Mest lesnu fréttaskýringar ársins 2018

Hvað eiga ketó-matar­æði, valda­tafl í Sjálf­stæð­is­flokknum, Skelj­ungs­málið, skattar og metoo sam­eig­in­legt? Allt voru þetta við­fangs­efni mest lesnu frétta­skýr­inga árs­ins á Kjarn­anum.

5. Valdatafl í Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík

„Nýjustu átökin sem átt hefur sér stað á milli þess­ara fylk­inga hófust í fyrra. Nánar til­tekið í fyrra­sumar, áður en að rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar sprakk, leit fyrir að næstu stór­á­tök á hinu póli­tíska sviði yrðu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar sem fram fara í lok maí 2018.

Fyrsta alvöru orustan var háð á fundi Varðar, full­trúa­ráðs Sjálf­stæð­is­fé­lag­anna í Reykja­vík, 9. ágúst 2017. Í aðdrag­anda fund­ar­ins var ekk­ert sem benti til þess að til stæði að fjalla um val á lista fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar. Þar af leið­andi var ekki full­mætt á fund­inn. Engin dag­skrá var send til stjórn­ar­manna áður en að hann fór fram. Á fund­inum ákvað Gísli Kr. Björns­son, for­maður Varðar, hins vegar að halda umræðu og atkvæða­greiðslu um að leið­toga­kjör yrði haldið í aðdrag­anda borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna. Sú til­laga var sam­þykkt.

Það að farið yrði í leið­toga­kjör en stillt upp í önnur sæti á lista var fjarri því sem tíðkast hefur innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þar sem próf­kjör þykja lýð­ræð­is­leg­asta leiðin til að velja á lista og allar hömlur á slíku, líkt og til að mynda kynja­kvótar þótt til óþurftar.“

Lesið frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

4. Af hverju eru allir að tala um ketó?

„Ketó er stytt­ing á hug­tak­inu ketósa (e. ketos­is) sem er ekki megr­un­ar­kúr, heldur ástands sem lík­am­inn kemst í þegar hann skiptir orku­bú­skap lík­am­ans úr glúkósa (sykri) í fitu.

Þannig verður lík­am­inn nán­ast alveg laus við kol­vetni og afleið­ing þess verður sú að lifrin fer að fram­leiða ketóna sem lík­am­inn notar sem orku­gjafa í stað glúkós­ans. Til að kalla fram þetta ástand þarf sem sagt að tak­marka kol­vetni veru­lega í matar­æði en neyta þess í stað mik­illar fitu, svo­kall­aðrar „góðr­ar“ fitu, og hóf­legs magns af kol­vetn­um.

Þegar lík­am­inn hefur ekki glúkósa til að vinna úr nýtir hann ketón­ana sem orku­gjafa og brennir fitu­forða sem elds­neyti.“

Lesið frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

3. Sagan öll: Þetta er það sem verið er að rannsaka í Skeljungsmálinu

„Næstu árin virt­ist allt hafa gengið upp hjá Skelj­ungi. Félagið hagn­að­ist um tæpan 1,5 millj­arð króna á árunum 2010 og 2011. Í febr­úar 2012 end­ur­fjár­magn­aði Arion banki allar skuldir móð­ur­fé­lags Skelj­ungs sem greiddi með því upp allar skuldir sínar við Íslands­banka. Þar með var slitið á tengslin við for­tíð­ina. Heild­ar­skuldir voru enn háar, um 10,6 millj­arðar króna í lok árs 2011, en eig­in­fjár­staðan var jákvæð um 3,7 millj­arða króna.

Í til­kynn­ingu frá félag­inu vegna þess­arar afkomu sagði að mark­miðið með þessum við­skiptum hefði verið að stuðla „að vexti félags­ins, auka verð­gildi þess og jafn­framt að gera það að áhuga­verð­ari fjár­fest­ing­ar­kost­i". Þar sagði enn fremur að „mikil umbreyt­ing [hefði] átt sér stað á rekstri og efna­hag Skelj­ungs á und­an­förnum árum […] Nettó vaxta­ber­andi skuldir þess eru kr. 4.882 millj. og hafa lækkað um kr. 6.980 millj. síðan núver­andi eig­endur komu að rekstr­inum haustið 2008".

Skýr­ingar á þess­ari lækkun á skuldum voru nokkr­ar. Sú sem mestu skipti var svokölluð höf­uð­stólsleið­rétt­ing á skuldum sem Íslands­banki bauð fyr­ir­tækjum upp á. Við hana voru erlend lán Skelj­ungs færð yfir í krón­ur. Í öðru lagi hafði hagn­aður félags­ins verið ágætur auk þess sem það seldi höf­uð­stöðvar sínar árið 2011. Það gerði Skelj­ungi kleift að greiða hraðar niður skuld­ir.“

Lesið frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

2. Tekjuhæstu Íslendingarnir borga ekki endilega hæstu skattana

„Einar Friðrik Sig­urðs­son og Ármann Ein­ars­son voru báðir á meðal eig­enda útgerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Auð­bjargar, sem selt var til Skinn­eyjar Þinga­ness á árinu 2016. Einar Friðrik var með rúm­lega 1,9 millj­arða króna í fjár­magnstekjur vegna þeirrar sölu og Ármann fékk um 794 millj­ónir króna í sinn hlut vegna hennar. Þetta gerði þá að fjórða og sjö­unda tekju­hæsta Íslend­ingnum á árinu 2016.

Það vekur raunar athygli að þorri tekju­hæsta fólks lands­ins gefur upp mjög lágar launa­tekjur í flestu eðli­legu sam­hengi. Sá sem situr til dæmis í níunda sæti yfir tekju­hæstu lands­menn árs­ins 2016, Grímur Garð­ars­son, var með 52.789 krónur á mán­uði í laun en 744 millj­ónir króna í fjár­magnstekjur.

Eini ein­stak­ling­ur­inn á topp tíu yfir tekju­hæstu lands­menn­ina sem gefur upp laun sem eru yfir einni milljón króna er Guð­mundur Krist­jáns­son, oft­ast kenndur við Brim en í dag for­stjóri og aðal­eig­andi HB Granda. Hann var með launa­tekjur upp á 2.830 þús­und krónur á mán­uði á árinu 2016 en þén­aði fjár­magnstekjur upp á tæp­lega 1,1 millj­arð króna á því ári. Fyr­ir­tæki Guð­mundar, sem þá hét Brim en heitir nú Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, var auð­vitað kaup­and­inn að Ögurvík, við­skiptum sem skil­aði þeim sem sitja í efstu sætum tekju­list­ans. Áhrif Guð­mundar á tekjur Íslend­inga eru því veru­leg.“

Lesið frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

1. #Metoo: Konur af erlendum uppruna stíga fram

„Frá­sagnir þeirra eru átak­an­legar. Ein fjallar um það að eig­in­maður hafi litið á eig­in­konu sína sem hlut sem hann gat notað þegar hann vildi. Nánast alltaf var um að ræða kyn­ferð­is­legt athæfi og mað­ur­inn kom fram vilja sínum þrátt fyrir kona hans segði skýrt nei.

Önnur frá­sögn er af því þegar kona sem ráðin var til að þrífa heima hjá auð­ugum íslenskum hjónum verður fyrir kyn­ferð­is­of­beldi af hendi vinnu­veit­anda síns sem hélt henni nauð­ugri, sleikti í framan og niður að brjóstum hennar. Í kjöl­farið sagði mað­ur­inn að honum hafi alltaf langað til að vita hvernig lituð kona bragð­að­ist. Tveimur dögum síðar var konan rekin úr starfi af eig­in­konu manns­ins.

Ein konan segir frá því að hún hafi þurft að „borga“ fyrir að kom­ast til Íslands með því að stunda kyn­líf með mann­inum sem flutti hana hingað. Hún var einnig neydd til þess að stunda kyn­líf með tveimur vinum hans. Þetta ástand hafi staðið yfir í þrjú ár, eða þar til að kval­ari hennar fann sér yngri inn­flytj­anda í hennar stað. Hún seg­ist hata karl­menn í dag og að hún muni aldrei geta notið kyn­lífs eftir reynslu sína. „Ég vil aldrei fæða barn inn í heim þar sem svona hlutir geta átt sér stað,“ segir konan í frá­sögn sinni.“

Lesið frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2018

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár