Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík lýsir yfir vonbrigðum með neyðarfund

Borg­ar­ráðs­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins sendu til­kynn­ingu um von­brigði vegna neyð­ar­fundar borg­ar­ráðs­ins í gær. Á fund­inum var flestum til­lögum minni­hlut­ans í borg­ar­stjórn vísað frá.

Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn
Eyþór Laxdal Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn Mynd: Bára Huld Beck

Borg­ar­ráðs­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins lýsa yfir von­brigðum með að neyð­ar­fundur í borg­ar­ráði í gær bar ekki þann árangur sem vonir stóðu til um. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Sjálf­stæð­is­flokknum í dag.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni var flestum til­lögum minni­hlut­ans í borg­ar­stjórn á fund­inum annað hvort vísað annað, frestað eða felldar. Til­lög­urnar sneru hvoru tveggja að því að leysa bráða­vanda hús­næð­is­lausra og leysa vand­ann til fram­tíðar. Að sögn Eyþórs Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn, mun minni­hlut­inn fylgja til­lögum sínum fast á eftir á haust­mánuð.

„Það er afar brýnt að við bregð­umst við vand­anum strax og komum upp fær­an­legu hús­næði hið fyrsta, s.s. smá­hýsum fyrir ólíka hópa hús­næð­is­lausra til bregð­ast við neyð heim­il­is­lausra á meðan verið er að finna var­an­legar lausnir, hvort heldur sem það eru ein­stak­lingar eða fjöl­skyldur,“ segir Eyþór Arnalds.

Samkvæmt Eyþóri felst til­lagan um lausn á bráða­vanda hús­næð­is­lausra meðal ann­ars í að komið yrði upp neyð­ar­skýli í Örfirisey, en til­lagan um lang­tíma­lausn fólst í lækkun bygg­ing­ar­rétt­ar­gjalds. Þá lagði Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn jafn­framt áherslu á lækkun lang­tíma­leigu á tjald­svæði í Laug­ar­dal en sú til­laga var felld ásamt þeirri til­lögu að segja upp samn­ingi við rekstr­ar­að­ila tjald­svæð­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár