Uppreist æra setið á hakanum

Sigríður Á. Andersen svar­aði spurn­ingum full­trúa flokk­anna á fundi stjórna­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis í morgun.

Sigríður Á. Andersen
Sigríður Á. Andersen Mynd: Skjáskot/Alþingi

Ástæðan fyrir því að reglum um upp­reist æru hafi ekki verið breytt fyrr telur Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra vera að þessar beiðnir séu svo umsvifa­lítil verk­efni. Þau hafi orðið undir í verk­efnum ráðu­neyt­is­ins og hafi þessi mál ekki fengið nægt rými og því setið á hak­anum. Dóms­mála­ráð­herra sat fyrir svörum á opnum fundi stjórna­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis í morgun. Til umfjöll­unar voru reglur um upp­reist æru og þeirri atburða­rás sem varð rík­is­stjórn­inni að falli.

Í byrjun fundar kom fram að Jón Stein­dór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisn­ar, sé orð­inn for­maður í stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd í stað Brynjars Níels­son­ar. Sigríður hélt í upp­hafi fundar tölu um atburða­rás­ina og fengu full­trúar flokk­anna að spyrja hana spurn­inga eftir það.

Fram kemur í máli hennar að hún hafi neitað að skrifa undir beiðni um upp­reist æru í maí sem síðan var end­ur­kölluð í morgun. Hún segir að hún hafi viljað eiga sam­ræðu við starfs­menn ráðu­neyt­is­ins um fram­kvæmd­ina, skoða for­sögu upp­reistar æru og afgreiða umsókn­ina eftir þá vinnu. Hún segir fram­kvæmdin ára­tuga­langa venju en telur að stjórn­sýslan taki ekki fram fyrir hend­urnar á lög­gjaf­anum. 85. greinin um upp­reist æru sé ótví­rætt heim­ild­ar­á­kveði en ekki skyldu­á­kvæði.

Afnema kröfu um óflekkað mannorð?

Sigríður segir afgreiðslu í ráðu­neyt­inu vél­ræna varð­andi þessi mál. Hún segir jafn­framt að vinna við gerð frum­varps um breyt­ingar á upp­reist æru sé hafin. Ráðu­neytið hafi óskað eftir sjón­ar­miðum, t.d. Lög­manna­fé­lags Íslands, varð­andi breyt­ingar og bíði nú eftir svörum. Frestur til að svara er til lok sept­em­ber. Hún segir að ekki komi annað til greina en að halda áfram með þá vinnu. Hún vilji að alfarið sé felld úr hegn­ing­ar­lögum upp­reist æra. Hún vilji einnig afnema í reglum um lög­manns­rétt­indi kröfu um óflekkað mann­orð og það sama eigi við þegar ein­stak­lingar vilji bjóða sig fram til sveita­stjórna eða alþingis. Fólk eigi að vera veitt annað tæki­færi í líf­inu.

Per­sónu­vernd­ar­sjón­ar­mið og réttur til gagna stang­ast á, að hennar mati. Hún segir að vegna þess að hægt sé að leggja málin undir úrskurð­ar­nefnd þá hafi gögnin ekki verið gefin upp þegar óskað var eftir því í sumar.

Neitun umsóknaraðila hafði enga þýðingu

„Mér hefði hins vega fund­ist eðli­legt að haft væri sam­band við umsagn­ar­að­ila við afgreiðslu mál­anna,“ segir hún um það ferli sem á sér stað við beiðnir um upp­reist æru. Ekki sé haft sam­band við umsókn­ar­að­ila og þeir spurðir út í með­mælin.

Varðandi að hafa sam­band við umsagn­ar­að­ila vegna opin­berun gagna segir hún að úrskurð­ar­nefndin hafi greint frá því að neitun þess­ara aðila hefði enga þýð­ingu og þess vegna hafi ekki verið haft sam­band við þá. Sigríður seg­ist hafa orðið hugsi yfir því en vegna úrskurðar þá hafi málið farið með þessum hætti.

Um ástæður þess að gefa ekki upp strax nöfn með­mæl­enda spyr hún sig hvort sann­gjart og eðli­legt sé fyrir þann sem gaf umsögn að nafn hans væri komið á inter­netið. Þeir hljóti þó að átta sig á því að þetta séu upp­lýs­ingar sem eigi erindi til almenn­ings.

Falsaðar umsagnir lögreglumál

Ef komi í ljós að umsagnir séu hrein­lega fals­aðar þá er það orðið lög­reglu­mál, segir hún. Hún gat ekki svarað því afdrátt­ar­laust hvort hægt sé að aft­ur­kalla ákvörðun um upp­reist æru. Ef skjöl séu ekki sann­leik­anum sam­kvæm er ákvörð­unin röng líka en þá þurfi stað­fest­ingu dóms. Hún segir að ekki sé auð­velt að taka ein­staka mál upp aftur.

Sigríður telur að ekki eigi að setja þing­menn í þá stöðu að hafa trún­að­ar­gögn undir höndum. Sjálf hafi hún gert athuga­semdir við þetta í öðrum nefndum. Þingmenn eigi ekki að vera settir í stjórn­sýslu­stöðu og vera að véla með trún­að­ar­gögn. Þetta sé óþægi­leg staða fyrir þing­menn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

uppreistæru

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár