Drífa Snædal: Klaustursmálið hefur áhrif á trúverðugleika Íslendinga sem boðberar jafnréttis

Drífa Snædal segir að fréttir af hegðun þing­mann­anna sex á Klaustur bar hafi haft áhrif á trú­verð­ug­leika Íslend­inga sem boð­berar jafn­réttis á alþjóða­vett­vangi. Hún segir að Íslend­ingar megi aldrei sætta sig við nið­ur­lægj­andi tal um minni­hluta­hópa.

Drífa Snædal
Drífa Snædal Mynd: Hringbraut

Drífa Snædal for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands segir að hegðun þing­mann­anna sex á Klaust­ur­bar hafi haft áhrif á trú­verð­ug­leika Íslend­inga sem boð­bera jafn­réttis á alþjóða­vett­vangi. Hún segir að Íslend­ingar verði að hætta að láta eins og þeir séu með þetta og í stað­inn taka til í eigin ranni. 

„Hegðun nokk­urra þing­manna hefur því haft áhrif á trú­verð­ug­leika okkar sem boð­berar jafn­réttis á alþjóða­vett­vangi. Það er sárt og óþol­andi þó ég hafi aldrei verið sann­færð um að við værum sú jafn­rétt­is­þjóð sem við gefum okkur út fyrir að vera á tylli­dögum! Hættum að láta eins og við séum með þetta og tökum til í eigin ranni, ein­ungis þannig getum við farið í trú­boð um heim­inn,“ segir Drífa Snædal í viku­legum pistli á vef ASÍ.

Við megum aldrei sætta okkur við niðurlægjandi tal um minnihlutahópa

Drífa er stödd á fjórða þingi Alþjóða­sam­bands verka­lýðs­fé­laga (ITUC) í Kaup­manna­höfn. Hún var kjör­inn vara­maður í stjórn ITUC í gær og sat í fram­hald­inu á stjórn­ar­fundi sam­bands­ins. Hún segir að fylgst hafa verið vel með fréttum að heiman í Kaup­manna­höfn og að í kjöl­farið hafi hún fengið fjölda spurn­inga um „enn eitt hneykslið í íslenskum stjórn­málum“ sem ratað hefur í heims­frétt­irnar.

Hún leggur áherslu á að þegar hat­urs­orð­ræða líð­ist þá gefi það leyfi til mis­munar í launum, stig­veldi og elur á beinu ofbeldi. „Við megum aldrei sætta okkur við nið­ur­lægj­andi tal um minni­hluta­hópa, slíkt er ofbeldi í sjálfu sér. Þegar hat­urs­full orð­ræða líðst gefur það leyfi til mis­mun­unar í launum, stig­veldi og elur á beinu ofbeldi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verkalýðsfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár