Mest lesnu viðtölin 2018

Hvað eiga Brenda Asiimire, Berg­þóra Heiða, Nargiza Salimova, Kári Stef­áns­son og Þor­gerður Katrín sam­eig­in­legt? Þau eru öll við­mæl­endur í mest lesnu við­tölum árs­ins á Kjarn­anum.

5. „Ísland er fallegt land en það er hægt að gera það enn fallegra“

„Brenda segir að erfitt geti reynst fyrir fólk að við­ur­kenna vanda­málið og rang­lætið. „Ísland er hið full­komna land, að sögn sumra. Og fólk er hrætt við að við­ur­kenna að svo sé ekki. En að við­ur­kenna mis­tök gerir landið ekki slæmt. Það veki fólk hins vegar til vit­undar,“ segir hún. Að við­ur­kenna mis­tökin og halda síðan áfram. Það sé svo ein­falt.

Útlend­inga­stofnun er ágæt stofnun, að hennar mati, en bregst þó erlendu fólki að ein­hverju leyti. „Þegar ég ákvað að skilja við eig­in­mann minn þá hafði ég mínar ástæður. Ég átti þá einn son sem var fjög­urra ára. Ég hafði unnið síðan ég kom til Íslands og hafði græna kortið á þessum tíma og sótt um rík­is­borg­ara­rétt. En þegar ég sótti um skilnað þá fékk ég viku síðar bréf frá Útlend­inga­stofnun þar sem þau báðu mig að skila græna kort­inu,“ segir hún. Þetta hafi verið áfall fyrir hana og segir hún að margar aðrar leiðir hefðu verið til í stöð­unni. En þegar kerfið sé svona hugs­un­ar­laust þá ger­ist svona hlutir. Nauð­syn­legt sé í aðstæðum sem þessum að líta á heild­ar­mynd­ina.

Hún bendir á að konur í slæmum hjóna­böndum muni ekki greina frá reynslu sinni. Ein ástæðan fyrir því sé að þær eru hræddar við að verða reknar úr landi. Þetta sé ennþá erf­ið­ara þegar börn eru komin í spilið. Margir menn hóti að taka börnin frá þessum konum og að þeim verði vísað úr landi. „Þess vegna tala þær ekki,“ segir hún. Þetta hafi ber­sýni­lega komið í ljós við lestur #metoo-frá­sagn­anna enda hafi þær sem komust út úr slæmum hjóna­böndum getað látið í sér heyra. Brenda seg­ist vita um margar konur sem geti það aftur á móti ekki af hræðslu við afleið­ing­arnar. Þær búi við slæmar aðstæður og hafi engan stað til að leita skjóls.“

Lesið við­talið í heild sinni hér.

[adspot]

4. Börn sem missa foreldri sitja ekki við sama borð og önnur

„Þegar Heiða missti mann­inn sinn voru þau að koma yfir sig þaki og byggja sig upp fjár­hags­lega en þau dvöldu erlendis á þessum tíma. Þau áttu, eins og fram hefur kom­ið, þrjú börn á umönn­un­ar­aldri sem gerði róð­ur­inn erf­iðan fyrir Heiðu. Hún segir að þrátt fyrir að hennar saga sé að sumu leyti frá­brugðin þar sem hún bjó ekki á Íslandi þegar hún varð ekkja þá hafi hún samt sem áður byrjað að leita réttar síns fljótt eftir áfall­ið.

Hún komst að því að ríkið verður með­lags­greið­andi við frá­fall maka en slíkar greiðslur kall­ast barna­líf­eyr­ir. Ekki sé aftur á móti hægt að fá tvö­faldan barna­líf­eyri í til­felli ekkna eða ekkla og enn fremur komi ríkið ekki til móts við fólk í sér­stökum til­fellum þar sem fjár­út­láta er þörf.

Heiða segir að erfitt geti reynst að fjár­magna ein­sömul tann­rétt­ing­ar, ferm­ing­ar, bíl­próf og þess háttar útgjöld en ólíkt ein­stæðum for­eldrum þá getur hún ekki sótt um sér­stök fram­lög þegar það á við. Henni finnst að með þessu sé verið að mis­muna börnum og að Trygg­inga­stofnun túlki lögin þannig að þau eigi ekki rétt á frek­ari fram­lög­um. Henni finnst mikið jafn­rétt­is­mál að allir skulu vera jafnir fyrir lögum en þegar börn ekkna eða ekkja eiga í hlut þá sé það ekki raun­in.“

Lesið við­talið í heild sinni hér.

3. Afglöp Rauða krossins draga dilk á eftir sér

„Börn Nargizu dvelja nú hjá föður hennar á heim­ili hans í Kirgistan en móðir hennar er látin. Hún hefur áhyggjur af þeim og langar hana að sam­eina fjöl­skyld­una. Hún talar við þau á hverjum degi og hennar helsta ósk er að fá tæki­færi til að byggja upp nýtt líf á Íslandi. Hún vill senda eftir börn­unum og búa þeim heim­ili hér.

Dvölin fjarri fjöl­skyld­unni hefur reynt mikið á Nargizu og þjá­ist hún að miklum kvíða og van­líðan en slíkt er ekki óal­gengt hjá konum í þess­ari stöðu. Í grein­ar­gerð til Útlend­inga­stofn­unar vegna umsóknar hennar um alþjóð­lega vernd kemur fram að hún sé metin í ein­stak­lega við­kvæmri stöðu en hún upp­lifir kvíða­köst eftir reynslu sína, fær martraðir og finnur fyrir mik­illi streitu. Jafn­framt segir í grein­ar­gerð­inni að konur og stúlkur séu gjarnan taldar sér­stak­lega við­kvæmur hópur sem hafi færri tæki­færi, úrræði, völd og áhrif en karl­menn vegna sam­fé­lags­legrar stöðu sinnar.

Mál Nargizu hjá Rauða kross­inum var ekki með­höndlað sem skyldi en þegar kom að því að kæra nið­ur­stöðu Útlend­inga­stofn­unar til kæru­nefndar útlend­inga­mála þá fórst það fyrir hjá lög­fræð­ingi hjálp­ar­stofn­un­ar­innar. Nargiza skilur ekki íslensku og var henni aldrei greint frá mis­tök­unum þar til íslenskir vinir hennar fóru að grennsl­ast fyrir um málið. Þá kom í ljós að vegna „per­sónu­legra ástæðna“ tals­manns Nargizu, sem var lög­fræð­ingur hennar hjá Rauða kross­inum, hafi verið komið í veg fyrir að ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar yrði kærð innan kæru­frests.“

Lesið við­talið í heild sinni hér.

2. Stefnulaust rekald

„Kári: Hlustaðu nú á mig! Það er bara þannig að svo margt í lækn­is­fræði er svona judgement-call. Og ef það er eng­inn sem hjálpar þér við að halda þig réttu megin við lín­una, þá ferðu yfir hana. Og það er ekk­ert gæða­eft­ir­lit, það er ekk­ert eft­ir­lit. Og ég er ekki í nokkrum vafa að allir þessir háls-nef- og eyrna­læknar hafa verið hund­rað pró­sent vissir um að það væri rétt í hvert ein­asta skipti sem þeir tóku háls­kirtla.

Jakob: Tann­lækn­ir­inn minn kall­aði mig aftur til sín í síð­ustu viku, nokkuð sem hann er ekki vanur að gera, og hann sagði: Jakob minn, ég varð nú að fá þig hingað fyrir jólin til að auka aðeins tekj­urnar. Hann sagði þetta að sjálf­sögðu í gríni en auð­vitað segir þetta manni að það sé ákveð­inn mögu­leiki til staðar.

Kári: Já, já. Já, já.

Jakob: Ég veit ekk­ert hvort hann fann í alvör­unni skemmd eða ekki!

Kári: Já, já, jú, jú. Þetta er flókið.“

Lesið við­talið í heild sinni hér.

1. Það sem ekki má ræða

„Þegar þessi rík­is­stjórn var mynduð tal­aðir þú um að það vant­aði frjáls­lynt afl í hana. Hvað átt­irðu við með því?

„Mér finnst þessi rík­is­stjórn vera ákveðin varð­staða utan um ákveðna hags­muni. Og sorg­legt að Vinstri græn hafi veitt Fram­sókn­ar­flokknum og Sjálf­stæð­is­flokknum svig­rúm og and­rými til þess að halda áfram á sömu braut. Til dæmis í land­bún­aðar- og sjáv­ar­út­vegs­málum. Og pen­inga­málum. Þetta eru heldur ekki mest alþjóðasinn­uðu flokk­arnir.“

Hún segir synd að sjá hvernig ákveðnir stjórn­ar­þing­menn og ráð­herrar í rík­is­stjórn­inni tali að hluta til niður EES-samn­ing­inn sem enn sé okkar mik­il­væg­asti við­skipta­samn­ingur. Sjálf­sagðir hlutir í dag hafi ekki verið það fyrir gild­is­töku EES. Hættan sé sú að íslenskir neyt­endur átti sig ekki á hversu mikið sá samn­ingur hafi gert fyrir sam­fé­lagið. Kannski vegna þess að stjórn­mála­menn og fjöl­miðlar hafi ekki upp­lýst fólk nægi­lega um mik­il­vægi evr­ópska efna­hags­svæð­is­ins. Frjáls og opinn mark­aður og alþjóða­sam­starf hafi sjaldn­ast verið til trafala.

Hún tekur sem dæmi að geta ferð­ast á milli Evr­ópu­landa og flutt ákveðna hluti með sér óhindrað, þrátt fyrir að það gildi ekki um allar land­bún­að­ar­vörur. „Vöru­úr­val eykst og verð lækkar. Fólk getur leitað eftir því nokkuð óhindrað að fá vinnu ann­ars staðar. Og við fengið hingað fólk að vinna sem býr yfir marg­vís­legri þekk­ingu. Svo ekki sé talað um sam­skipti við alþjóð­legu stór­fyr­ir­tækin. Á tímum þar sem þau eru sum hver orðin vold­ugri en ein­stök ríki. Löndin mega sín því lít­ils en saman geta þau spyrnt við ofur­valdi stór­fyr­ir­tækja eins og dæmin sanna. Í því felst mikil neyt­enda- og per­sónu­vernd.“

Lesið við­talið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2018

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár