Grunnskólanemar í Reykjavík fá frí skólagögn

Nemendum í grunn­skólum Reykja­vík­ur­borgar verður úthlutað öllum þeim náms­gögnum sem þeir þurfa á næsta skóla­ári. Því verða engir inn­kaupa­listar fyrir for­eldra í haust, en kostn­aður Reykja­vík­ur­borgar við kaup á skóla­gögn­unum nemur um 40 millj­ónum króna.

Engir inn­kaupa­listar vegna næsta skóla­árs verða gefnir út hjá grunn­skólum Reykja­víkur á þessu hausti, en nem­end­urnir munu fá þau skóla­gögn sem þeir þurfa end­ur­gjalds­laust. Kostn­aður Reykja­vík­ur­borgar við kaupin á gögn­unum mun nema um 40 millj­ónum króna. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni var ákvörðun um end­ur­gjalds­laus náms­gögn grunn­skóla­barna sam­þykkt af borg­ar­stjórn Reykja­víkur í des­em­ber í fyrra. Sú sam­þykkt byggði meðal ann­ars á til­mælum frá for­eldra­fé­lögum skól­anna og Samtökum for­eldra­fé­laga grunn­skóla­barna í Reykja­vík (SAMFOK). Borg­ar­stjórnin heldur því fram að slíkt fyr­ir­komu­lag spari bæði fé og tíma, sé umhverf­is­vænna og stuðli að betri nýt­ingu skóla­gagna. [adspot]

40 milljóna króna kostnaður

Þau skóla­gögn sem nem­endur fá end­ur­gjalds­laust eru meðal ann­ars stíla­bækur, reikn­ings­bækur, möppur, vinnu­bækur, vinnu­bók­ar­blöð, pappír, rit­föng litir, vasa­reiknar og fleira. Reykja­vík­ur­borg efndi til útboðs á gögn­unum, en A4 átti lægsta til­boðið og var því gengið til samn­inga við fyr­ir­tækið. Tilboðið nam um 40 millj­ónum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár