Stjórnvöld ekki lagt neitt handfast fram til að leysa húsnæðisvandann

Í ályktun ASÍ kemur fram að það hafi verið ljóst árum saman að gera þurfi þjóð­ar­á­tak í hús­næð­is­málum. Fjöldi fólks sé fast í viðjum okur­leigu, hús­næðisó­ör­yggis, það geti ekki keypt og margir búi í við óvið­un­andi aðstæður.

Stjórn­völd hafa ekki lagt neitt hand­fast fram til lausnar þeim gríð­ar­lega vanda sem blasir við í hús­næð­is­málum. Þá vantar til­lögur í skatta­málum sem er þó lyk­ill­inn að kröfum um auk­inn jöfnuð.

Þetta kemur fram í ályktun mið­stjórnar ASÍ um aðgerðir í hús­næðis- og skatta­málum.

Alþýðu­sam­band Íslands skorar á stjórn­völd að hraða allri vinnu er lýtur að kröfum verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar í kom­andi kjara­við­ræðum. „Ef aðgerða- og skiln­ings­leysið sem hefur ein­kennt við­brögð stjórn­valda heldur áfram er ljóst að erfitt mun reyn­ast fyrir aðila vinnu­mark­að­ar­ins að ganga frá nýjum kjara­samn­ingi. Það er aðeins rétt rúmur mán­uður þangað til kjara­samn­ingar renna út,“ segir í álykt­un­inni.

Í henni segir enn fremur það hafa verið ljóst árum saman að gera þurfi þjóð­ar­á­tak í hús­næð­is­málum. Fjöldi fólks sé fast í viðjum okur­leigu, hús­næðisó­ör­yggis, það geti ekki keypt og margir búi í við óvið­un­andi aðstæður. Þessi staða sé meðal ann­ars til­komin vegna aðgerð­ar­leysis stjórn­valda og sveita­stjórna. Og hafi verka­lýðs­hreyf­ingin þó í langan tíma bent á vand­ann.

„Það er orðið sjálf­stætt úrlausn­ar­efni að laga hús­næð­is­mark­að­inn, enda liggur fyrir að þær kjara­bætur sem samið hefur verið um síð­ustu ár hafa brunnið upp á báli hús­næð­is­kostn­aðar. Það þarf rót­tækar breyt­ingar á kerf­inu þannig að hags­munir launa­fólks og heim­ila verði teknir fram yfir hags­muni fjár­magns­eig­enda. Breyting á skatt­kerf­inu er mik­il­vægur áfangi á þeirri veg­ferð að vinda ofan af þeirri stóru skatta­til­færslu sem orðið hefur síð­ustu ár þar sem lág­launa­hópar hafa verið látnir borga reikn­ing­inn fyrir rík­asta hluta þjóð­ar­innar. Hér þarf breytta for­gangs­röð. Það er kom­inn tími til að hags­munir lág-og milli­tekju­fólks verði hafðir að leið­ar­ljósi með breyt­ingum á skatt­kerf­inu og hækkun á barna-og vaxta­bóta­kerf­inu,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár