ÖBÍ leiðréttir fjármálaráðherra

Öryrkja­banda­lag Íslands segir full­yrð­ingar Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra rangar um að bætur til líf­eyr­is­þegar hefðu hækkað um 1,1 milljón króna á ári frá árinu 2010.

1. maí kröfuganga 2018.
1. maí kröfu­ganga 2018. Mynd: Bára Huld Beck

Öryrkja­banda­lag Íslands segir full­yrð­ingar Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra á Alþingi í gær vera rangar. Þar sagði hann að bætur til líf­eyr­is­þegar hefðu hækkað um 1,1 milljón króna á ári frá árinu 2010. Það væri hækkun sem næmi hátt í 92 þús­undum á mán­uði, á hvern mann í hverjum mán­uði und­an­farin átta ár.

Þetta kemur fram í frétt banda­lags­ins í dag. 

ÖBÍ segir að erfitt sé að koma þessum upp­lýs­ingum heim og saman við þann veru­leika sem öryrkjar búa við.

Í frétt­inni kemur jafn­framt fram að fjár­mála­ráð­herra hafi svarað mörgum óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum í þing­inu í gær. Honum hafi verið tíð­rætt um mis­skiln­ing þing­manna í svörum sínum. Í svari við fyr­ir­spurn frá þing­manni Mið­flokks­ins sagði hann meðal ann­ars þetta um hækkun bóta og aukn­ingu kaup­máttar á árunum 2010 til 2017.

„Hvað þýðir þetta í auknum bóta­rétti fyrir hvern og einn bóta­þega? Þetta þýðir að bæt­urnar hafa hækkað fyrir hvern og einn bóta­þega um 1,1 milljón á ári. Hvers vegna stendur þá þessi hv. þing­maður hér og heldur því fullum fetum fram að þessi hópur hafi alger­lega setið eftir? Tölurnar sýna allt annað,“ sagði Bjarni.

Flestir öryrkjar með örorkulífeyrisgreiðslur langt undir 300 þúsund krónum

ÖBÍ segir að stað­reyndin sé hins vegar sú að flestir öryrkjar séu með örorku­líf­eyr­is­greiðslur langt undir 300 þús­und krónum á mán­uði, fyrir skatt. Einungis 29 pró­sent örorku­líf­eyr­is­þega fái 300 þús­und króna grunn­fram­færslu á mán­uði sem hafi náðst fram með gríð­ar­legum þrýst­ingi á stjórn­völd við gerð fjár­laga þessa árs. Sjö af hverjum tíu sitji enn úti í kuld­anum.

Þá er bent á það í umsögn ÖBÍ við frum­varp til fjár­laga næsta árs, að kaup­máttur öryrkja hafi nær ekk­ert auk­ist á því tíma­bili sem ráð­herr­ann talar um. Raunar hafi hann verið nei­kvæður megnið af tíma­bil­inu, þar sem umrædd kaup­mátt­ar­aukn­ing síð­ustu ára hafi ekki náð til örorku­líf­eyr­is­þega. Stað­reyndin sé sú að á árunum 2010 til 2017 hafi óskertur líf­eyrir ein­ungis hækkað um 74.383 krónur sam­an­lagt á mán­uði á meðan þing­far­ar­kaup hækk­aði um 581.190 krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár