Tollastríðið lækkar olíuverð og norsku krónuna

Tolla­stríð Banda­ríkj­anna við helstu við­skipta­þjóðir þeirra hefur leitt til lægri verðs á hrá­vörum sem og veik­ingu gengis norsku krón­unnar.

Norska hagkerfið finnur fyrir viðskiptastríði Bandaríkjanna við Rússland, Evrópusambandið og Kína.
Norska hag­kerfið finnur fyrir við­skipta­stríði Banda­ríkj­anna við Rússland, Evr­ópu­sam­bandið og Kína. Mynd: Úr safni

Við­skipta­stríð Banda­ríkj­anna við Evr­ópu­sam­bandið, Rússland og Kína hefur leitt til lægra olíu­verðs og aukið óvissu á hluta­bréfa-og gjald­eyr­is­mörk­uðum. Samhliða því hefur norska krónan veikst tölu­vert, en búist er við áfram­hald­andi veikri stöðu gjald­mið­ils­ins á meðan á tolla­stríð­inu stendur. Þetta kemur fram í fréttum Forbes og Dagens Nær­ingsliv.

Lægra olíuverð

Helstu áhrif við­skipta­stríðs land­anna tveggja hingað til hefur verið kólnun á kín­verskum hluta­bréfa­mark­aði. Versn­andi rekstr­ar­skil­yrði kín­verskra fyr­ir­tækja gæti leitt til Þar sem Kína er einn stærsti olíu­neyt­andi á heims­vísu myndi væntur sam­dráttur þar í landi leiða til mik­illar eft­ir­spurn­ar­minnk­unar á hrá­vörum. Þessi ótti hefur þegar fælt fjár­festa frá olíu­fé­lögum, en olíu­verð hefur farið lækk­andi frá byrjun júlí. Óttast er að tolla­stríðið farið harðn­andi á næst­unni, en Banda­ríkja­for­seti hót­aði frek­ari tollum á Kína í við­tali við CNBC í síð­ustu viku.

Vernd­ar­stefna Banda­ríkj­anna í alþjóða­við­skiptum hefur leitt til tolla­lagn­ingar á fjöl­mörgum vörum í Evrópu, Kína, Rúss­landi og Banda­ríkj­unum. Í lok maí setti rík­is­stjórn Trumps á ál-og stál­tolla á Evr­ópu­sam­bandið og Rúss­landi, en báðir aðilar svör­uðu í sömu mynt og lögðu tolla á banda­rískar útflutn­ings­vörur.

Forbes nefnir hins vegar að aðrir þættir hafi einnig leitt til olíu­verð­lækk­unnar síð­ustu vikna, líkt og yfir­lýs­ing OPEC-ríkja um aukna fram­leiðslu, auk fram­leiðslukipps leir­steinsolíu í Banda­ríkj­unum.

Álverðið lækkar

[links]Olía er ekki eina hrá­varan sem hefur orðið fyrir barð­inu á við­skipta­stríð­inu, en heims­mark­aðs­verð á áli hefur einnig farið lækk­andi frá inn­leið­ingu áltolla Banda­ríkj­anna í lok maí. Kjarninn fjall­aði einnig nýlega um versn­andi rekstr­ar­nið­ur­stöðu álfyr­ir­tæk­is­ins Alcoa í kjöl­far áltolla í lok maí, en hluta­bréfa­verð fyr­ir­tæk­is­ins féllu eftir að það lækk­aði afkomu­spá sína fyrir árið um 14%.

Norska krónan veikst

Samhliða verð­lækkun á hrá­vörum hefur norska krónan veikst tölu­vert. Samkvæmt við­mæl­anda norska við­skipta­blaðs­ins Dagens Nær­ingsliv (DN) hefur við­skipta­stríðið einnig haft bein áhrif á gengi krón­unnar, en aukin óvissa á mörk­uðum hefur hindrað nýjar fjár­fest­ingar til skamms tíma og haft nei­kvæð áhrif á hluta­bréfa-og gjald­eyr­is­mark­að­inn. Í við­tali við DN telur við­mæl­and­inn að norska krónan muni hald­ast veik nokkurn tíma og gæti jafn­vel veikst enn meira, þar sem mögu­legt er að við­skipta­stríðið muni harðna á næstu vikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Tollur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár