Á 91 milljóna króna kröfu á Pressuna og hefur stefnt henni fyrir dóm

Félag sem á tug­millj­óna króna kröfu á fjöl­miðla­fyr­ir­tækið Pressuna hefur stefnt því fyrir dóm­stóla. Krafan á rætur sínar að rekja til selj­enda­láns sem veitt var til að kaupa DV árið 2014. Málið verður tekið fyrir í sept­em­ber.

Pressan fékk seljendalán þegar hún keypti DV árið 2014. Það lán hefur ekki verið greitt.
Pressan fékk selj­enda­lán þegar hún keypti DV árið 2014. Það lán hefur ekki verið greitt. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Félagið Útvörður ehf., sem er í eigu Þor­steins Guðna­sonar, hefur stefnt Press­unni ehf., sem rekur meðal ann­ars fjöl­miðl­anna DV, DV.is, Eyjuna, Bleikt.is og Pressuna. Málið verður tekið fyrir í hér­aðs­dómi Reykja­víkur 6. sept­em­ber næst­kom­andi. Þor­steinn vildi ekki tjá sig um málið þegar Kjarninn leit­aði eftir upp­lýs­ingum um það en í árs­reikn­ingi Útvarðar sést að Pressan skuld­aði Útverði 91 milljón króna í lok árs 2015.

[links]Krafan er eina verð­mæta eign Útvarðar. Hún á rætur sínar að rekja til þess að félagið veitti Press­unni selj­enda­lán til að kaupa DV og DV.is á árinu 2014. Miðað við umfang kröf­unnar hefur lítið eða ekk­ert verið greitt af henni síðan að til hennar var stofnað.

Í Stund­inni sem kom út í dag kemur fram að Pressan skuldi auk þess Toll­stjóra um 300 millj­ónir króna vegna van­gold­inna opin­berra gjalda. Gjald­þrota­beiðni hafi verið send inn í vor á hendur DV ehf., einu þeirra félaga sem til­heyra Pressu­sam­stæð­unni, og að sú beiðni verði brátt tekin fyrir í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur.

Veittu seljendalán

Haustið 2014 áttu sér stað mikil átök um yfir­ráð yfir DV. ­Feðgarnir Reynir Trausta­son og Jón Trausti Reyn­is­son, ásamt sam­starfs­mönn­um sín­um, höfðu þá átt og stýrt DV um nokk­urt skeið en fengið fjár­hags­lega ­fyr­ir­greiðslu víða til að standa undir þeim rekstri, meðal ann­ars hjá Gísla Guð­munds­syni, fyrrum eig­anda B&L. Þeim kröfum var síðan breytt í hluta­fé ­sem dugði til að taka yfir DV. Í átök­unum kom maður að nafni Þor­steinn Guðna­son fram fyrir hönd þeirra krafna.

[adspot]Ólafur M. Magn­ús­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­maður í DV, sagði í sam­tali við Kjarn­ann í októ­ber 2014 að menn tengdir Fram­sókn­ar­flokknum hefðu viljað kaupa DV í þessum átökum. Þáver­andi fram­kvæmda­stjóri flokks­ins hafn­aði því í kjöl­farið í yfir­lýs­ingu.

DV var skömmu síðar selt til hóps undir for­yst­u ­Björns Inga Hrafns­son­ar. Kaupin voru gerð í nafni félags sem heitir Pressan ehf. Kaup­verðið var ekki gert opin­bert en Björn Ingi, sem er aðal­eig­andi Pressunnar og helsti stjórn­andi fjöl­miðla­sam­steypu félags­ins, greindi frá því að stór hluti þess hefði verið fjár­magnað með láni frá selj­endum hlut­ar­ins.

Kröfur Útvarðar á hendur Press­unni eru til­komnar vegna þess selj­enda­láns. Í árs­reikn­ingi félags­ins segir að und­ir­liggj­andi hluta­bréf séu til trygg­ingar end­ur­greiðslu. Það þýðir að Útvörður á veð í hluta­bréfum Pressunnar.

Kjarninn greindi frá því í maí að skuldir Pressu­sam­stæð­unnar séu yfir 700 millj­ónir króna og að mat fjár­festa sem ætl­uðu að koma að henni, en hættu svo við, væri að það sé upp­hæðin sem þyrfti að leggja henni til svo að hún yrði rekstr­ar­hæf.

Tollstjóri farið fram á gjaldþrotaskipti

Í Stund­inni sem kom út í dag kemur fram að skuldir Pressu­sam­stæð­unnar við Toll­stjóra séu um 300 millj­ónir króna vegna van­gold­inna opin­berra gjalda.

Í blað­inu kemur fram að þar fyrir utan séu skuldir við líf­eyr­is­sjóði sem nemi um hund­rað millj­ónum króna. Ekki sé verið að þjón­usta þessar skuld­bind­ingar.

Stundin greinir einnig frá því að Toll­stjóri hafi sent inn gjald­þrota­beiðni á hendur DV ehf. í vor. Sú beiðni hafi ekki verið aft­ur­kölluð og verður brátt tekin fyrir í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár