Mest lesnu aðsendu greinar ársins 2018

Hvað eiga Klaust­ur­málið, raki í húsum, Pia Kjærs­gaard, skóla­kerfið á Íslandi og efna­hags­lífið sam­eig­in­legt? Þau eru við­fangs­efni þeirra aðsendu greina sem mest voru lesnar á Kjarn­anum í ár.

5. Um kurteisi

„„Aldrei hefur nokkur maður í nokk­urru landi haft nokk­urt gagn af nokk­urri danskri bók," mun Þor­leif­ur Repp hafa sagt, en hann mun hafa verið mestur Dana­hat­ari hér­lendur á sínum tíma. Hann var sér­sinna og þetta er ekki rifjað upp hér til að taka undir þessi orð heldur til að minna á hitt: Danir og Íslend­ingar eiga sam­eig­in­legar minn­ingar sem ná langt aftur og sam­band þjóð­anna var ekki á jafn­rétt­is­grund­velli. Herra­þjóð sem oft var vel­mein­andi að reyna að hjálpa þessu guðsvol­aða fólki þar sem allar fram­fara­til­raunir fuku á haf út eða voru nag­aðar upp til agna af kindum – og fátækt fólk sem vildi standa á eigin fótum og finna sínar leiðir við að lifa af í harð­býlu landi; og tókst það um síð­ir. Sumt er við­kvæmt í þessum minn­ingum – á báða bóga – og þarf oft lítið til að ýfa upp sár­indi, eins og ég skynj­aði stundum í gamla daga þegar ég vann sem „rengør­ingsassistent“ á dönsku elli­heim­ili og sumt gamla fólkið vildi gera upp sakir við mig vegna sam­bands­slit­anna 1944. Ég brosti bara afsak­andi og svo gáfu þau mér bolsíu og ég hélt áfram að skúra.

En það skiptir máli hvernig við högum sam­skiptum þess­ara gömlu sam­bands­þjóða. Undir brosum og blíðu bragði búa heitar til­finn­ing­ar. Íslensk van­meta­kennd bein­ist jafnan að Dönum og stundum er eins og sumir Danir hafi litið á Ísland sem sjálft krúnu­djá­snið sem þeir misstu; barnið sem fór að heiman án þess að kveðja. Maður blygð­að­ist sín þegar útrás­ar­gosar fóru að kaupa upp allt á Strik­inu - út á krít - og kenna Dönum hvernig þeir ættu að búa til pitsur og gefa út dag­blöð – með fyr­ir­sjá­an­legum kon­ung­legum gjald­þrot­um. Og manni sárn­aði þegar danskt afgreiðslu­fólk klippti íslensk greiðslu­kort í Hrun­inu.“

Lesið grein­ina í heild sinni hér.

4. Nýtt hrun á teikniborðinu

„Það er deg­inum ljós­ara að í orma­gryfju auð­jöfr­anna er verið að und­ir­búa næstu ráns­her­ferð á hendur almenn­ingi á Íslandi. Tæki­færið til að tappa vel af líf­eyr­is­sjóð­um, bönkum og eignum almenn­ings nálg­ast óðum. Allt klárt í næstu bylgju gjald­þrota, atvinnu­miss­is, eymdar og örviln­un­ar. Með gjöf rík­is­ins á Arion banka til ein­hverra aðila, sem eng­inn stjórn­mála­maður vill vita hvort heitir Ólafur eða Björgólf­ur, pétur eða páll, er verið að þung­vopna ræn­ingj­ana. Veislan er fyrir suma, aðrir borga.

Fyr­ir­tæki í bygg­ing­ar­iðn­aði sem eru flest rekin með svörtu vinnu­afli á launum undir lág­mark­s­töxt­um, raka til sín lánsfé úr bönk­un­um, skuldir hrann­ast upp, eig­endur og vild­ar­vinir kaupa ódýran gjald­eyri sem komið er úr landi sem skjót­ast, og svo telja auð­jöfr­arnir niður að núll­inu. Núll­inu þegar gengið hryn­ur, bank­arnir tómir, fyr­ir­tækin skilin eftir alls­laus og yfir­skuld­sett. Ein­hvern veg­inn kann­ast maður við aðferð­irn­ar. Látið er líta út fyrir að allt sé í blóma. Þegar í raun er eng­inn jarð­vegur eftir og frostkuld­inn sleikir nakta jörð.

Fram­legðin í íslensku atvinnu­lífi er ekki mik­il. Pen­ingar hlað­ast aftur á móti upp í bönkum og fjár­mála­fyr­ir­tækjum til notk­unar fyrir þá sem hafa skammtað sér for­rétt­indi á kostnað almenn­ings. Allur þessi banka­auður er í raun geld­fé. Brask banka og fjár­mála­fyr­ir­tækja með eignir , lönd og líf­eyr­is­sjóði er án alls eft­ir­lits og aðeins örfáir útvaldir hafa þar aðkomu. Gömlu útgerð­ar­furst­arnir eru bara smá­seiði miðað við hina nýju stétt auð­jöfra sem síð­asta hrun ól af sér.“

Lesið grein­ina í heild sinni hér.

3. Grætur húsið þitt?

„Við venju­legt heim­il­is­hald fjög­urra manna fjöl­skyldu getur raka­inni­hald og vatns­magn í lofti auk­ist um að minnsta kosti 40 lítra á viku. Heitt loft getur haldið þessum raka í meira magni en kalt loft. Þessi raki í loft­inu getur síðan orðið að vatni við það að kom­ast í snert­ingu við kaldan flöt. Hver þekkir ekki að gler­flaska sem er tekin út úr ísskáp ,,græt­ur“ á yfir­borði þegar við tökum hana út og þá sér­stak­lega ef heitt og rakt er í kringum okk­ur. Gott dæmi er kaldur svala­drykkur erlend­is.

Það sama ger­ist á veggj­um, við glugga og rúður í hús­unum okk­ar. Á vet­urna þegar það er kalt úti þá kólna vegg­fletir og rúður og rak­inn sem er í heitu röku lofti hjá okkur inn­an­dyra nær þá að dagga, eða falla út á þessum flöt­um, líkt og á svala­drykkn­um. Í ein­hverjum til­fellum má hrein­lega sjá vatn við glugga og oft telur hús­eig­andi að glugg­a­rnir hljóti að leka. En þegar betur er að gáð þá má merkja mun­inn á því að þessi raki kemur ekki ein­göngu við slag­veður eða í úrkomu, heldur einmitt á köldum vetr­ar­dög­um.

Í okkar veðr­áttu er ansi freist­andi að híma inn­an­dyra með lok­aða glugga og njóta hlýj­unn­ar. Húsin okkar eru ekki endi­lega á sama máli.“

Lesið grein­ina í heild sinni hér.

2. Skipulag leikskóla og grunnskóla – Tímaskekkja, jafnaðar- og velferðarskekkja

„En viti menn. Þá er þró­un­inni snúið við, meðal ann­ars með skekkju milli ábyrgð­ar­kvað­ar, álags, launa, mönn­unar og aðbún­aðar fag­hópa upp­eld­is­stétta. Fjölgun í stétt leiks-og grunn­kóla­kenn­ara svarar ekki þörf­inni, meðal ann­ars vegna þess að launin svara ekki kröfum um ábyrgð, sér­fræði­þekk­ingu og álag í starfi. Kenn­arar hafa ekki rými eða bol­magn til að mæta vænt­ingum um upp­eld­is­rækt. Stoð­kerfi er veikt. Skortur á auknu fagafli, m.a. skóla­hjúkr­un­ar­fræð­inga og skóla­fé­lags­ráð­gjafa til stuðn­ings kenn­urum á öllum skóla­stigum stingur í augu. Ofur­á­lag og van­máttur sem rekja má til umgjarðar starfs­ins kemur fram í starfs­þreytu og atgervis­flótta úr starfi. Gagn­rýni bein­ist óverð­skuldað að kenn­ur­um. Þá er verið að hengja bak­ara fyrir smið því smíð og skipu­lag skólaum­hverf­is­ins er á ábyrgð opin­berrar stefnu og fram­kvæmda­á­ætl­unar en ekki ein­stakra kenn­ara sem líða fyrir brest­ina.

Þær aðstæður leik- og grunn­skóla sem ógna fjöl­skyld­um, hjóna­bönd­um, og síð­ast en ekki síst ungum skóla­börnum vor, sumar og haust, eru óásætt­an­legar árið 2018. For­eldrar glíma við vanda og eiga oft í átökum sín á milli um skipt­ingu tím­ans til að geta brúað bil vinnu og barna­upp­eld­is. Ömmur og afar eru oft í hluta­starfi við að sinna barna­börnum auk ann­arra starfa og verk­efna sem þau sinna í sam­fé­lagi nútím­ans. Þær fjöl­skyldur sem ekki eiga traust bak­land í for­eldrum eða frænd­garði eru á köldum klaka. Það eru oft einmitt lág­launa­fjöl­skyldur sem ekki geta ráð­stafað vinnu­tíma sínum með sveigj­an­leika. Mögu­leikar þeirra eru tak­mark­að­ir. Það eru þeirra börn sem þá líða fyrir reiði­leysi og eru á ver­gangi þessa dag­ana. Stundum eru það einmitt þau sem eiga við kvíða og örygg­is­leysi að stríða fyrir og eru þá enn verr í stakk búin fyrir skóla­starfið og þátt­töku í félaga-og tóm­stunda­starfi. Þessar aðstæður stinga í stúf við hug­myndir vel­ferð­ar­sam­fé­lags­ins. Þær eru lík­legar til að auka ójöfnuð jafnt barna sem full­orð­inna og breikka gjá félags­legrar mis­munar og sið­ferð­is­legra mann­rétt­inda eftir stétt og afkomu. Gæfa slíks sam­fé­lags sem heildar verður í skötu­líki.“

Lesið grein­ina í heild sinni hér.

1. Karlar sem hringja í konur

„Eftir meltun vil ég segja eft­ir­far­andi: Að biðj­ast afsök­un­ar en reyna sam­tímis að hrút­skýra, eft­irá­skýra og hrein­lega ljúga til um það sem átti sér stað er ekki afsök­un­ar­beiðni. Að líkja mér við dýr og upp­nefna mig (og vegg) Freyju Eyju í kjöl­far aðgeng­is­breyt­inga er aug­ljós­lega eins fötl­un­ar­tengt og það getur orð­ið. Að taka mig fyrir með þessum hætti vegna þess að póli­tískar skoð­anir mín­ar, sem byggja á fem­inískum gild­um, hug­mynda­fræði mann­rétt­inda og upp­ræt­ingu ableis­ma, fara í taug­arnar á sumum körlum, ER fötl­un­ar­fyr­ir­litn­ing og kven­fyr­ir­litn­ing. Það er líka hlut­gerv­ing. Ég er ekki bara eins og dýr heldur líka dauður vegg­ur. Það er til þús­und og ein leið til þess að tjá skoð­ana­á­grein­ing önnur en að hæð­ast að lík­ama og útliti kvenna. Ég vildi óska þess að ég hefði getað sagt allt ofan­greint við umræddan mann en ég get varla lýst van­mætti mínum og van­líðan meðan á sím­tal­inu stóð.

Ég frá­bið mér frek­ari sím­töl þar sem ófatl­aður karl­maður í valda­stöðu talar niður til mín og reynir að útskýra fyrir mér hvað eru fötl­un­ar­for­dómar og hvað ekki. Eina eðli­lega sím­talið í stöð­unni væri að biðj­ast ein­læg­lega afsök­un­ar, án nokk­urra útskýr­inga eða mála­leng­inga, og segj­ast í ljósi gjörða sinna ætla að axla ábyrgð á ofbeld­inu sem við vorum beittar og segja af sér.“

Lesið grein­ina í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2018

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár