Kostnaður Alþingis vegna farsíma og nettenginga hefur helmingast

Skrif­stofa Alþingis leit­aði síð­ast til­boða í far­síma­þjón­ustu og netteng­ingar fyrir þann hluta starfs­fólks sem hún greiðir slíkt fyrir árið 2013. Þá varð Síminn fyrir val­inu.

Andrés Ingi Jónsson spurði Steingrím J. Sigfússon um kostnað vegna farsíma og netttenginga.
Andrés Ingi Jónsson spurði Stein­grím J. Sig­fús­son um kostnað vegna far­síma og nett­teng­inga. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Kostn­aður Alþingi vegna far­síma og netteng­inga þing­manna, starfs­liðs þing­flokka, for­manna flokka og starfs­liðs skrif­stofu Alþingis var sam­tals 14,1 millj­ónir króna í fyrra. Kostn­að­ur­inn hefur farið hríð­lækk­andi á und­an­förnum árum en hann var 28,3 millj­ónir króna árið 2013. Því var kostn­að­ur­inn í fyrra helm­ingur af því sem hann var fimm árum áður.

Þetta kemur fram í svari Stein­gríms J. Sig­fús­sonar, for­seta Alþingis, við fyr­ir­spurn Andrésar Inga Jóns­sonar, þing­manns Vinstri grænna, um málið.

Þingmenn geta valið við hvaða fjar­skipta­fyr­ir­tæki þeir skipta þegar kemur að far­síma­þjón­ustu og netteng­ingu. Skrif­stofa Alþingis leitar því ekki til­boða vegna þeirra. Þá eru starfs­menn þing­flokka á launum hjá flokk­unum sjálfum og því er kostn­aður þeirra ekki greiddur af skrif­stof­unni.

Hún velur hins vegar einn aðila til að þjón­usta starfs­fólks þings­ins, rit­ara og aðstoð­ar­menn for­manna þing­flokka sem eru í stjórn­ar­and­stöðu og sam­kvæmt svar­inu var síð­ast leitað til­boða vegna þeirra á árinu 2013 vegna far­síma starfs­manna og var það gert hjá tveimur síma­fyr­ir­tækjum, Símanum og Vodafone. „Síminn var val­inn fyrir starfs­fólk eftir verð­könnun[...]For­sendur fyrir val­inu voru bæði verð og þjón­ustan sem fyr­ir­tækið bauð,“ segir í svari for­seta Alþingis. Þar er einnig bent á að frá því að til­boð­anna var leitað hafi verð lækkað og þjón­ustan sem sé inni­falin auk­ist.

Síminn fær því stærstan hluta þess fjár sem skrif­stofa Alþingis greiðir vegna far­síma- og nett­teng­inga­kostn­aðar. Hlutur fyr­ir­tæk­is­ins í þeim kostnað hefur þó minnkað. Á árinu 2013 fékk það fyr­ir­tæki aðra hverja krónu sem greidd var vegna slíks. Í fyrra fékk það 39 pró­sent alls greidds kostn­aðar. Fjár­hæð­irnar sem greiddar hafa verið til Símans hafa lækkað jafnt og þétt ár frá ári, sam­hliða því að kostn­aður fyrir far­síma­þjón­ustu og netteng­ingar hefur almennt lækkað. Árið 2013 fékk Síminn greiddar 13,6 millj­ónir króna frá skrif­stofu Alþingis en sú upp­hæð var 5,5 millj­ónir króna í fyrra. Önnur fjar­skipta­fyr­ir­tæki fengu umtals­vert lægri greiðslur.

Í svari for­seta Alþingis kemur fram að reikn­ingar frá Símanum, Vodafone (sem nú heitir Sýn) og Nova séu greiddir beint. „Einungis er tekið við reikn­ingum beint frá þeim síma­fyr­ir­tækjum sem skipta reikn­ing­unum upp þannig að Alþingi fær ein­ungis þann hluta sem sam­þykkt er að greiða hér og þing­maður fær þann hluta sem hann á að greiða sjálfur. Að öðrum kosti þarf þing­maður að greiða allan reikn­ing­inn sjálfur og fá hann end­ur­greiddan hjá Alþingi að þeim hluta sem reglur mæla fyrir um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár