Brotamönnum gert kleift að sitja í stjórn FME tíu árum eftir dóm

Í til­lögum dóms­mála­ráð­herra um breyt­ingar á lögum vegna upp­reist æru er lagt til að menn sem hafa framið alvar­leg lög­brot verði sjálf­krafa hæfir til að sitja í stjórn Fjár­mála­eft­ir­lits­ins tíu árum eftir að þeir voru dæmdir. Tillagan er ekki rök­studd.

Sigríður Andersen er dómsmálaráðherra.
Sigríður Andersen er dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Verði frum­varp Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra, um breyt­ingar á ýmsum lögum vegna afnáms ákvæða um upp­reist æru, að lögum mun verða dregið veru­lega úr þeim hæf­is­skil­yrðum sem þarf að upp­fylla til að sitja í stjórn Fjár­mála­eft­ir­lits­ins (FME). Skýring á því hvers vegna dregið sé úr hæfi mann til að stýra Fjár­mála­eft­ir­lit­inu er ekki rök­studd í grein­ar­gerð.

[links]Þetta kemur fram í umsögn Alþýðu­sam­bands Íslands um frum­varpið sem skilað var inn í gær. Í umsögn­inni, sem er und­ir­rituð af Magnúsi M. Norðdahl, lög­fræð­ingi sam­bands­ins, eru gerðar marg­hátt­aðar athuga­semdir við frum­varp Sigríðar.

Einn liður frum­varps­ins snýr að þvi að breyta lögum um eft­ir­lit með fjár­mála­starf­semi. Í þeim lögum er fyrir skýrt ákvæði um að stjórn­ar­menn Fjár­mála­eft­ir­lits­ins skuli „hafa óflekkað mann­orð og mega ekki í tengslum við atvinnu­rekstur hafa hlotið dóm fyrir refsi­verðan verknað sam­kvæmt almennum hegn­ing­ar­lögum eða lögum um hluta­fé­lög, einka­hluta­fé­lög, bók­hald, árs­reikn­inga, gjald­þrot eða þeim sér­lögum sem gilda um eft­ir­lits­skylda aðila.“

Í til­lögum Sigríðar felst afnám kröf­unnar um að stjórn­ar­menn í Fjár­mála­eft­ir­lit­inu hafi óflekkað mann­orð. Í umsögn Alþýðu­sam­bands­ins segir hins vegar að auk hennar sé „þeim sem gerst hafa sekir um um alvar­leg brot á hegn­ing­ar­lögum, lögum á sviði fjár­mála­mark­aðar eða félaga eða þolað íþyngj­andi stjórn­valds­á­kvarð­anir sem ein­stak­lingar eða for­svars­menn fyr­ir­tækja, veitt sjálf­krafa hæfi að liðum 10 árum eftir hafa verið dæmdir.“

[adspot]Alþýðu­sam­bandið segir þessa laga­breyt­ingu ekki vera í neinu sam­ræmi við aðrar laga­breyt­ingar sem lagðar eru fram í frum­varp­inu. Tillögur dóms­mála­ráð­herra um breyt­ingar á lögum um almennar íbúðir og lögum um kaup­hallir gera ráð fyrir því að krafan um óflekkað mann­orð sé fjar­lægð „en til­tekin brot úti­loka áfram frá hæfi. Skýring á því hvers vegna dregið er úr hæfi manna til þess að stýra Fjár­mála­eft­ir­lit­inu er ekki rök­studd í grein­ar­gerð.“

Endurskoðun legið í loftinu

Heild­ar­end­ur­skoðun á því fyr­ir­komu­lagi sem falist hefur í upp­reist æru hefur legið í loft­inu í rúmt ár. Ástæðan eru þær opin­ber­anir sem urðu í sept­em­ber 2017, þegar úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál komst að þeirri nið­ur­stöðu að fjöl­miðlar ættu að fá afhent gögn sem tengd­ust upp­reisn æru dæmdra saka­manna. Þá um sum­arið höfðu mál dæmdra barn­a­níð­inga sem hlotið höfðu slíka með­ferð verið mjög til umræðu og þolendur og ætt­ingjar þeirra höfðu kraf­ist svara um af hverju við­kom­andi brota­menn höfðu hlotið upp­reist æru.

Gögn í máli Róberts Downey, dæmds barn­a­níð­ings, voru birt 12. sept­em­ber 2017. Strax lá fyrir að sú nið­ur­staða yrði for­dæm­is­gef­andi fyrir önnur mál sem snéru að upp­reist æru og sam­hliða var sagt frá því að önnur gögn er vörð­uðu upp­reist æru aftur til árs­ins 1995 yrðu líka birt á næst­unni.

Mál sem sprengdi ríkisstjórn

Á þessum tíma hafði verið hávær orðrómur um að faðir Bjarna Bene­dikts­sonar, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, væri á meðal þeirra sem hefðu skrifað með­mæla­bréf fyrir Hjalta Sigurjón Hauksson, mann sem var dæmdur í fimm og hálfs árs fang­elsi fyrir að níð­ast kyn­ferð­is­lega á stjúp­dóttur sinni árum saman. Brotin hófust þegar hún var fimm ára og stóðu yfir, sam­kvæmt dómi, þar til hún flutti að heima um 18 ára aldur. Í þeim fólst meðal ann­ars nær dag­legt sam­ræði.

[adspot]Fjöl­miðlar höfðu spurst fyrir um málið en ekki fengið svör og því hékk málið í loft­inu í næstum tíu daga. Mikið var um það rætt en stað­fest­ingu vant­aði. Hún fékkst svo 14. sept­em­ber.

Þá sendi Bene­dikt Sveins­son, faðir Bjarna, frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann gekkst við því að vera einn þeirra sem skrif­uðu undir með­mæla­bréf með upp­reist æru Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­son­ar. Þáver­andi og núver­andi dóms­mála­ráð­herra, Sigríður Á. Andersen, greindi frá því síðar sama dag að hún hefði greint Bjarna frá því í júlí að faðir hans væri á meðal með­mæl­enda Hjalta, en á þeim tíma fengu aðrir ekki upp­lýs­ingar um málið.

Daginn eftir sprakk rík­is­stjórnin og boðað var til kosn­inga.

Tekið á ógagnsærri og tilviljunarkenndri framkvæmd

Frumvarp Sigríðar var lagt fram í októ­ber. Með því á að takast á við þau vanda­mál sem risið hafa vegna ógagn­særrar og til­vilj­ana­kenndrar fram­kvæmdar um upp­reist æru.

Í grein­ar­gerð þess segir m.a.: „Viðhorf til refs­inga og rétt­inda fanga hafa tekið umtals­verðum breyt­ingum með þróun mann­rétt­inda og alþjóð­legum mann­rétt­inda­skuld­bind­ingum. Almennt má segja að þró­unin sé í þá átt að hverfa frá því að menn missi borg­ara­leg rétt­indi þegar þeir eru dæmdir til fang­els­is­refs­ingar. Jafn­framt hefur þró­unin orðið sú að rétt­inda­tak­mörk­unin verði ein­göngu sú sem óhjá­kvæmi­lega leiðir af frels­is­svipt­ing­unni. Ef tak­marka á borg­ara­leg rétt­indi ein­stak­linga verður það ekki gert nema sér­stak­lega sé mælt fyrir um það með lögum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

uppreistæru

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár