Ferðamenn ánægðari og dvelja lengur

Ánægja ferða­manna á Íslandi hefur auk­ist nokkuð milli júní­mán­aða, en Ástralir og Kanada­menn eru ánægð­astir með landið. Dval­ar­tími ferða­manna hefur einnig auk­ist milli mán­aða og nú eru 65% þeirra á land­inu í lengur en fimm daga.

Heilt yfir virðast ferðamenn ánægðir með Íslandsdvölina sína
Heilt yfir virð­ast ferða­menn ánægðir með Íslands­dvöl­ina sína Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ferða­menn á Íslandi í júní voru ánægð­ari með komu sína en þeir sem ferð­uð­ust til lands­ins í júní í fyrra og dvelja lengur en þeir sem komu í maí. Þetta kemur fram í nýjum Ferða­mannapúlsi Gallup.

Ferða­mannapúls­inn er met­inn út frá fimm und­ir­þáttum: heildará­nægju með ferð­ina, líkum á að mæla með Íslandi sem áfanga­stað, skynjun á gest­risni Íslend­inga, hvort að ferðin hafi upp­fyllt vænt­ingar og hvort að ferðin hafi verið pen­ing­anna virði. Af þessum þáttum voru það líkur á með­mælum sem mæld­ust hæstar meðal ferða­manna, eða í 89,2 stig af 100 mögu­legum. Lægstu ein­kunn fékk síð­ast­nefndi þátt­ur­inn, þ.e. hvort ferðin hafi verið pen­ing­anna virði, en hann fékk 78,2 stig.

Ástralir ánægðastir, Bretar óánægðastir

Samkvæmt ferða­mannapúls­inum, sem mældi vænt­ingar ferða­manna frá 29 löndum, voru Ástralir ánægð­astir með Íslands­dvöl­ina sína, en meðal þeirra mæld­ist ferða­mannapúls­inn með 89,2 stig. Aftur á móti mæld­ist púls­inn lægstur meðal breskra ferða­manna, en þar var hann 80,6 stig.

Púlsinn hefur hækkað nokkuð frá því í júní í fyrra, en þá mæld­ist hann 81,9 meðal ferða­manna á Íslandi. Hins vegar lækk­aði hann örlítið frá mán­uð­inum á undan, en hann mæld­ist í 83,6 stigum í maí. Einnig hefur ferða­mynstur gest­anna breyst, en hlut­fall ferða­manna sem dvöldu í fimm nætur eða lengur jókst úr 55% í maí upp í 65% í júní. Samkvæmt Gallup eru ferða­menn sem gista í fimm nætur eða lengur almennt ánægð­ari en þeir sem gista skemur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár