Björn Ingi missir tökin á Pressusamstæðunni

Róbert Wessmann og við­skipta­fé­lagar hans hafa eign­ast tæp­lega 90 pró­sent hlut í þriðja stærsta einka­rekna fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins.

Björn Ingi Hrafnsson.
Björn Ingi Hrafns­son. Mynd: RÚV/Skjáskot

Róbert Wessmann og við­skipta­fé­lagar hafa eign­ast 88,38 pró­sent í fjöl­miðla­sam­steyp­unni Press­unni. Félagið á og rekur m.a. DV, DV.is, Pressuna, Bleikt.is og Eyjuna. Félög í eigu Björns Inga Hrafns­sonar og Arnars Ægis­sonar munu áfram eiga um ell­efu pró­sent í félag­inu. Frá þessu er greint í Mark­aðnum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti, í dag.

[links]Eigendur Dalsins eru Róbert Wessmann, Árni Harð­ar­son, Halldór Krist­manns­son, Hilmar Þór Krist­ins­son og Jóhann G. Jóhanns­son. Hver þeirra á um sig á tutt­ugu pró­senta hlut í félag­inu. Dalurinn á einnig allt hlutafé í Birtingi, sem gefur út þrjú tíma­rit: Gest­gjafann, Hús og híbýli og Vikuna.

Í Mark­aðnum er haft eftir Halldóri Krist­manns­syni að staða Pressunnar sé þung og að fyrri stjórn­endur hafi óskað eftir svig­rúmi til að finna nýja hlut­hafa í sumar. Það hafi ekki gengið eftir. Dalurinn hafi lagt tölu­verða pen­inga inn í Vef­press­una þegar til stóð að félagið tæki þátt í hluta­fjár­hækkun í vor. Þeir fjár­munir hafi nýst til að greiða opin­ber gjöld og van­skil á líf­eyr­is­sjóðs- og stétt­ar­fé­lags­greiðslum starfs­manna. Þess vegna hafi hann átt kröfu á félagið sem hægt var að breyta í hlutafé.

Kjarninn greindi frá því í maí að skuldir Pressunnar og tengdra félaga væru yfir 700 millj­ónir króna. Þar af eru van­skil vegna van­greiddra opin­bera gjalda og vegna greiðslna í líf­eyr­is­sjóði, stétt­ar­fé­lög og vegna með­lags­greiðslna yfir 400 millj­ónir króna.

[adspot]

Í síð­ustu viku sagði Kjarninn frá því að félagið Útvörður ehf., sem er í eigu Þor­steins Guðna­son­ar, hefði stefnt Press­unni. Málið verður tekið fyrir í hér­aðs­dómi Reykja­víkur 6. sept­em­ber næst­kom­andi. Þor­steinn vildi ekki tjá sig um málið þegar Kjarn­inn leit­aði eftir upp­lýs­ingum um það en í árs­reikn­ingi Útvarðar sést að Pressan skuld­aði Útverði 91 milljón króna í lok árs 2015.

Krafan er eina verð­mæta eign Útvarð­ar. Hún á rætur sínar að rekja til þess að félagið veitti Press­unni selj­enda­lán til að kaupa DV og DV.is á árinu 2014. Miðað við umfang kröf­unnar hefur lítið eða ekk­ert verið greitt af henni síðan að til hennar var stofn­að.

Í Stund­inni í síð­ustu viku kom fram að Pressan skuldi auk þess Toll­stjóra um 300 millj­ónir króna vegna van­gold­inna opin­berra gjalda. Gjald­þrota­beiðni hafi verið send inn í vor á hendur DV ehf., einu þeirra félaga sem til­heyra Pressu­sam­stæð­unni, og að sú beiðni verði brátt tekin fyrir í Hér­aðs­dómi Reykja­vík­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár