Atvinnulausum innan ESB hefur fækkað um 1,9 milljónir á einu ári

Atvinnu­á­standið innan ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins hefur lag­ast ár frá ári síð­ast­lið­inn ára­tug. Nú er staðan sú að atvinnu­leysi innan þess mælist 6,8 pró­sent.

Ungmenni í Evrópusambandslandi.
Ungmenni í Evr­ópu­sam­bands­landi. Mynd: Bára Huld Beck

Atvinnu­leysi innan Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB) hélt áfram að lækka í júlí­mán­uði og mæld­ist þá 6,8 pró­sent. Það er lægsta atvinnu­leysi sem mælst hefur innan sam­bands­ins frá því fyrir fjár­mála­hrunið sem varð haustið 2008. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Eurostat, hag­stofu Evr­ópu­sam­bands­ins.

Þar segir að fjöldi atvinnu­lausra innan Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna hafi verið 16,8 millj­ónir í júlí. Þar af bjuggu 13,3 millj­ónir þeirra innan þeirra ríkja sem eru með evru sem gjald­mið­il, en atvinnu­leysi innan þess svæðis mæld­ist 8,2 pró­sent og hefur einnig farið hratt lækk­andi. Það er minnsta atvinnu­leysi sem mælst hefur innan evru­svæð­is­ins frá því í lok árs 2008.

Atvinnu­lausum innan Evr­ópu­sam­bands­ins hefur fækkað um 1,9 millj­ónir á einu ári. Dregið hefur úr atvinnu­leys­inu í öllum aðild­ar­ríkj­unum 28. Mestur hefur sam­drátt­ur­inn verið á Kýpur þar sem atvinnu­leysi hefur farið úr 10,7 pró­sent í júlí 2017 í 7,7 pró­sent ári síðar. Í Grikk­landi, þar sem atvinnu­leysi er mest, hefur einnig orðið breyt­ing til batn­aðar og atvinnu­lausum fækkað úr 19,8 pró­sent vinnu­færra manna í 21,7 pró­sent.

Til sam­an­­burðar má nefna að atvinn­u­­leysi í Banda­­ríkj­unum var 3,9 pró­­sent í júlí 2018. Á Íslandi er það 2,5 pró­­sent sam­kvæmt nýj­ustu mæl­ingum Hagstofu Íslands.

Atvinnulausum ungmennum fækkar mikið

Atvinn­u­­leysi á meðal ungs fólks hefur lengi verið mikið vanda­­mál í sumum Evr­­ópu­­sam­­bands­­ríkj­um. Í júlí voru 3,3 millj­ónir manna undir 25 ára aldri án atvinnu í löndum sam­bands­ins.

Þeim ung­mennum sem eru atvinnu­laus í Evr­ópu­sam­band­inu hefur hins vegar fækkað um 466 þús­und á einu ári. Fæst ung­menn eru atvinnu­laus í Þýska­landi (6,1 pró­sent) en flest í Grikk­landi (39,7 pró­sent).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár