Stofna svið fyrir herskáa stéttabaráttu

Efling hefur stofnað svo­kallað félags­svið en hlut­verk þess er fyrst og fremst að blása nýju lífi í her­skáa stétta­bar­áttu með virkri þátt­töku félags­manna sjálfra.

Efling hefur stofnað nýtt svið sem kallað er félags­svið. Hlutverk þess er fyrst og fremst að blása nýju lífi í her­skáa stétta­bar­áttu með virkri þátt­töku félags­manna sjálfra. Ætlunin er þannig að mynda aukið mót­vægi gegn síauknum yfir­ráðum fyr­ir­tækja­eig­enda í sam­fé­lag­inu.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Eflingu sem send var út í dag.

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, segir að verka­lýðs­hreyf­ingin hafi of lengi verið föst í því að bregð­ast við vanda­mál­unum eftir á og sé orðin of mikil þjón­ustu­stofnun. „Félags­svið Eflingar er hugsað til að snúa vörn í sókn og ganga lengra í að virkja félags­menn í bar­átt­unni en hefur þekkst ára­tugum saman. Ég er gríð­ar­lega stolt af félags­sviði Eflingar og veit að það mun veita okkur mik­inn styrk í kjara­bar­áttu næstu ára,“ segir hún.

Fram­kvæmda­stjóri Eflingar, Viðar Þor­steins­son, segir að félags­svið sé lík­lega stærsta nýj­ungin í starfi Eflingar síðan ný for­ysta tók við í vor. „Um leið og við styrkjum reglu­bundna þjón­ustu okkar við félags­menn á sviðum sem fyrir eru, mun félags­svið auka virkni félags­manna sjálfra í stétta­bar­átt­unni. Vonandi ryður félags­svið Eflingar braut fyrir stór­eflda bar­áttu víðar í hreyf­ing­unni og í sam­fé­lag­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár