Vantar um 700 milljónir inn í Pressuna

End­ur­skipu­lagn­ing Pressu­sam­stæð­unnar er í upp­námi eftir að fjár­hags­staða hennar reynd­ist mun verri en upp­haf­lega var áætlað. Stefnt er að því að halda starf­sem­inni áfram en hluti þeirra sem kynntir voru sem hlut­hafar vilja draga sig út.

Einn þeirra miðla sem tilheyrir Pressusamstæðunni er hið rótgróna blað DV.
Einn þeirra miðla sem til­heyrir Pressu­sam­stæð­unni er hið rót­gróna blað DV. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Við­mæl­endur Kjarnans sem koma að kaupum nýrra hlut­hafa á Press­unni og tengdum fjöl­miðlum segja að þær 300 millj­ónir króna sem til­kynnt hefur verið um að setja ætti inn í sam­stæð­una dugi ekki til. Gatið sem þurfi að brúa til að gera hana rekstr­ar­hæfa sé nálægt 700 millj­ónum króna að þeirra mati.

Innan Pressu­sam­stæð­unnar eru tæp­lega 30 miðlar sem birta efni á vef, á dag­blaða- og tíma­rita­formi og í sjón­varpi. Þeirra þekkt­astir eru DV, DV.is, Eyjan, Pressan, sjón­varps­stöðin ÍNN og tíma­ritin Vikan, Gest­gjaf­inn, Nýtt líf og Hús og híbýli.

Enn er vilji hjá að minnsta kosti hluta þeirra aðila sem ætl­uðu að setja fé inn í rekst­ur­inn til að fjár­festa í sam­stæð­unni og þegar hafa verið lán­aðir umtals­verðir fjár­munir inn til að gera upp opin­ber gjöld og líf­eyr­is­sjóðs­skuldir sem voru í van­skilum, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans.

[links]

Eftir að vænt­an­legum hlut­höfum var hleypt að sam­stæð­unni komu hins vegar í ljós allskyns kröfur sem ekki hafði verið greint frá í aðdrag­anda ætl­aðar hluta­fjár­aukn­ingar auk þess sem rekstr­ar­for­sendur hluta þeirra miðla sem heyra undir Pressuna hafi verið mun verri en sagt hafi verið. Einn við­mæl­and­inn sagði að það stæði „ekki steinn yfir steini“ í rekstri Pressunnar og annar sagð­ist halda að hluta­fjár­lof­orð yrðu ein­fald­lega dregin til baka í ljós mun verri stöðu sam­stæð­unnar en kynnt hefði verið.

Það er til marks um slæma stöðu fyr­ir­tæk­is­ins að þeir stjórn­ar­menn sem til­kynnt var um að setj­ast ættu í stjórn Pressunnar fyrir tæpum mán­uði síðan hafa enn ekki gert það form­lega. Þeir vilji ekki bera neina laga­lega ábyrgð á sam­stæð­unni eins og hún er í dag.

Ný stjórn ekki tekin við

Tilkynnt var um það 18. apríl að hlutafé útgáfu­fé­lags­ins Pressunnar yrði aukið um 300 millj­ónir króna. Samhliða átti Björn Ingi Hrafns­son, stofn­andi Pressunnar og sá sem leitt hefur yfir­tökur hennar á öðrum miðlum und­an­farin ár, að stíga til hliðar.

[adspot]

Hann hefur verið bæði stjórn­ar­for­maður og útgef­andi Pressu­sam­stæð­unnar fram að þessu auk þess sem hann stýrir sjón­varps­þætt­inum Eyjunni, sem var um nokk­urra ára skeið á Stöð 2 en er nú sýndur á ÍNN. Björn Ingi átti að láta af öllum stjórn­un­ar­störfum fyrir Pressuna sam­hliða hluta­fjár­aukn­ing­unni. Hann átti þó áfram stýra sjón­varps­þætt­inum, en yrði hvorki í stjórn né koma að rit­stjórn miðla sam­stæð­unnar lengur.

Ný stjórn var kosin á hlut­hafa­fundi þennan sama dag, 18. apríl. Samkvæmt til­kynn­ingu yrði Gunn­laugur Árnason stjórn­ar­for­maður. Aðrir sem setj­ast áttu í stjórn eru Þor­varður Gunn­ars­son, fyrrum for­stjóri Deloitte á Íslandi, Sess­elja Vil­hjálms­dóttir fram­kvæmda­stjóri hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­is­ins TagPlay og Hall­dór Krist­manns­son yfir­maður Sam­skipta- og mark­aðs­sviðs lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Alvogen. Ekkert þeirra hefur sest form­lega í stjórn enn sem komið er.

Félag sem er í eigu Hall­dórs, Róberts Wessman, Árna Harð­ar­son­ar, Hilm­ars Þórs Krist­ins­sonar og Jóhanns G. Jóhanns­son­ar, Fjár­fest­inga­fé­lagið Dal­ur­inn ehf., ætl­aði að verða stærsti eig­andi Pressunnar og koma inn með 155 millj­ónir króna.

Björn Ingi Hrafns­son og við­skipta­fé­lagi hans, Arnar Ægis­son, tóku líka þátt í hluta­fjár­aukn­ing­unni og sam­kvæmt til­kynn­ing­unni átti félag í þeirra eigu að leggja fram 50 millj­ónir króna. Þeir áttu að eiga 14-16 pró­sent hlut. Félag Hreins Lofts­son­ar, Karls Stein­ars Ósk­ars­sonar og Matth­í­asar Björns­sonar átti svo líka að eign­ast hlut í Press­unni, en þeir áttu áður Birting. Karl Steinar átti enn fremur að verða fram­kvæmda­stjóri félags­ins og Matth­ías Björns­son fjár­mála­stjóri þess.

Þarf mun meira en upp var látið

Fljót­lega eftir að þessi til­kynn­ing var send út kom í ljós að staða Pressu­sam­stæð­unnar var verri en kynnt hafði verið fyrir vænt­an­legum hlut­höfum. Við­mæl­endur Kjarnans segja að nýjar kröfur hafi komið í ljós nán­ast dag­lega frá þeim tíma­punkti og mikil óráðsía sé í rekstri sam­stæð­unnar. Nýjasta mat geri ráð fyrir að það þurfi að setja nær 700 millj­ónum króna í rekst­ur­inn til að halda honum á floti, en ekki um 300 millj­ónir króna líkt og kynnt var.

Vænt­an­legir hlut­hafar hafa þegar lánað fjár­muni inn í Pressuna til að gera upp opin­berar skuldir en ekki er búið að greiða allt það hlutafé sem kynnt var í frétta­til­kynn­ing­unni 18. apríl. Allskyns varnaglar hafi verið settir inn í sam­komu­lagið um hluta­fjár­aukn­ing­una og segja við­mæl­endur Kjarnans að þeir varnaglar hafi að mestu verið brotnir nú þegar skýr­ari mynd af stöðu rekst­urs­ins blasi við. Enn sé þó vilji til þess að halda sam­stæð­unni gang­andi og unnið er að því að end­ur­skipu­leggja rekst­ur­inn með það að mark­miði. Alls óljóst, og raunar ólík­legt, er hvort allir hlut­haf­arnir sem til­kynnt var um að tækju þátt muni gera það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár