Sauðfjár- og kúabúum fer fækkandi

Búum með sauð­fjár­rækt sem aðal­starf­semi hefur fækkað um tæp­lega 14 pró­sent síðan árið 2008 og kúa­búum með ræktun mjólk­ur­kúa hefur fækkað um tæp­lega 11 pró­sent.

Búum með sauð­fjár­rækt og kúa­búum hefur farið fækk­andi und­an­farin ára­tug. Á árinu 2016 voru 1.477 bú með sauð­fjár­rækt sem aðal­starf­semi og hafði þeim fækkað um tæp­lega 14 pró­sent frá árinu 2008 þegar þau voru 1.712. Á árinu 2016 voru 631 kúabú með ræktun mjólk­ur­kúa sem aðal­starf­semi og hafði þeim fækkað úr 707 búum frá árinu 2008 eða um tæp­lega 11 pró­sent.

Þetta kemur fram í frétt Hag­stof­unnar í dag.

Rekstr­ar­tekjur sauð­fjár­búa voru um 13,1 millj­arðar króna árið 2016, sam­kvæmt Hag­stof­unni, sem er það sama og rekstar­tekj­urnar voru árið 2008 á föstu verð­lagi.

Meðalstærðin vex

Með­al­stærð kúa­búa óx um 12,6 pró­sent, úr 37,1 mjólk­urkú að með­al­tali árið 2008 í 41,8 árið 2016. Velta kúa­búa nam 23,9 millj­arða króna árið 2016 sam­an­borið við 22,9 millj­arða króna árið 2008 á verð­lagi árs­ins 2016 og hækk­aði hún um 4,6 pró­sent.

Hagstofa Íslands tók saman upp­lýs­ingar um rekstur og efna­hag þriggja greina land­bún­aðar fyrir árin 2008 til 2016, það er fyrir sauð­fjárbú, kúabú og önnur naut­gripabú.

Af þeim þremur greinum sem hér er fjallað um er kúa­bú­skapur skuld­sett­astur, sam­kvæmt Hag­stof­unni. Eigið fé var nei­kvætt um tæp­lega 1,2 millj­arða króna í lok árs 2016, en hefur styrkst veru­lega á síð­ustu árum.

Stærð kúabúa gæti haft áhrif á byggðaþróun

Í frétt RÚV frá því í dag segir að mik­ill munur sé á fram­leiðslu­getu kúa­búa milli lands­hluta. Sig­ur­geir B. Hreins­son, fram­kvæmda­stjóri Bún­að­ar­sam­bands Eyja­fjarðar segir í sam­tali við RÚV að þetta geti haft áhrif á byggða­þróun, erfitt sé að taka við og byggja upp lítil kúabú.

Fjallað er um þróun kúa­bú­skapur á und­an­förnum árum í frétt­inni en víða hefur verið fjár­fest í nýjum fjósum og tækninýj­ungum. Búum hefur fækkað en fram­leiðslan auk­ist. Á fimm árum hefur með­al­fjöldi kúa á hverju búi á Íslandi auk­ist um fimmt­ung og er nú 47 kýr.

Sig­ur­geir segir að það þurfi færri bændur en áður til að metta mark­að­inn. „Þegar meira er fram­leitt á hverjum bæ, vegna þeirrar tækni sem er komin og vinnu­að­stöðu, þá hefur búunum fækkað stöðugt.“

„Í Eyja­firði hefur kúa­búum fækkað úr 250 í 83 á 40 árum og má ætla að þau verði undir 70 eftir 10 ár. Á sama tíma hefur fjöldi á hverjum bæ nær tvö­fald­ast. Þó að kúa­búum hafi almennt fækkað á Íslandi og þau stækkað, sam­hliða tækni­fram­förum og auk­inni fram­leiðslu­getu, þá er mik­ill munur á milli svæða. Til dæmis eru að með­al­tali 30 kýr á hverju búi í Vestur-Skafta­fells­sýslu og 31 í Suður Þing­eyj­ar­sýslu, en með­al­fjöld­inn í Skaga­firði er 53 kýr og 57 í Eyja­firði,“ segir í frétt­inni. Sig­ur­geir segir að upp­bygg­ing og stærð kúa­búa geti haft áhrif á nýliðun bænda og byggða­þróun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landbúnaðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár