða aðgerðir séu fyr­ir­hug­aðar af hálfu rík­is­stjórn­ar­innar til þess að sporna við kenni­tölu­flakki en í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar er kveðið á um að rík­is­stjórnin vilji vinna með aðilum vinnu­mark­að­ar­ins við að vinna gegn kenni­tölu­flakki hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár