Af hverju eru allir að tala um ketó?

Svo virð­ist vera sem annar hver maður sé að skera niður kol­vetnin um þessar mundir, annað hvort úti­loka þau algjör­lega eða lág­marka. Þannig bygg­ist matar­æðið mest megnis upp af fitu og próteinum. Kjarninn skoð­aði ketó matar­æðið, kosti þess og galla.

Lág­kol­vetna, paleó eða ketó matar­æðið. Svo virð­ist vera sem annar hver maður sé að skera niður kol­vetnin í lík­am­anum um þessar mundir, annað hvort úti­loka þau algjör­lega eða lág­marka. Þannig bygg­ist matar­æði á fyrr­greindum kúrum mest megnis uppp af fitu og próteinum.

Lág­kol­vetna­matar­æðið varð sér­stak­lega vin­sælt í kringum árið 2013. Það var svo sem ekk­ert fyrsta æðið af þessum dúr, mörgum árum fyrr varð Atikins-kúr­inn afar vin­sæll, sem í minn­ing­unni var nokkurn veg­inn þannig að þátt­tak­endur drukku beikon­fitu dag­inn út og inn. Síðar kom stein­ald­ar­matar­æðið eða paleo, þar sem sneytt er fram­hjá öllu því sem „stein­ald­ar­mað­ur­inn“ hefði ekki getað nýtt sér. Með öðrum orðum öllum unnum mat: mjólk­ur­vörum, unnum kjöt­vörum og auð­vitað hveiti og sykri.

Nýjasta æðið er ketó-matar­æðið. Allt byggir þetta þó á sama grunni, að tak­marka kol­vetnin sem mest.

Hvað er ketó?

Ketó er stytt­ing á hug­tak­inu ketósa (e. ketosis) sem er ekki megr­un­ar­kúr, heldur ástands sem lík­am­inn kemst í þegar hann skiptir orku­bú­skap lík­am­ans úr glúkósa (sykri) í fitu.

Þannig verður lík­am­inn nán­ast alveg laus við kol­vetni og afleið­ing þess verður sú að lifrin fer að fram­leiða ketóna sem lík­am­inn notar sem orku­gjafa í stað glúkós­ans. Til að kalla fram þetta ástand þarf sem sagt að tak­marka kol­vetni veru­lega í matar­æði en neyta þess í stað mik­illar fitu, svo­kall­aðrar „góðrar“ fitu, og hóf­legs magns af kol­vetnum.

Þegar lík­am­inn hefur ekki glúkósa til að vinna úr nýtir hann ketón­ana sem orku­gjafa og brennir fitu­forða sem elds­neyti.

Hvernig?

Til að kom­ast í ketósu fást þær óvís­inda­legu upp­lýs­ingar frá áhuga­fólki að hlut­föllin í matar­æð­inu eigi að vera eft­ir­far­andi:

Kolvetni 2-5%

Prótein 12-20%

Fita: 75-80%

Fæstir borða fæðu í þessum hlut­föllum alla jafna og margir halda afar nákvæmt bók­hald fyrir kalor­íur sem og , fitu-, prótein- og kol­vetna­inn­töku sína. Í þessu felst því tölu­verð lífstíls­breyt­ing fyrir flesta þegar kemur að neyslu á mat. Þetta úti­lokar með öllu korn­vörur og þannig brauð, sæta­braut og pasta, sykur og sæl­gæti, ávexti utan berja, sterkju­ríkt græn­meti. Allir útúr­dúrar frá þessu, svindldagar, valda því að lík­am­inn ein­fald­lega fer úr ketósu ástand­inu og aftur yfir í kol­vetna­brennslu.

Í upp­hafi ferl­is­ins, þegar verið er að koma lík­am­anum í ketósu ástand, verða margir varir við svo­kall­aða ketó flensu. Þá fellur orkan í lík­am­anum niður meðan lifrin er að byrja að mynda ketóna. Þá þarf að passa að inn­byrgða sölt, kal­íum, kalk og stein­efni.

Flestir finna vel fyrir því þegar þeir kom­ast síðan í ketósu ástandið og kol­vetna-fíknin er að baki.

Af hverju?

Í hug­leið­ingum Axels F. Sig­urðs­sonar hjarta­læknis á heima­síðu hans Mataræði.is kemur fram að engar rann­sóknir hafi sýnt fram á að þetta ketósis ástand sé nei­kvætt eða hættu­legt. Tryggja þurfi að vökva­inn­taka sé nægj­an­leg og að ekki verði skortur á nauð­syn­legum nær­ing­ar­efnum. Axel seg­ist ein­ungis mæla með lág­kol­vetna­matar­æði fyrir einkstak­linga sem eru of þungir og þurfa að létt­ast, ein­stak­linga sem glíma við efna­skipta­villu, syk­ur­sýku af teg­und -2 eða háþrýst­ing sem rekja megi til ofþyngdar eða offitu. Hann mælir ávallt með því að ráð­færa sig við lækni, nær­ing­ar­fræð­ing eða aðra fag­að­ila eigi að breyta svo drastískt um matar­æði. Þá hefur Axel tekið saman tíu jákvæð heilsu­sam­leg áhrif lág­kol­vetna­matar­æðis þar sem hann vísar ítar­lega í rann­sóknir sem gerðar hafa verið á þessu matar­æði og ástandi:

1. Þú munt mjög lík­lega grenn­ast. Fjöldi rann­sókna og ára­löng reynsla hefur sýnt að flestir létt­ast umtals­vert á lág­kol­vetna­matar­æði. Mis­mund­andi er hversu mikið þyngd­ar­tapið verður. Það veltur m.a. á því hversu harka­lega þú gengur fram í byrjun við að sneiða hjá kol­vetnum.

2. Blóð­sykur lækkar. Fjöldi rann­sókna hefur sýnt jákvæð áhrif lág­kol­vetna­matar­æðis á blóð­sykur. Þetta getur skipt miklu máli ef þú ert með syk­ur­sýki eða for­stig hennar.

3. Blóð­þrýst­ingur lækkar. Hár blóð­þrýst­ingur er einn af sterk­ustu áhættu­þáttum hjarta-og æða­sjúk­dóma. Margar rann­sóknir hafa sýnt að blóð­þrýst­ingur lækkar hjá þeim sem til­einka sér lág­kol­vetna­matar­æði.

4. Þrí­g­lýser­íðar í blóði lækka. Hátt magn þrí­g­lýser­íða í blóði er einn af áhættu­þáttum hjarta-og æða­sjúk­dóma. Margir ein­stak­lingar með með efna­skipta­villu og/eða offitu glíma við þetta vanda­mál. Margar rann­sóknir hafa sýnt nokkuð óyggj­andi að lág­kol­vetna­fæði lækkar magn þrí­g­lýser­íða í blóði.

5. HDL-kól­esteról (góða kól­ester­ólið) hækkar. Öfugt sam­band er á milli magns HDL-kól­ester­óls í blóði og hætt­unnar á hjarta-og æða­sjúk­dómum.Með öðrum orðum, því hærra sem HDL-kól­esteról er, því betra. Margar rann­sóknir hafa sýnt að lág­kol­vetna­fæði hækkar magn HDL-kól­ester­óls í blóði.

6. LDL- prótínagnir stækka. Kól­esteról sem bundið er LDL prótínum er oft kallað slæma eða vonda kól­ester­ólið. Ástæðan er sú að magn þess í blóði teng­ist sterk­lega hætt­unni á að fá hjarta-og æða­sjúk­dóma. Rann­sóknir hafa sýnt að þvi hærra sem LDL kól­es­eról er, því meiri er hættan á hjarta-og æða­sjúk­dómum. Margar nýlegar rann­sóknir hafa bent til þess að verra sé að hafa mikið af smáum en stórum LDL-prótínögnum. Þannig er hættan á hjarta-og æða­sjúk­dómum allt að þrefalt hærri ef LDL-agnir eru smáar en ef þær eru stórar. Rann­sóknir hafa sýnt að lág­kol­vetna­fæði hefur jákvæð áhrif á stærð þess­arra agna með því að draga úr fjölda smárra agna.

7. Fjöldi LDL-prót­inagna (LDL-P) minnkar. Mælingar á LDL-P í blóði eru nú gerðar í vax­andi mæli erlendis. Rann­sóknir benda til þess að LDL-P hafi sterkara for­spár­gildi um hætt­una á hjarta-og æða­sjúk­dómum en LDL-kól­esteról. Rann­sóknir benda til þess að lág­kol­vetna­matar­æði leiði til lækk­unar á LDL-P.

8. Insúl­ín­mót­staða minnkar. Insúlín er eitt af mik­il­væg­ustu horm­ónum lík­am­ans og er for­senda eðli­legra sykur­efna­skpta. Þegar insúl­ín­mót­staða er mikil þurfa frumur lík­am­ans meira magn insúl­íns til að við­halda eðli­legum sykur­efna­skiptum. Tengsl virð­ast á milli insúl­ín­mót­stöðu og hætt­unnar á hjarta-og æða­sjúk­dómum. Rann­sóknir benda til að lág­kol­vetna­matar­æði dragi meira úr insúl­ín­mót­stöðu en fitu­skert matar­æði.

9. Insúl­ín­magn í blóði lækkar. Ein­stak­lingar með insúl­ín­mót­stöðu hafa yfir­leitt hátt magn insúl­íns í blóði. Hátt magn insúl­íns í blóði er sjálf­stæður áhættu­þáttur fyrir hjarta-og æða­sjúk­dómum. Þess vegna er senni­lega jákvætt að lækka insúl­ín­magn í blóði hjá ein­stklingum með efna­skipta­villu eðe offitu. Rann­sóknir hafa sýnt að lág­kol­vetna­matar­æði lækkar insúl­ín­magn í blóði.

10. CRP (C-reactive prot­ein) lækkar. CRP magn í blóði hækkar þegar bólgur eru til staðar í lík­am­anum. Margar rann­sóknir benda til þess að bólgur gegni mik­il­vægu hlut­verki í til­urð hjarta-og æða­sjúd­kóma. Hægt er að gera mjög næmar mæl­ingar á CRP, svo­kallað hsCRP (high sensiti­vity CRP). Þetta efni er mjög sterkur sterkur áhættu­þáttur fyrir hjarta-og æða­sjúk­dóma. Rann­sóknir benda til þess að lág­kol­vetna­fæði lækki magn hsCRP í blóði sem gæti bent til þess að slíkt fæði dragi úr bólgu­svörun í lík­am­anum.

Axel segir átök meðal fag­fólks um hvaða matar­æði sé best tl að halda góðri heilsu og forð­ast sjúk­dóma. Hann segir átökin hafa staðið í meira en hálfa öld og fátt bendi til þess að þeim ljúki á næst­unni. Fræði­menn og áhuga­fólk um matar­æði skipi sér gjarnan í lið. „Eitt liðið fylgir hefð­bundnum mann­eld­is­mark­miðum, varar við neyslu mett­aðrar fitu og kól­ester­óls og hvetur til hlut­falls­lega mik­illar kol­vetna­neyslu. Annað lið telur neyslu syk­urs og kol­vetna vera vanda­mál og undri­rót offitu­vand­ans. Síð­ar­nefnnda liðið telur rangt að vara við fitu­neyslu, að trans­fitu und­an­skil­inni. Þriðja liðið, græn­metisæt­urnar, leggur áherslu á að neyta ekki afurða úr dýra­rík­inu. Paleo-liðið (stein­ald­ar­matar­æðið) telur að best sé að borða allt sem við getum veitt og týnt og forð­ast allar unnar mat­vörur. Svona mætti lengi telja, liðin eru mörg og list­inn því langur.“

Hann segir þó enga þörf á því að velja sér eitt þess­ara liða, en sé ekki í vafa um að gott og hollt matar­æði sé lyk­ill­inn að góðri heilsu. „Með því að lesa okkur til um matar­æði og fræð­ast, öðl­umst við þekk­ingu til að meta hvað okkur er fyrir bestu. Við getum hæg­lega til­einkað okkur það besta frá hverju liði og farið okkar eigin leiðir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár