Heimamenn fyrir norðan slegnir: „Við hentum öllu frá okkur“

Dreng­ur­inn sem leitað er í Sölvadal í Eyja­firði, eftir að hann féll í Núpá í gær­kvöldi, mun hafa verið gest­kom­andi hjá bónda á bæ í dalnum og farið með honum til að aðstoða við að koma raf­magni á. Hans er enn saknað.

Heimamenn fyrir norðan slegnir: „Við hentum öllu frá okkur“
Erfiðar aðstæður Erfiðar aðstæður eru við leit­ina og nán­ast úti­lokað að kom­ast að svæð­inu öðru­vísi en með því að ganga í ánni. Myndin er úr safni og teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Pressphotos

Dreng­ur­inn sem leitað er í Sölvadal í Eyja­firði, eftir að hann féll í Núpá í gær­kvöldi, mun hafa verið gest­kom­andi hjá bónda á bæ í dalnum og farið með honum til að aðstoða við að koma raf­magni á. Hans er enn saknað. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar er dreng­ur­inn sextán ára gam­all. Munu dreng­ur­inn og bónd­inn hafa staðið uppi á stíflu­vegg, þar sem þeir voru að vinna við að hreinsa krapa frá inn­taki inn í stífl­una, þegar að krapa­bylgja kom niður ánna og hreif dreng­inn með sér. Bóndinn náði að forða sér undan. Erfiðar aðstæður eru til leitar, þar eð Núpáin fellur í kröppu gili í um það bil tvo til þrjá kíló­metra neðan við stífl­una. Heima­menn í sveit­inni eru mjög slegnir vegna slyss­ins.

Hentu öllu frá sér 

Hjalti Þórsson vinnur við snjó­ruðn­ing og var hann feng­inn til að ryðja veg­inn inn Eyja­fjörð og inn Sölva­dal­inn. Hann segir að ekki hafi verið erfitt að ryðja leið­ina svo að vel væri en aðstæður til leitar við ánna sé erf­iðar. „Hún rennur þarna í þrengslum í tvo til þrjá kíló­metra neðan við stífl­una, sem er ill­mögu­legt að kom­ast um gang­andi. Svo eru þarna krapa­bakkar í hlið­unum eftir krapa­flóðið sem tók mann­inn þannig að það er eig­in­lega varla nokk­urs staðar pláss fyrir mann­skap til að ganga nema í ánni. Það er mjög erfitt að athafna sig og kom­ast að þessu. Landið með­fram gil­inu er mikið sund­ur­skorið af lækjum og það hallar mikið að því þannig að það er erfitt yfir­ferðar. Það er líka svell undir snjó þarna og skreipt.“

„Við hentum öllu frá okkur“

Hlynur Þórsson á Akri er félagi í björg­un­ar­sveit­inni Dal­björgu og var við leit í nótt. „Ég var niðri á Akureyri í gær­kvöldi og við vorum þar komnir með raf­stöðvar á bíl og vorum á leið inn í Svarf­að­ar­dal til að koma fjósum í gang þar í raf­magns­leys­inu. Við hentum öllu frá okkur þegar útkallið kom og fórum inn eftir inn í dal til leitar.“ Öllum til­tækum mann­skap sem var í nágrenn­inu var þegar beint inn í Sölvadal til leitar.

Klettagil og hrunhætta 

Hlynur var við leit til klukkan þrjú í nótt en aðrir héldu áfram við leit. Élja­gangur var á en gola hæg og ekki mik­ill snjór. „Þetta er kletta­gil og bara sum staðar sem hægt er að ganga með­fram ánni. Að vest­an­verðu eru hengjur svo það var hrun­hætta og það þarf að fara mjög var­lega á köflum.“ Félagar í björg­un­ar­sveit­inni Dal­björgu eru vel kunn­ugir á svæð­inu og auð­veldar það skipu­lag aðgerða tals­vert en leit­ar­svæðið er þó tals­vert og leitótt í því.

Aðeins einn bær er í byggð í Sölvadal. Hann, sem og aðrir bæir í dalnum, hafa aldrei verið tengdir við raf­veitu Lands­nets en heimaraf­stöðvar voru settar upp í dalnum. Þekkt er að í vondum veðrum hafa inn­taks­rör þeirra oft stífl­ast af krapa og erfitt er og hættu­legt að hreinsa frá þeim. Þá er þekkt að í Núpánni mynd­ast snjóstíflur í mik­illi úrkomu, sem bresta svo og ber­ast niður ánna.

Heima­menn sem Stundin hefur rætt við í morgun eru mjög slegnir yfir slys­inu. Mjög margir þeirra eru á vett­vangi við leit eða hafa verið það. 

Kafarar fluttir norður

Á fimmta tug manns voru við leit í nótt á svæð­inu og kom tíu manna hópur, sér­stak­lega sér­hæfður í straum­vatns­björgun, að sunnan undir morgun. Kafarar frá slökkvi­lið­inu á Höf­uð­borg­ar­svæð­inu og kaf­arar úr sér­sveit Rík­is­lög­reglu­stjóra voru þá fluttir norður í gær­kvöldi með þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar. 

Alls voru fjórir kaf­arar, lög­reglu­maður og tíu sér­hæfðir björg­un­ar­sveit­ar­menn fluttir norður í Sölvadal með þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar í nótt. Þyrlan lenti við Saur­bæj­ar­kirkju laust eftir klukkan eitt í nótt þar sem kaf­ar­arnir fóru frá borði, en þyrlan var á svæð­inu til 4:30 þegar skyggni tók að versna. Önnur þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar flutti tíu björg­un­ar­sveita­menn til við­bótar norður og lenti á Akur­eyr­ar­flug­velli á fimmta tím­anum. Meiri mann­skapur mun vera á leið­inni norður til leitar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár