Stjórnmálamenn telja RÚV hlutlausast en Morgunblaðið sýna mesta hlutdrægni

Fram­bjóð­endur til Alþingis telja að fag­mennska og óhæði fjöl­miðla á Íslandi sé að aukast en fram­bjóð­endur til sveit­ar­stjórna telja að bæði sé að drag­ast saman. Afger­andi munur er á skoðun stjórn­mála­manna á hlut­leysi fjöl­miðla.

Stjórn­mála­menn telja að RÚV sé sá frétta­fjöl­mið­ill sem sýni mest hlut­leysi í umfjöllun sinni um kosn­ingar. Þeir fjöl­miðlar sem stjórn­mála­menn telja hlut­dræg­asta í umfjöllun sinni eru Morg­un­blaðið og Við­skipta­blaðið. Kjarninn er sá einka­rekni fjöl­mið­ill sem flestir stjórn­mála­menn telja að sýni mest hlut­leysi í umfjöllun sinni um kosn­ingar.

Þetta er á meðal nið­ur­staðna í könnun sem Birgir Guð­munds­son, dós­ent við félags­vís­inda­deild Háskól­ans á Akureyri, fram­kvæmdi í kringum síð­ustu nokkrar kosn­ingar sem haldnar hafa verið hér­lendis.

[adspot]Í könnun Birgis voru 4-6 efstu á listum allra flokka sem buðu fram í síð­ustu þing­kosn­ingum spurðir um hlut­leysi ein­stakra fjöl­miðla og í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum voru 3-6 efstu í tíu stórum og með­al­stórum sveit­ar­fé­lögum spurðir. Könnunin náði yfir síð­ust fimm kosn­ingar til þings og sveit­ar­stjórna sem fram hafa farið hér­lendis, eða á árunum 2013, 2014, 2016, 2017 og 2018.

Birgir ræddi þessar nið­ur­stöður á Þjóð­ar­spegl­inum í Háskóla Íslands sem fram fór síð­ast­lið­inn föstu­dag.

RÚV og Kjarninn sögð sýna mest hlutleysi

Í könnun Birgis voru stjórn­mála­menn beðnir um að gefa fjöl­miðlum ein­kunn á skal­anum 1-5 þar sem ein­kunnin 1 þýddi að við­kom­andi taldi þann fjöl­miðil vera alveg hlut­lausan og 5 að fjöl­mið­ill­inn væri alveg hlut­drægur. Því lægri sem ein­kunn fjöl­mið­ils var, því hlut­lausri töldu stjórn­mála­menn þá vera í umfjöllun sinni.

Í síð­ustu kosn­ingum, sem voru ann­ars vegar sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar 2018 og hins vegar Alþing­is­kosn­ing­unum 2016/2017, þá töldu stjórn­mála­menn frétta­stofu RÚV vera þá sem sýndi af sér mest hlut­leysi í umfjöllun. Í þing­kosn­ing­unum fékk hún ein­kunn­ina 2,7 og í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í vor fékk hún ein­kunn­ina 2,6.

Þar á eftir kom Kjarninn, sem er þar af leið­andi sá einka­fjöl­mið­ill sem stjórn­mála­menn telja að gæti mest hlut­leysis í umfjöllun sinni um kosn­ingar. Hann fékk ein­kunn­ina 2,8 í síð­ustu tveimur þing­kosn­ingum og 3,0 í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum sem fram fóru fyrr á þessu ári.

[adspot]Þeir miðlar sem þykja sýna mesta hlut­drægni eru Morg­un­blaðið og Við­skipta­blaðið, en þessir tveir miðlar skera sig með afger­andi hætti úr. Morg­un­blaðið fékk ein­kunn­ina 4,4 af 5 í þing­kosn­ing­unum 2016 og 2017 og 4,3 í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í vor. Við­skipta­blaðið fékk 4,2 í ein­kunn fyrir hlut­leysi/hlut­drægni fyrir umfjöllun sína í síð­ust tveimur þing­kosn­ingum en 3,8 fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í vor.

Frambjóðendur til þings telja fagleg vinnubrögð vera að aukast

Þegar stjórn­mála­menn voru spurðir um fag­mennsku blaða­manna, þ.e. hvort umfjöllun lands­dekk­andi fjöl­miðla um stjórn­mál (önnur en leið­ara­skrif) ráð­ist af almennum fag­legum sjón­ar­miðum blaða­mennsku er nið­ur­staðan sú að í síð­ustu tveimur þing­kosn­ingum sögðu 27 pró­sent þeirra sem voru þar í efstu sætum fram­boðs­lista að þeir teldu vinnu­brögð vera fag­leg. Það er þrefalt fleiri en í þing­kosn­ing­unum 2013 þegar ein­ungis níu pró­sent stjórn­mála­manna töldu að umfjöllun fjöl­miðla hefði ráð­ist af almennum fag­legum sjón­ar­miðum.

Þegar kemur að sveit­ar­stjórn­ar­stjórn­mála­mönnum snýst þessi þróun hins vegar við. Árið 2014 sögð­ust 23 pró­sent þeirra telja að blaða­menn sýndu fag­mennsku í umfjöllun sinni en ein­ungis 17 pró­sent þeirra sem voru í fram­boði í kosn­ing­unum sem fóru fram í vor voru þeirrar skoð­unar.

Þessi þróun sést einnig þegar stjórn­mála­menn voru spurðir um hæði eða óhæði fjöl­miðla gagn­vart stjórn­mála­flokkum. Í þing­kosn­ing­unum 2013 töldu 80 pró­sent aðspurðra að fjöl­miðlar væru háðir stjórn­mála­flokkum en í síð­ustu tveimur þing­kosn­ingum var það hlut­fall komið í 70 pró­sent. Í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2014 sögð­ust 62 pró­sent fram­bjóð­enda telja að fjöl­miðlar væru háðir flokkum en í síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum var það hlut­fall komið upp í 67 pró­sent.

Kjósendur spurðir um valda prent- og ljósvakamiðla

Í umfjöllun Birgis á föstu­dag fjall­aði hann einnig um aðrar kann­anir sem gerðar hafa verið á fjöl­miðlum, þar á meðal könnun sem Félags­vís­inda­stofnun gerði á meðal kjós­enda í des­em­ber 2015. Þar var ein­ungis spurt um stærstu prent- og ljós­vaka­fjöl­miðla. Nið­ur­stöður þeirrar könn­unar voru þær að 68 pró­sent aðspurðra kjós­enda töldu Morg­un­blaðið vera hlut­drægt og 65 pró­sent töldu DV vera slíkt. Vert er að taka fram að DV var á þessum tíma í ann­ars konar eign­ar­haldi en blaðið er í dag.

Fæstir töldu RÚV vera hlut­drægt í umfjöllun, eða 24 pró­sent aðspurðra og RÚV var einnig sá fjöl­mið­ill sem spurt var um í könn­un­inni sem var talin óhlut­drægastur. Aðrir miðlar sem spurt var um voru Frétta­blaðið, Við­skipta­blaðið og Stöð 2.

Þegar kjós­endur voru spurðir um fag­mennsku blaða­manna sögð­ust 41 pró­sent vera því ósam­mála að umfjöllun ofan­greindra miðla um stjórn­mál réð­ist af almennum fag­legum sjón­ar­miðum blaða­mennsku en ein­ungis 24 pró­sent sögð­ust vera því sam­mála.

Þriggja ára gömul könnun

Mikill munur var á milli afstöðu kjós­enda til þessa eftir því hvaða flokk þeir kusu. Könnunin var gerð í des­em­ber 2015, fyrir tæpum þremur árum síðan, þegar rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, saman sett af Fram­sókn­ar­flokknum og Sjálf­stæð­is­flokknum, sat enn við völd og Sig­mundur Davíð var enn for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.

[links]Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks voru ólík­leg­astir til að telja umfjöllun fjöl­miðla fag­lega, en ein­ungis 16 pró­sent þeirra voru á slíkri skoðun. Þar á eftir komu kjós­endur Vinstri grænna en 18 pró­sent þeirra töldu umfjöllun ofan­greindra prent- og ljós­vaka­miðla vera að starfa fag­lega. Kjós­endur Bjartrar fram­tíðar (58 pró­sent), sem þá var á þingi, og Sam­fylk­ingar (50 pró­sent) voru hins vegar þeir sem töldu umfjöllun fjöl­miðla vera fag­leg­asta. Það er athygl­is­vert í ljósi þess að fylgi hvor­ugs þess­ara flokka mæld­ist mikið á þessu tíma. Í könnun sem MMR gerði í des­em­ber 2015 var fylgi Sam­fylk­ingar undir tíu pró­sent og fylgi Bjartrar fram­tíðar mæld­ist undir fimm pró­sent.

Í þeirri könnun fóru Píratar með him­in­skaut­unum og mæld­ust með um 35 pró­sent fylgi. Á sama tíma sögð­ust 26 pró­sent kjós­enda þeirra telja að umfjöllun ofan­greindra fjöl­miðla væri fag­leg og 23 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár